Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Síða 40
Eftirherma frá Isabel Marant
AFP
*Franski fatahönnuðurinn Isabel Marant er sökuð umhönnunarstuld. Isabel á að hafa hermt eftir vinsællihönnun Adidas, Stan Smith-skónum. Skór Isabel Mar-ant, Bart, eru í sama sniði, hvítir með rauðum lit að aft-an. Adidas hefur áður kært hönnunarhús fyrir hönn-unarstuld en enn er óvíst hvort fyrirtækið ætli að kæraIsabel Marant fyrir Bart-skóna. Hvorki Isabel Marant né
Adidas hafa gefið út yfirlýsingu varðandi málið.
Á
ttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fatakaupum? Á síð-
ustu árum hef ég breytt mjög mínum neysluvenjum. Það er af sem áður var þegar
maður keypti bara það sem maður sá og mann langaði í án þess að hugsa um
hvort þörfin væri til staðar í raun og veru. Í dag hugsa ég mig tvisvar um, fer
jafnvel oftar en einu sinni og máta og spyr mig hvort mig vanti flíkina, langi raunverulega í
hana og hvort hún passi inn í fataskápinn minn. Semsagt, er orðin mjög meðvituð í fata-
kaupum.
Áttu þér einhverja tískufyrirmynd? Í raun og veru ekki. Ég ber mikla virðingu fyrir og
hef gaman af fólki sem þorir að klæða sig djarft og vera
öðruvísi sama á hvaða aldri það er, fylgir ekki staðalímyndum
eða tískustraumum heldur er bara það sjálft.
Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut? Þær flíkur sem ég
nota mest eru flíkur sem mér líður vel í. Oftast eru þetta
ekki nýjar flíkur heldur flíkur sem hafa tilfinningalegt gildi
fyrir mig og kalla fram góðar og jákvæðar tilfinningar. Núna
þessa dagana og raunar síðasta árið fer ég ekki úr síðum ull-
arfrakka sem ég keypti „second hand“ nánast ónotaðan á Bíó
Paradís-markaði fyrir einu og hálfu ári og kostaði 1.000 krónur.
Svo er ég líka dugleg að breyta gömlum fötum og búa mér
þannig til nýja flík.
Hver hafa verið bestu kaupin þín? Frá unglingsaldri hef ég
keypt mikið af „second hand“ eða notuðum flíkum og það eru oft
flíkurnar sem endast hvað lengst í fataskápnum mínum og ég nota
alltaf aftur og aftur með ákveðnu millibili án þess að þær missi
sjarma eða ég fái leið á þeim. Þessi föt hafa mörg hver fylgt mér í
gegnum mismunandi tímabil … Það er líka umhverfisvænt.
Hverju er mest af í fataskápnum? Kjólar og yfirhafnir eru í miklu
uppáhaldi. Þegar ég geng inn í skemmtilega verslun fer ég alltaf beint í kjólarekkann eða yfirhafn-
irnar og „vantar“ alltaf eina yfirhöfn í viðbót eða einn kjól … enda var „Prinsessan sem
átti 365 kjóla“ uppáhaldsbókin mín. Skór eru líka mjög mikilvægir en þar er
erfitt að gera mér til geðs. Annars hefur fataskápurinn minn „minnkað“ síð-
ustu ár og ég er dugleg að grisja og gefa frá mér föt sem ég hef ekki not-
að lengi. Það er engin ástæða til þess að hafa þetta hangandi inni í skáp
eða uppi í geymslu ef það er ekki notað.
Hvert er þitt eftirlætistískutímabil og hvers vegna? Ég er voða mikill hippi
í mér og elska dúllerí og fallega munstruð efni í litum þó að ég sé sjálf ekki
alltaf í slíkum múnderingum. Ég held að það sé þetta frjálslega fas á fólki
frá þessum tíma og þægilegu snið sem eru laus við alla tilgerð sem heilla
mig. Ég er mikil nostalgíukona og elska að skoða myndir frá ýmsum tímabil-
um og hverju fólk klæddist langt aftur í tímann.
Hver er uppáhaldsverslunin þín? Ég fer sjaldan í búðir í dag. Mér finnst
gaman að kíkja öðru hvoru í búðir og skoða … sérstaklega fallegan „second
hand“-fatnað en kaupi mér sjaldan föt. Þegar ég er erlendis finnst mér mjög
gott að vera búin að kíkja á netið og skoða hvað er til og hugsa um hvað mig
vantar. Ég er mjög fljót að skanna búðir og sjá hvað höfðar til mín og hvað
ekki. Ég þarf ekki annað en að þreifa á efninu eða skoða í eitt augnablik til að
sjá hvort það er fyrir mig eða ekki.
Hvert sækir þú innblástur? Ég sæki innblástur í umhverfið hverju sinni og
mikið í náttúruna. Ég er mikið kamelljón og get sett mig inn í og aðlagast
hvaða aðstæðum sem er, en eftir ákveðinn tíma kallar náttúrubarnið og þá þarf
ég að komast í burtu og finna friðinn og jafnframt kraftinn sem býr í nátt-
úrunni.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Ég myndi ekki
kalla það slys. Þetta er allt partur af minni þróun og án þess væri ég ekki sú
sem ég er í dag. Þarna var maður að prófa að vera alla vega týpur og klæða
sig í mismunandi fatastíl. Föt skipta mig miklu máli og ég man ennþá hverju
ég klæddist sem krakki og hvernig mér leið í því sem ég klæddist. Ég var
nett strákastelpa framan af, í útvíðum gallbuxum og strigaskóm með stutt hár,
en svo tók við stelpan með síða hárið, permanent og axlapúða. Í dag líður
mér vel í eigin skinni, ég þarf ekki að eltast við strauma og stefnur eða
ganga í augun á öðru fóki til að líða vel.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Ég ber mikla virðingu fyrir þeim
hönnuðum sem umhverfismál brenna á í dag, Katharine Hamnett, Edun, Ei-
leen Fisher og Christopher Raeburn láta sig þessi mál varða, þora og fram-
kvæma hver á sinn hátt og eru þess vegna mínar fyrirmyndir í þeim efnum.
KJÓLAR OG YFIRHAFNIR Í MIKLU UPPÁHALDI
Frá unglingsaldri hefur Guðrún
keypt mikið af notuðum fötum
og segir hún þær flíkur endast
hvað lengst í fataskápnum.
Morgunblaðið/Golli
Sækir innblástur
í umhverfið
GUÐRÚN LÁRUSDÓTTIR HEFUR NÝLOKIÐ MEISTARANÁMI FRÁ ESMOD-BERLÍN Í
UMHVERFISVÆNNI FATAHÖNNUN OG STARFAR Í DAG SEM FATAHÖNNUÐUR HJÁ
CINTAMANI. GUÐRÚN ER MEÐ EFTIRTEKTARVERÐAN OG PERSÓNULEGAN FATASTÍL.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Tískuhúsið Edun er í eft-irlæti hjá Guðrúnu endalætur merkið sig umhverf-ið varða.
Pólitískur ádeilubolur frá hinni
bresku Katharine Hamnett.
Yfirhönn-
uður Edun,
Danielle
Sherman.
Tíska