Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Síða 18
Ferðalög
og flakk
Norðmenn veita Nóbel
AFP
*Þrátt fyrir að Alfred Nobel, stofnandiNóbelsverðlaunanna, hafi verið sænskureru Friðarverðlaun Nóbels ávallt veitt íOsló í Noregi. Á síðasta ári tóku þauMalala Yousafzai frá Pakistan og KailashSatyarthi frá Indlandi við verðlaununum úrhendi Haralds Noregskonungs. Verðlaun-
in hlutu þau fyrir baráttu gegn undirokun og fyrir rétti allra
barna og unglinga til menntunar.
Þ
að tekur um tvo og hálfan
tíma að fljúga til höf-
uðstaðar Noregs, Osló.
Borgin er fremur þægileg
að því leyti að auðvelt er að komast
milli staða innan borgarmarkanna á
tveimur jafnfljótum, hjóli eða með
því að nota almenningssamgöngur.
Hægt er að leigja hjól í upplýsinga-
miðstöð fyrir ferðamenn á aðallest-
arstöð borgarinnar. Leiga á hjóli í
sólarhring í Osló kostar um 1.750
krónur íslenskar.
Norska krónan er ekki sérlega
hagstæð okkur Íslendingum um
þessar mundir en til að fá verð í ís-
lenskum krónum á því sem keypt
er í Noregi er best að reyna að
margfalda með 18 (1 ISK = 17,5
NOK). Það er því ráðlegt að skipu-
leggja ferðina áður en haldið er af
stað og gott að kanna verð á t.d.
aðgöngumiðum á söfn og öðru sem
ætlunin er að sjá í borginni.
Einn staður sem er óhætt að
mæla með fyrir þá sem hyggja á
ferð til Oslóar er Vigeland-
höggmyndagarðurinn.
Garðurinn hefur að geyma högg-
myndir eftir Gustav Vigeland og er
einn stærsti garður heims með
verk eins listamanns. Garðurinn er
opinn árið um kring og aðgangur
ókeypis. Vigeland-safnið er í sunn-
anverðum garðinum en til að heim-
sækja safnið þarf að greiða rúmar
þúsund krónur íslenskar í aðgangs-
eyri.
Holmenkollen skíðastökkpall-
urinn er skemmtilegt stopp fyrir
ferðalanga en til að skoða hann og
safnið sem byggt hefur verið í
kringum hann þarf að reiða fram
2.000 krónur íslenskar fyrir full-
orðna og um 1.000 krónur fyrir
börnin.
Arkitektúrinn í Osló er heillandi
og fyrir þá sem hafa yndi af áhuga-
verðum byggingum má benda á óp-
eruhúsið og stórþingið.
Fyrir þá sem vilja þræða söfn er
sniðugt að kynna sér svokallaðan
Osló-passa sem virkar þannig að
greitt er eitt gjald fyrir tiltekinn
tíma og á þeim tíma, t.d. er hægt
að velja um 24 klst, 48 klst eða 72
klst, er hægt að valsa frjálst milli
30 safna og sýningarrýma. Vefurinn
www.visitoslo.no hefur að geyma
gagnlegar upplýsingar fyrir vænt-
anlega ferðalanga. Beint flug er frá
Keflavík til Osló árið um kring.
AFP
Í Vigeland-garðinum eru yfir 200 höggmyndir.
ÁFANGASTAÐUR VIKUNNAR: OSLÓ
Auðveld
yfirferðar
MARGT ER AÐ SJÁ Í OSLÓ, HÖFUÐSTAÐ FRÆNDFÓLKS
OKKAR Í NOREGI. EINFALT ER AÐ KOMAST MILLI STAÐA Í
BORGINNI ÞÓTT EKKI SÉ HÚN SÉRLEGA ÓDÝR.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Osló kemst jafnan á lista yfir dýrustu borgir.
Kaffibolli er klassísk mælieining á verðlag. Á
Starbucks í Noregi kostar
meðalstór kaffibolli (americ-
ano) 35 krónur norskar eða
sem nemur 610 íslenskum
krónum.
Meðalstór
mjólkurkaffi
(latte) kostar
um 840 íslenskar krónur og
stór bolli af því sama kostar
heilar 920 krónur íslenskar.
Strætisvagnar, lestir og ferjur í Osló eru
allar hluti af sama miðakerfi. Sólarhringsmiði
kostar sem nemur 1.560 krónum íslenskum
fyrir fullorðna og 780 krónur fyrir börn.
Benda má á að hægt er að hlaða niður smá-
forritunum RuterBillett, þar sem hægt er að
kaupa miða, og RuterReise, sem hefur að
geyma leiðakerfi almenningssamgangna.
Krónprinsessa Noregs Mette-
Marit, eiginkona Hákonar
krúnuerfingja, er uppáhald
Norðmanna þótt hún hafi
stundum verið umdeild.
Stórþingið er tilkomumikil bygging eftir sænska arkitektinn Emil Victor Langlet sem var tekið í notkun 1866.
Ljósmynd/VISITOSLO/Sabine Zoller
GOTT AÐ VITA
Kaffið kostar sitt