Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 21
Ljósmynd/Rotalis Á hjóli er farið hægar yfir en á bíl og hægt að njóta landslagsins og lífsins gæða á leiðinni. 8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 BikeToursDirect er með vefsíðuna BikeTours.com þar sem hægt er að fá upplýsingar um fjöldamargar hjólaferðir. Þetta er ekki ferðaskrifstofa heldur er BikeToursDirect í sambandi við 100 fyrirtæki sem skipuleggja hjólaferðir í 70 löndum. Áherslan síðustu ár hefur verið á Evrópu en einnig er að finna þarna upplýsingar um ferðir utan álfunnar. Vinsælustu flokkarnir eru m.a. fjölskylduvæn ferðalög, ódýr ferðalög og best fyrir nýliða. Vinsæl ferð er sjö daga ferð frá Passau í Þýskalandi til Vínarborgar í Austurríki. Hjólað er með- fram Dóná og þykir leiðin vera þægileg og hentar hún fjöl- skyldum. Ennfremur er boðið uppá lúxusútgáfu af þessari ferð en þá er gist á fjögurra eða fimm stjörnu hótelum allan tímann. Leiðin þykir þægileg meðfram ánni. Hjólað meðfram Dóná PASSAU -VÍNARBORG Vænta má lofthita um 22-26°C og sjávarhita um 22-24°C. Ferðaskrifstofan Vita er á meðal þeirra sem bjóða upp á hjólaferðir en í sumar verður m.a. farin hjólaferð til Ítalíu og hjól- að frá Bolzano til Feneyja. Flogið frá Kefla- vík til München og þaðan er tekin lest til Bolzano. Ferðin hefst á því að hjólað er gegnum Suður-Týról með ánni Adige til borg- arinnar Trentó. Eftir það liggur leiðin yfir lága heiði til bæjarins Riva de Garda við norðurenda Gardavatnsins. Þaðan er siglt eftir endilöngu Gardavatninu og á sigling- unni er upplagt að sitja í sólinni eða fá sér hressingu í veitingasal skipsins. Frá suður- enda vatnsins er hjólað í austurátt til Ver- óna og þaðan til Feneyja þar sem síðasta deginum er eytt á Markúsartorgi, á göngu um hliðargötur eða í sólbaði á ströndinni. Lögð er áhersla á að njóta ferðarinnar, njóta ítalskrar matargerðar og kynnast landinu sem hjólað er um. Hjólaleiðin er að mestu um láglendi, eina brekkan sem tekur að nefna er Monti Berici. Fyrstu tveir dag- arnir eru á hjólabrautum, frá Gardavatni er hjólað á fáförnum sveitavegum. Á kvöldin fer hópurinn yfirleitt saman í kvöldverð á dæmigerðum ítölskum veitingastöðum. Nánari upplýsingar um ferðina sem farin verður dagana 20.-27. júní er að finna á vita.is. Feneyjar hafa heillað ferðafólk um langt árabil enda margt að sjá og gera í borginni. Morgunblaðið/Ómar Siglt eftir Gardavatninu BOLZANO - FENEYJAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.