Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 39
M ethagnaður Apple á síðasta ársfjórðungi 2014 átti rót sína að rekja til gegndar- lausrar iPhone-sölu. 18 milljarða dollara hagnaður er mesti hagnaður sem nokkurt fyrirtæki hefur skilað á einum ársfjórðungi. Annar hluti af starfsemi Apple kom ekki jafnvel út á sama tíma. Á þessum síðasta ársfjórðungi seldi Apple 21,4 milljónir iPad-spjaldtölva, til samanburðar við 26 millj- ónir sem seldar voru á síðasta ársfjórðungi 2013. Fækkunin nam 17,7%. Apple er ekki eina fyrirtækið sem hefur þurft að sætta sig við dvínandi eftirspurn eftir spjaldtölvum. Markaðsfyrirtækin IDC og Canalys hafa lýst því yfir að sala á spjaldtölvum hafi minnkað á heimsvísu milli ára alveg síðan Apple hleypti lífi að nýju í iðnaðinn með tilkomu iPadsins árið 2010. Fram- leiðendur senda frá sér færri tölvur og almennir not- endur kaupa færri eintök. Hvað veldur þessari þróun? 1 Spjaldtölvunotendur nota tækin lengurÁrið 2010 var enginn viss um hversu oftspjaldtölvunotendur myndu uppfæra búnað sinn. Sumir héldu að það myndi gerast á um 12-18 mánaða fresti eins og á við um snjallsíma, en aðrir bjuggust við að endurnýjunin færi sjaldnar fram og myndi frek- ar minna á ferðatölvur en farsíma. Nú, fimm árum síð- ar, hefur fengist ágætismynd á þróunina. „Endurnýj- unarferlið er lengra,“ sagði Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, nýlega. „Það er lengra en með iPhone-inn, liggur einhvers staðar á milli síma og tölvu. Við höfum ekki verið í spjaldtölvubransanum nógu lengi til þess að fullyrða alveg um þetta.“ Annar sérfræðingur, Ranjit Atwal, segir að líftími spjaldtölva sé lengri. „Við deilum þeim með fjölskyldunni og hug- búnaðaruppfærslur, sérstaklega fyrir iOS-tæki, halda þeim nútímalegum.“ Þá er ljóst að flestir spjaldtölvu- eigendur nýta þær að mestu leyti í að skoða tölvupóst, vafra um netið og horfa á myndbönd. Þessi takmark- aða notkun veldur því að lítill hvati er til þess að upp- færa þær reglulega. 2 Stærri skjáir vinsælir Lítill vöxtur og minnkandisölur í spjaldtölvuiðnaði haldast í hendur viðauknar vinsældir þess sem stundum er nefnt „phablet“, sem eru snjallsímar með stærri skjái en tíðkast á venjulegum símum. Í fyrstu voru það helst Android-símar sem voru fáanlegir með slíkum skerm- um, en Apple kynnti loks til leiks einn slíkan haustið 2014. Stórir snjallsímar geta í raun framkvæmt allar aðgerðir sem spjaldtölvur eru færar um og mörkin milli þessara tveggja flokka eru ekki skýr í dag. Cana- lys, fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðsrannsóknum, ályktar að um helmingur þeirra Android-tækja sem seld voru á síðasta ársfjórðungi 2014, hafi verið spjald- tölvur og að þetta séu þau tæki sem séu mest ógn við framþróun síma með stóra skjái. Á sama tíma hafa margir dyggir viðskiptavinir Apple hikað við að fá sér nýjan iPad vegna áhuga á nýjum iPhone og Canalys bendir á að eftirvænting vegna nýs iPhone hafi án nokkurs vafa stuðlað að minnkandi sölu spjaldtölva fyrirtækisins. 3 Ferðatölvurnar eru lífseigarÞað er gömul saga og ný að ný vara verði aðganga af annarri vöru dauðri til þess að slá í gegn. Í tilfelli spjaldtölva var talið líklegast að þær myndu ganga hart að ferðatölvum, þegar eftirspurnin eftir þeim tók að aukast árið 2010. Á hinn bóginn hafa ferðatölvurnar reynst mun erfiðari viðureignar en fyrst var talið. Margir eigendur stórra snjallsíma eru taldir líklegri til þess að laðast að tilhugsuninni um að eiga ferðatölvu samhliða símanum, í stað þess að fá sér spjaldtölvu. Þeir eru líklegri til þess að líta svo á að spjaldtölvan sé lúxusvara. „Maccarnir og símarnir hafa án nokkurs vafa áhrif á söluna á spjaldtölvum,“ sagði Tim Cook. „Ég er viss um að margir hafa horft til skiptis á Mac-tölvu og iPad og afráðið að fá sér ferðatölvu. Og mér finnst það allt í fínasta lagi.“ Ódýrari ferðatölvur frá Google og kraftmiklar her- ferðir í kringum Windows-tölvur hafa jafnframt stuðl- að að dvínandi eftirspurn eftir ferðatölvum. „Aukin eftirspurn eftir ódýrum ferðatölvum hefur án nokkurs vafa stuðlað að því að neytendur kjósa frekar að end- urnýja tölvurnar sínar.“ 4 Samsung og Amazon einnig í klípuApple var ekki eini spjaldtölvuframleiðandinnsem horfði upp á minnkandi sölu á síðasta árs- fjórðungi 2014. IDC áætlar að sölur Samsung hafi dregist saman um 18,4% og ýmsir hafa gefið í skyn að Android-spjaldtölvur standist einfaldlega ekki þær kröfur sem gerðar séu á spjaldtölvumarkaði samtím- ans. Á yfirborðinu virðist Amazon jafnframt hafa átt dapurlega þrjá mánuði á þessum tíma þar sem sölum fækkaði úr 5,8 milljónum eintaka í 1,7 milljónir. Hins vegar seldi fyrirtækið víst vel af Fire HD-spjaldtölvu en þær tölur voru ekki teknar með í ljósi þess að tölv- an var of lítil til að uppfylla skilyrði þess að teljast spjaldtölva í augum margra markaðsaðila. 5 Hefur spjaldtölvuiðnaðurinn staðnað?Síðasta kenningin sem sett hefur verið framum hvað valdi því að spjaldtölvusala hafi minnk- að, er sú að þau módel sem komu fram árið 2014 hafi skort spennandi og frumlegar nýjungar sem væru lík- legar til þess að laða að viðskiptavini. Ýmsir sérfræð- ingar halda því fram að skortur á nýjungum verði til þess að fæla viðskiptavini frá. Módel ársins 2014 fólu að mestu í sér endurbætur af hálfu spjaldtölvufram- leiðenda á möguleikum sem þegar voru til staðar. Erf- itt er að segja hvers konar nýjungar væru líklegar til þess að laða viðskiptavini aftur að spjaldtölvunum. Stærri skjáir? Sérhæfðari spjaldtölvur, t.d. fyrir börn? Því hefur verið haldið fram að mögulega gætu töfrarn- ir falist í hugbúnaði á borð við Siri, þ.e. stafrænum hugbúnaði sem getur sagt fyrir um þarfir notenda og aðstoðað þá að ýmsu leyti. Spjaldtölvueftirspurn dvínar milli ára Á SAMA TÍMA OG APPLE SKILAÐI METHAGNAÐI VEGNA GÍFURLEGRAR IPHONE-SÖLU HEFUR SPJALDTÖLVUEFTIRSPURN DREGIST SAMAN Á HEIMSVÍSU. SETTAR HAFA VERIÐ FRAM ÝMSAR KENNINGAR TIL AÐ SKÝRA ÞESSA ÞRÓUN. Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is Steve Jobs með hinn byltingarkennda iPad árið 2010. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum fimm árum og spjald- tölvuiðnaðurinn hefur minnkað mikið á síðustu árum. 8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 * Allir meðtaka svo mikið magn upplýsinga ádegi hverjum að þeir glata almennri skynsemi sinni Gertrude Stein Verð frá74.990.- Verð frá49.990.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.