Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 36
Stýrikerfið í sjónvarpinu er WebOS, Linux-afbrigði sem LG keypti af HP
á sínum tíma og hefur lagað að sínum þörfum. Það er fljótt að svara og
býður upp á ýmsa möguleika.
LG hefur kosið að setja upp eigin forritabúð og þar er að finna fjölda
leikja og forrita sem hægt er að keyra í símanum. Að mínu viti hefði
reyndar verið snjallara að nota Android og fá þá aðgang að þeim grúa
forrita sem þar er að finna, en WebOS er betur sniðið að sjónvarps-
notkun, sem vonlegt er, og sérlega einfalt í notkun.
Ef marka má fréttir á netinu á undanförnum mánuðum gekk á ýmsu í
hönnun og forritun á stýrikerfinu og það hve notendaskilin á sjónvarp-
inu eru einföld og aðgengileg er víst fyrir slysni, ef svo má segja, því
hönnuðir hjá LG, sem er kóreskt fyrirtæki, náðu ekki að klára þær við-
bætur sem þeir vildu hrúga inn og því náðu upprunalegir höfundar We-
bOS sínu fram, en þeir búa í Bandaríkjunum. Þess má geta að WebOS
varð til hjá Palm-lófatölvufyrirtækinu á sínum tíma og átti að vera stýri-
kerfi á farsímum og lófatölvum fyrirtækisins (man einhver eftir PalmP-
ilot?).
LG WEBOS
Einfalt er gott
Græjur
og tækni *Þeir sem eiga erfitt með svefn gætu prófaðað hlaða niður smáforritinu Sounds of naturesem hlotið hefur góða dóma hjá svefnlausumnotendum sínum. Raunar eru til ýmis öppsem eiga að hjálpa til við svefn og þá er eitt,sem reyndar á að nota áður en gengið er tilhvílu, en hefur reynst mörgum vel. Það kall-ast Yoga for Insomnia og inniheldur létta
jógaslökun fyrir þá sem þjást af svefnleysi.
Öpp fyrir svefnlausa
Þó LCD-tækni sé nánast allráðandi á sjónvarpsmark-aði þá hefur ýmis önnur tækni komið til sögunnará því sviði og til að mynda voru svonefnd rafgas-
tæki, plasma-tæki, nokkuð algeng um tíma. Það helsta
sem rafgastæki höfðu sér til ágætis var að mynd í þeim
var miklu betri en á LCD-tækjum eins og blasti við
þegar menn horfðu á tækin hlið við hlið – litir voru
miklu skýrari og betri og birtuskil mun betri – svart
var svart, en ekki dökkgrátt.
Með tímanum hefur LCD-tækninni þó fleygt fram og
myndgæðin orðin framúrskar-
andi þó enn megi auka þau. Nú
eru allir uppteknir af 4K tækj-
um, sjónvarpstækjum sem státa
af 4.000 díla upplausn á þver-
veginn (það er nýtt í markaðs-
setningu á sjónvörpum að selja
eftir upplausn á þverveginn en
ekki á hæðina – allir þekkja
720p eða 1080p en 4K upplausn
samsvarar 2160p), en LG
kynnti á síðasta ári sjónvarpstæki með OLED-tækni,
sem gefur meiri litadýpt og birtuskil.
Eitt af því sem gerir OLED-tækin betri en LVD-tæki
er að einingarnar á skjánum framleiða sjálfar birtu,
ólíkt því sem tíðkast með LCD-tæki sem eru ýmist bak-
lýst, eins og tíðkaðist forðum, eða með lýsingu á kant-
inum eins og almennt er gert í dag með svonefnd LED-
tæki. Fyrir vikið eru OLED-tæki örþunn, svo þunn að
maður trúir ekki eigin augum, þó straumgjafi, tengingar
og sitthvað fleira komi í veg fyrir að það sé allt jafn
þunnt.
LG hefur tekið forystuna í OLED-sjónvarpstækni og
það kemst reyndar enginn annar framleiðandi með tærn-
ar þar sem LG hefur hælana. Aðrir framleiðendur hafa
glímt við háan framleiðslukostnað, því þó OLED-skjáir
séu einfaldari í augum leikmanns, eru þeir erfiðari í
framleiðslu, enn sem komið er í það minnsta, og kostar
skildinginn að koma upp verksmiðjum fyrir sjónvarps-
skjái.
Áðurnefnt OLED-tæki frá LG, LG-55EC930V, sem er
55" tæki eins og tegundarnúmerið gefur til kynna, er
gott dæmi um það hvað hægt er að gera með OLED-
tækninni, því ekki man ég eftir að hafa séð tæki með
jafn góðri mynd, jafn skýrum litum og jafn góðum
birtuskilum. Það kostar sitt, fæst í Sjónvarpsmiðstöðinni
og kostar 499.990 kr., en ástæða er til að hvetja sem
flesta til að gera sér ferð í Sjónvarpsmiðstöðina til að
upplifa myndgæðin, enda blasir við að öll almennileg
sjónvarpstæki verði OLED-tæki áður en langt um líður
– sjón er sögu ríkari.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
OLED-TÆKNIN Á EFTIR AÐ LEGGJA UNDIR SIG
SJÓNVARPSHEIMINN ENDA BÝÐUR HÚN UPP Á
MUN BETRI LITI, MIKLU MEIRI HRAÐA OG MIKLU
MIKLU MEIRI BIRTUSKIL. NÝTT 55" TÆKI FRÁ LG,
LG-55EC930V, SANNAR ÞETTA RÆKILEGA, EN
ÞAÐ SANNAR LÍKA AÐ LG HEFUR NÁÐ FOR-
SKOTI Í SJÓNVARPSTÆKNI OG AÐRIR FRAMLEIÐ-
ENDUR HLJÓTA AÐ FYLGJA FORDÆMINU.
* Meðal kosta við OLED-tæknina er að hægt er að hafa sjón-
sviðið miklu víðara, þ.e. myndin er
skýr þó horft sé á sjónvarpið frá
hlið. Að því sögðu þá þrengir það
sjónsviðið að hafa sjónvarpið kúpt
eins og umrætt tæki, enda þrengir
það eðlilega sjónsviðið. Það er þrí-
víddartæki og fern 3D gleraugu
fylgja.
* Tækið kostar sitt, 499.990 kr.eins og fram kemur, en sambærileg
55" tæki eru ekki mikið dýrari.
Upplausnin á því er „bara“ Full HD,
1920 x 1080p, en væntanleg frá LG
eru 4K tæki. Rétt er að geta þess
að sem stendur er lítið framboð á
efni í 4K upplausn. Þráðlaust net er
í tækinu og það styður DLNA,
Miracast og Wifi Direct.
* Eins og fram kemur hér tilhliðar þá er tækið örþunnt, OLED-
skjáir eru ekki nema 4 mm að
þykkt, en straumgjafi og straumbún-
aður tekur aftur á móti sitt pláss.
Mín tillaga er sú að LG hafi allt
stjórndót og tengingar í sérstöku
boxi og svo bara eina snúru upp í
sjónvarpið – það væri geggjað.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Getum bætt við okkur söluráðgjöfum um land allt
Spennandi atvinnutækifæri í aukavinnu
Möguleiki á mjög góðum sölulaunum
Leitum af sjálfstæðum, jákvæðum og drífandi einstaklingum
sem hafa gaman af því að kynna og selja
hágæða húð- og heilsuvörur.
Upplýsingar í síma 481-2057 eða á netfanginu volare@simnet.is
Söluráðgjafar óskast