Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015 Bækur Gula spjaldið í Gautaborg,Þín eigin þjóðsaga og Vís-indabók Villa 2 voru með- al tíu mest seldu bóka á síðasta ári. Það er óalgengt að barnabækur raði sér svo ofarlega á lista yfir mest seldu bækur hér á landi þeg- ar teknir eru saman allir flokkar yfir allt árið. Í það minnsta komust ekki svona margar bækur ætlaðar börnum og ungmennum á topplist- ann árin á undan. Að sögn Bryndísar Loftsdóttur, starfsmanns Félags bókaútgefenda, er tilfinning bókaútgefenda sú að barna- og ungmennabækur séu í mikilli sókn. „Við merkjum aug- ljósan kipp í lesefni fyrir börn og ungmenni, bæði í aukinni útgáfu og sölu.“ Bryndís segir þessa þróun, þ.e. aukna útgáfu barnabóka og aukna sölu, ríma við þróun sem átt hefur sér stað í Svíþjóð. Á síðasta ári hafi sala á bókum fyrir börn og ungmenni í Svíþjóð aukist langt umfram aðra flokka. „Svíar telja að helsta ástæða þess að bækur fyrir börn og ung- menni seljist svo vel nú sé slæm útkoma sænskra grunnskólanema úr PISA-rannsókninni, sem fékk mikla umfjöllun þar. Nærtækasta skýringin á þessari söluaukningu er talin vera sú að foreldrar séu að bregðast við þessari slæmu útkomu og fregnum af minnkandi lesskiln- ingi.“ Hún bendir einnig á að vegur barnabókmennta hafi verið að aukast hér á landi, en á síðasta ári var bætt við flokki barnabóka inn- an Íslensku bókmenntaverð- launanna. Tímakistan eftir Andra Snæ Magnason hlaut verðlaunin fyrir árið 2013 en Hafnarfjarð- arbrandarinn eftir Bryndísi Björg- vinsdóttur hlaut verðlaunin í þess- um flokki árið 2014. Barnabók hefur þó aldrei náð að vera mest selda bókin yfir heilt ár. Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir hafa verið nefnd kóngur og drottning íslenskra met- sölulista. Nafngiftin er engin til- viljun því bækur eftir þau hafa raðað sér í efstu sæti topplistans síðustu ár. En reyndar mætti jafn- vel frekar segja að Óttar Sveins- son ætti tilkall til einhvers konar titils, en Útkallsbækur hans hafa verið fastagestir á topplistanum í yfir tvo áratugi – geri aðrir betur. Þegar árslistinn yfir heildarsölu á íslenskum bókum er skoðaður fyrir síðustu fimm ár má sjá að bækur Arnaldar tróna þrisvar á toppnum, árin 2010, 2013 og 2014 og bók eftir Yrsu einu sinni. Það var árið 2011 en þá náðu tvær bækur hennar inn á listann, í fyrsta og tíunda sæti. Árið 2012 skákaði hins vegar Ingibjörg Reynisdóttir bæði kóngi og drottn- ingu og hrifsaði til sín efsta sæti topplistans með bókinni Gísli á Uppsölum. Íslenskar glæpasögur hafa verið þýddar á mörg tungumál og eru þannig orðnar að útflutningsvöru. Bryndís Loftsdóttir telur að ís- lenskar barnabækur geti vel orðið það einnig. „Það er afskaplega ánægjulegt bæði að svona góðar bækur skuli að koma út fyrir þennan aldurshóp og að viðbrögðin séu góð. Við auðvitað vonumst til þess að það verði til að auka og bæta þessa útgáfu sem er svo mik- ilvæg. Og helst viljum við sjá að hún verði jafngóð söluafurð erlend- is og glæpasögurnar.“ KIPPUR Í SÖLU OG ÚTGÁFU BARNABÓKA Aukinn áhugi á barnabókum Í Svíþjóð er talið að aukin sala á barna- og ungmennabókum sé til marks um viðbrögð foreldra við slakri útkomu úr PISA-rannsókninni. Leiða má að því lík- um að hið sama sé uppi á teningnum hér á landi. Morgunblaðið/Golli ÞRJÁR BÆKUR AF TÍU MEST SELDU Á SÍÐASTA ÁRI VORU BARNABÆKUR. BÓKAÚTGEFENDUR MERKJA AUGLJÓSAN KIPP Í SÖLU OG ÚTGÁFU BÓKA FYRIR BÖRN UM UNG- MENNI. SAMA ÞRÓUN HEFUR ÁTT SÉR STAÐ Í SVÍÞJÓÐ. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Af miklum fjölda uppáhaldsbóka, sem ég endurles reglulega, má nefna Nafn rósar- innar e. Umberto Eco, sem fléttar saman listilega vel gerða morðgátu við almennan miðaldafróðleik og deilur milli ólíkra klausturreglna um jafn fáránlegan hlut og af- stöðu Jesú til eignarréttarins. Þar sem ég hef alltaf haft mikinn áhuga á góðum morð- gátum, miðöldum og trúarbragðasögu skipar þessi bók sér ofarlega á listann yfir uppá- haldsbækurnar. Aðra bók má nefna en það er bókin Un- der the Tuscan Sun e. Frances Mayes. Ekki aðeins er þetta töfrandi ævintýrasaga um háskólakennara sem tekur upp á því að gera upp gamalt hús í sveitum Toscana (löngu áður en það komst í almenna tísku) heldur er hún full af matarlýsingum og mat- aruppskriftum en það er efni sem ég er mjög veik fyrir. Bókin bókstaflega gælir við öll skilningarvitin. Enn aðra bók má nefna sem er A Short History of Nearly Everything e. Bill Bry- son þar sem hann tekst það verkefni á hendur að lýsa í einni bók því helsta sem gerðist frá miklahvelli og þar til nútímamað- urinn kom fram. Þetta hljómar að sjálfsögðu eins og þrautleiðinleg vísinda- og fræði- lesning en er það ekki. Bill Bryson er með fyndnari höfundum, sem skilar sér í þessari stórskemmtilegu bók. Enn ein bók væri Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf e. Jo- nas Jonasson, sem ég las reyndar á frum- málinu. Ég skellti ítrekað upp úr við lestur hennar og geri enn við endurlestur og bara fyrir það eitt á hún skilið að vera með í þessari upptalningu. BÆKUR Í UPPÁHALDI KRISTBJÖRG STEPHENSEN LÖGMAÐUR Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður á sér þónokkrar uppáhaldsbækur sem hún les aftur og aftur. Morgunblaðið/Þórður 1. Kamp Knox. Arnaldur Indriðason 2. DNA. Yrsa Sigurðardóttir 3. Öræfi. Ófeigur Sigurðsson. 4. Gula spjaldið í Gautaborg. Gunnar Helgason. 5. Útkall - Örlaga- skotið. Óttar Sveinsson. 6. Þín eigin þjóðsaga. Ævar Þór Benediktsson. 7. Vísindabók Villa 2. Vilhelm Anton Jónsson. 8. Saga þeirra, saga mín. Helga Guðrún Johnson. 9. Sveitin í sálinni. Eggert Þór Bernharðsson. 10. Ljónatemjarinn. Camilla Läckberg. TOPPLISTINN 2014 1. Skuggasund. Arnaldur Indriðason 2. Lygi. Yrsa Sigurðardóttir 3. Vísindabók Villa. Vilhelm Anton Jónsson. 4. Veisluréttir Hagkaups. Friðrika Hjördís Geirsdóttir. 5. Guðni: léttur í lund. Guðni Ágústsson. 6. Lágkolvetna lífsstíllinn. Gunnar Már Sigfússon. 7. Fiskarnir hafa enga fæt- ur. Jón Kalman Stefánsson. 8. Útkall: lífróður. Óttar Sveinsson. 9. Rangstæður í Reykja- vík. Gunnar Helgason. 10. Hemmi Gunn: sonur þjóðar. Orri Páll Ormarsson. TOPPLISTINN 2013 1. Gísli á Uppsölum. Ingibjörg Reyn- isdóttir. 2. Reykjavíkurnætur. Arnaldur Indriðason. 3. Kuldi. Yrsa Sigurðardóttir. 4. Hárið. Theodóra Mjöll. 5. Grillréttir Hagkaups. Hrefna Rósa Sætran. 6. Heilsuréttir fjölskyldunnar. Berglind Sigmarsdóttir. 7. Iceland Small World. Sigurgeir Sigurjónsson. 8. Fimmtíu gráir skuggar. E.I Jones. 9. Ósjálfrátt. Auður Jónsdóttir. 10. Húsið. Stefán Máni. TOPPLISTINN 2012 1. Brakið. Yrsa Sigurðar- dóttir. 2. Einvígið. Arnaldur Indriðason. 3. Gamlinginn sem skreið út um gluggann. Jonas Jonasson. 4. Heilsuréttir Hagkaups. Sól- veig Eiríksdóttir. 5. Stóra Disney köku- og brauðbókin. Disney. 6. Útkall: ofviðri í Ljósufjöllum. Óttar Sveinsson. 7. Hollráð Hugos. Hugo Þórisson. 8. Málverkið. Ólafur Jóhann Ólafsson. 9. Hjarta mannsins. Jón Kalman Stefánsson. 10. Ég man þig. Yrsa Sigurðardóttir. TOPPLISTINN 2011 1. Furðustrandir. Arnaldur Indriðason. 2. Léttir réttir Hag- kaups. Friðrika Hjördís Geirsdóttir. 3. Ég man þig. Yrsa Sigurðardóttir. 4. Stóra Disney-matreiðslu- bókin. Ýmsir höfundar. 5. Gunnar Thoroddsen. Guðni Th. Jóhannesson. 6. Eyjafjallajökull. Ari Trausti Guðmundsson og Ragn- ar Th. Sigurðsson. 7. Lífsleikni Gillz. Egill Gillz Einarsson. 8. Svar við bréfi Helgu. Bergsveinn Birgisson. 9. Hreinsun. Sofi Oksanen. 10. Bók fyrir forvitnar stelpur! Þóra Tómasdóttir og Kristín Tómasdóttir. TOPPLISTINN 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.