Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 29
LÍTIÐ FYRIR ÓÞARFA PUNT
É
g er ekki með þennan týpíska skandinavíska stíl, frekar blöndu af
honum, New York loft stíl og hlýlegum LA arkitektastíl. Ég er lítið
fyrir óþarfa punt og vil helst ekki eiga hluti sem þjóna ekki ein-
hverjum tilgangi,“ segir Jóhanna Björg sem fær innblástur frá
ferðalögum, tímaritum og af internetinu af síðum eins og Pinterest.
Jóhanna hrífst af svörtum og dökkum litum. „Næst þegar ég mála ætla
ég að mála einn vegg miðnæturbláan. Ég hef oft tekið eftir því þegar ég
horfi á bíómyndir og þætti að vondu karakterarnir eru með sama stíl heima
hjá sér og ég. Allt mjög „sharp“ og „clean“, á meðan hinir búa í bjartari og
krúttlegri íbúðum. Spurning hvað það segir þá um mig,“ segir Jóanna og
hlær.
Jóhanna segir samhengið skipta öllu máli við innréttingu heimilisins,
bæði í litum og stærðarhlutföllum svo það sé ákveðin ró yfir heimilinu. Hún
segist jafnframt eiga mjög erfitt með „clutter“ og kýs að hafa litinaeinfalda
en að það þýði samt ekki að allt þurfi að vera hvítt.
Í sambandi við gólfefni og innréttingar þá skiptir Jóhönnu máli að velja
vönduð efni og hugsa til lengri tíma, reyna að elta ekki tískubylgjur.
Hún velur þá frekar lausnir sem geta aðlagast mismunandi stílum.
„Ég versla mikið í Ikea og Söstrene Grene, mér finnst það ótrúlega
skemmtilegt. En ég kaupi húsgögnin og hlutina sem setja mestan svip á
heimilið eins og rúm, sófa og slíkt annars staðar. Ég á þrjú börn og hef
hreinlega ekki haft áhuga á að eiga of dýr húsgögn sem ég þarf að passa.
En mig dreymir um að eignast heimili þegar krakkarnir eru orðnir stærri
þar sem fallegir hönnunarstólar og fínni húsgögn geta fengið að njóta sín.“
Aðspurð hver sé uppáhaldsstaðurinn á heimilinu segir Jóhanna það vera
eldhúsið og baðherbergið.
„Ég hannaði baðherbergið eins og lítið spa og ég nýt þess að slaka á þar
inni. Við hjónin förum saman í bað á hverju kvöldi þegar börnin eru sofnuð.
Þá höfum við smátíma bara hvort með öðru án barna, síma, sjónvarps eða
internets.“
Chanel Boy Bag fær auðvitað gott
pláss á veggnum.
Hönefoss-
speglarnir úr
Ikea koma vel
út sem bakkar.
Jóhanna Björg og
Martin Christensen
ásamt Benjamín litla.
Innblástur frá ferðalögum
JÓHANNA BJÖRG CHRISTENSEN, RITSTJÓRI TÍSKUTÍMARITSINS NUDE MAGAZINE, BÝR ÁSAMT EIGINMANNI
SÍNUM MARTIN CHRISTENSEN OG ÞREMUR BÖRNUM ÞEIRRA, ANDREAS, MATTHILDU OG BENJAMÍN, Í
FALLEGU HÚSI Í KÓRAHVERFINU Í KÓPAVOGI SEM JÓHANNA SÁ SJÁLF UM AÐ INNRÉTTA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Tekkskenkinn
erfði Jóhanna
frá ömmu sinni
og er hann
henni afar kær.
Gengið er út á stóran pall út frá aðalrýminu. Í innrétt-
ingum og efnum valdi Jóhanna stílhrein efni í náttúru-
legum litum sem aðlaga sig að nánast hverju sem er.
Skvísulegt herbergi
Matthildu, 6 ára.
Yngsti sonurinn
Benjamín Hugo.
Skemmtilegt skipulag á naglalökkunum.
Á náttborði ritstjórans liggja að sjálf-
sögðu tískubækur og skart.
8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
OG D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0
REYK JAV ÍK | AKUREYR I
OVALIS AFMÆLISVASINN.
Framleiddur í tilefni
af 100 ára
afmæli
TaipoWirkkala
hönnuðar
ULTIMA
THULE línunnar
SYLVESTER eldhússtóll
með krómlöppum
margir nýir litir
TILBOÐ 11.990
Fullt verð 13.990
NÝJARVÖRUR
FRÁ BROSTE
SGÖGNUM OG SMÁVÖRU Á GÓÐU VERÐI