Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 16
Kristín Einarsdóttir,íþrótta- og grunnskóla-kennari, hugsaði með sér
frá því að hún byrjaði að kenna
bókleg fög að það hlyti að vera
hægt að sameina nám og hreyf-
ingu. Hugmyndina þróaði hún
áfram og hefur nú stofnað um-
gjörð um kennsluaðferðina, Leik-
ur að læra. Eitt af markmiðum
Leikur að læra er: „Kennum fag
frekar en bók og markmið frek-
ar en blaðsíðu.“
Fyrst um sinn var Kristín
einungis að kenna bókleg fög á
grunnskólastigi.
„Ég byrjaði á því að taka
markmiðin úr bókunum og út-
færa þau sem leiki, bæði úti og
inni, og losa mig aðeins frá bók-
inni. Þannig var komin aðferð
sem höfðaði vel til barnanna og
þau gátu um leið fengið útrás
fyrir hreyfiþörfina,“ segir Krist-
ín. „Þetta er aðferð sem virkar
vel og gaman að sjá þessa við-
bót við almenna kennslu.“
Haustið 2009 fór Kristín að
kenna í Krikaskóla sem er skóli
fyrir 2-10 ára nemendur og
byrjaði að kenna yngri börnum.
„Þá opnaðist algjörlega nýr
heimur, því börn eru eins og
svampar, þau drekka í sig fróð-
leik. Það er svo gaman að
kenna þeim í gegnum leik og
hreyfingu.“ Kristín segir að það
hafi verið dásamlegt að sjá börn
sem áttu erfitt með hefðbundið
form kennslu blómstra við að
telja, flokka og reikna í íþrótta-
salnum þar sem þau urðu að
nota hreyfinguna við að finna
lausnir á verkefnunum.
Lítið skiptir máli
Margir grunnskólar hafa til-
einkað sér aðferð Kristínar en
hún heldur úti heimasíðu,
www.leikuradlaera.is, þar sem
skólar geta keypt áskrift og
fengið aðgang að hugmyndum í
íslensku, stærðfræði og ensku
sem nota má í námi í gegnum
leik og hreyfingu. Leitarvél er á
síðunni þannig að kennarinn get-
ur valið fyrir hvaða aldur og
námsþátt eða markmið leikirnir
eiga að vera. Jafnframt því að
bjóða upp á margskonar nám-
skeið fyrir kennara og fyrir
leikskóla sem kallast „Á leið
inn“. „Í þessu verkefni fá for-
eldrar á skemmtilegan hátt inn-
sýn í námið hjá börnunum,“ seg-
ir Kristín. „Ef foreldrar vita
hvað er verið að kenna í leik-
skólanum hverju sinni þá eru
þeir meðvitaðri um að þjálfa
þessi þætti heima líka. Þá eru
allir, börn, kennarar og for-
eldrar að fara í sömu átt og
vinna að sömu markmiðum á
sama tíma, sem er mjög væn-
legt til árangurs. Verkefnið nær
bæði til líkamlegra og vits-
munalegra þátta.“ Hún segir að
öll þjálfun skiptir máli, þó ekki
nema lítið sé gert á dag. „Það
er ljóst að lítið skiptir miklu
máli. Allt þetta smáa sem er
bætt við kennsluna er mikilvægt,
þó það sé ekki nema lítið.“
Kristín segir að í dag sé um-
ræða um hvort heimanám eigi
rétt á sér. Heimanám þarf ekki
endilega að vera þess eðlis að
setjast sérstaklega niður til þess
að vinna ákveðin verkefni.
„Heimanám getur verið einhver
skemmtilegur leikur um það sem
barnið á að læra og hægt að
halda við yfir daginn í skömmt-
um,“ segir Kristín. Leikur að
læra, í bland við hefðbundnar
kennsluaðferðir, hentar einnig
vel fyrir nemendur með ýmiss
konar frávik.
Tæknin dregur úr
hreyfingu
Flestir foreldrar leikskólabarna
hafa alltaf átt síma og er hann
stór hluti af lífi þeirra. Þeim
þykir mörgum því eðlilegt að
sími og spjaldtölva sé notuð sem
afþreying fyrir börnin. „Kannski
er kominn tími til að velta fyrir
sér hvað sé eðlilegt og heilbrigð
notkun á þessum tækjum fyrir
börn. Eru þau að koma í veg
fyrir eðlilega hreyfingu og örvun
mismunandi skynfæra? Framtíð-
arsýn Leikur að læra er að inn-
leiða kennsluaðferðina í sem
flesta skóla landsins og sýna
foreldrum leiðir til þess að
kenna börnum sínum heima í
gegnum leik og hreyfingu.“
ÓHEFÐBUNDIÐ NÁM Í GEGNUM LEIKI
Kennsluaðferð
sem virkar
„Börn eru eins og svampar, þau drekka í sig fróðleik,“ segir Kristín sem stofnaði Leikur að læra.
ÞAÐ ER SANNARLEGA LEIKUR AÐ LÆRA OG HVERS
VEGNA EKKI AÐ FÆRA KENNSLU Í FORM LEIKS OG GERA
HANA ÁHUGAVERÐARI FYRIR BÖRN? KRISTÍN EINARS-
DÓTTIR FÉKK BRÁÐSKEMMTILEGA HUGMYND ÞEGAR HÚN
KENNDI UNGUM BÖRNUM Í GRUNNSKÓLA, SEM HÚN
FRAMKVÆMDI, OG VINNUR NÚ AÐ ÞVÍ AÐ INNLEIÐA AÐ-
FERÐINA Í LEIK- OG GRUNNSKÓLA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Hópur barna í miðjum leik sem Kristín Einarsdóttir leiðir.
Kristín Ein-
arsdóttir vill
sameina nám
og hreyfingu.
Morgunblaðið/Þórður
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.2. 2015
Fjölskyldan Hvar og hvenær? Borgarbókasafni Reykjavíkur, Grófinni 1,sunnudag kl. 15-16.0 Nánar: Vasaljósastund í bókasafninu þar
sem sagðar verða myrkar sögur í barnadeildinni 2. hæð.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Draugasögur og vasaljós
E-60 Bekkur
Verð frá kr. 59.000
Fáanlegur í mismunandi lengdum.
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
www.facebook.com/solohusgogn
Retro borð með stálkanti
Verð frá kr. 96.000
Fáanlegt í mismunandi stærðum.
E-60 Stólar
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð
Verð frá kr. 24.300