Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Blaðsíða 41
8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
OPIÐ: MÁN. - FÖS. KL. 12 - 18 - LAU. KL. 12-16
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
VOR 2015
Frískandi húðmjólk úr kvöldvorrós, shea butter og linoleic sýru sem vinnur gegn þurrkublettum
og stuðlar að endurnýjun frumanna. Endurnýjandi húðolía sem örva varnir húðarinnar og gefur
húðinni öflugan raka. Notarleg sturtusápa(án sápu) sem hreinsar á mildan hátt. Handáburður
sem smýgur auðveldlega inn í húðina, mikil og góð rakagjöf sem mýkir hendur og naglabönd.
Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru heilsuverslanir og apótek um allt land.
Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland
NÝTT
Weleda húðvörur úr Kvöldvorrósarolíu!
Ný vörulína sem inniheldur kvöldvorrósarolíu,
húðvörur sem örva endurnýjun og eykur styrk og ljóma húðarinnar.
E
f einhver hefði sagt að
konur ættu eftir að vera
trylltar árið 2015 að díla
með eigur sínar og sætu
heilu og hálfu kvöldin í tölvunni
hefðu örugglega einhverjir hald-
ið að um grín væri að ræða.
Hversu fyndið er það að
draga fram flík í fataskápnum,
stilla henni upp, taka mynd af
henni, setja hana á einhverja
lokaða grúppu á Facebook og
bíða eftir lækum og við-
brögðum. Svo er skipst á skila-
boðum og skonsurnar mæla sér
mót í heimahúsum til að klára
dílinn. Að hitta einhvern sem
þú hefur aldrei hitt til að
selja honum fötin þín er
náttúrlega bara stórkostlega
spaugilegt og skemmti-
legt.
Og fyrir svona kon-
ur eins og mömmu
sem lifir dálítið ráð-
settu og formföstu
lífi gefur þetta al-
veg auka-fyllingu
og spennu. En það
er þó ekki á færi
allra að skilja
ánægjuna sem
felst í þessum við-
skiptaháttum.
Mamma átti
dásamlegt sam-
tal við síðhærðan
og skeggjaðan
mann sem hún
deilir lífi sínu með
þegar þau voru
stödd uppi á 21.
hæð á hótel-
herbergi í San
Francisco rétt
fyrir áramótin. Í
samtalinu var
verið að fara yfir
vonir og vænt-
ingar til lífsins
og aðeins verið
að vinna í mark-
miðum fyrir
2015. Í þessu
samtali ældi
mamma
því óvart
upp úr
sér að það
sem truflaði hana mest væri
hvað hún ætti mikið af fötum og
dóti. Hvað þetta þrengdi eitt-
hvað ógurlega mikið að henni –
svo mikið að hún væri við sturl-
unarmörk. Hann skildi ekki al-
veg hvað hún var að fara og eft-
ir smástund sagði hann:
„Ertu að segja mér að ára-
mótaheitið þitt sé að selja föt á
bland.is,“ spurði hann og hló.
Einmitt … hann hló, sem er
kannski ekkert skrýtið því karl-
peningurinn á bágt með að
skilja fatavesenið sem getur
fylgt konum. Líklega er skýr-
ingin sú að menn vilja helst hafa
konur án fata og skilja ekki
hvað fer mikil orka og tími í að
pródúsera hvað fer best með
hverju og hvað sé klæðilegt.
Fyrir þeim er þetta oftast al-
gert aukaatriði. Karlar myndu
aldrei selja af sér sokkana eða
beltið því karlar eru stórtækir.
Þeir selja bara stóra jeppa, stór
dekk, stóra forhitara og stór og
fyrirverðarmikil sjónvarpstæki.
Ein af uppáhaldssíðunum á
Facebook er lokuð og kallast
„Merkjavara föt, skór & auka-
hlutir“. Síðunni er reyndar
stjórnað af karli en af því að
hann er samkynhneigður fata-
hönnuður skilur hann
mömmu og vinkonur
hennar. Og hann
stjórnar síðunni
með harðri hendi.
Eins og nafnið
gefur til kynna
má ekki selja
neitt sem
ekki flokk-
ast undir
merkjavöru
og hafa orð-
ið líflegar
umræður
um hvað sé
„merki“ og
hvað ekki.
Nýlega var
Karen Millen
hent út af síð-
unni og allt varð
brjálað.
Þótt tilgang-
urinn með þessu
öllu sé að einhver
annar fái að njóta
þess sem maður
notar ekki sjálfur
og sé gert til þess
að mamma geti
dregið andann
inni á eigin heimili
án þess að kafna
getur þetta snúist
í höndunum á
manni.
Áður en ég
varð meðlimur
síðunnar vissi ég til
dæmis ekki að mig
langaði í vínrauða Lo-
uis Vuitton-tösku úr
lökkuðu leðri eða Marc
Jacobs-skó með hvítu
kögri og bölvaði því svo í sand
og ösku að skórnir væru í stærð
37 en ekki 39. Var meira að
segja að hugsa um að fara að
skoða þá bara svona til þess að
athuga hvort fóturinn hefði ekki
aðeins rýrnað með hækkandi
aldri. Í samfélagi þar sem fata-
úrval er ansi takmarkað koma
svona síður eins og himnasend-
ing fyrir konur með smekk fyrir
fíneríi. Svo má ekki gleyma því
að þetta er drepfyndið sport
sem getur nú aldeilis hresst upp
á tilveruna. Þar sem það eru al-
veg góðir þrír mánuðir í sum-
arið er ágætt að drepa tímann í
skammdeginu og fylla veskið af
500-köllum … eða eitthvað!
martamaria@mbl.is
Með fullt veski
af 500-köllum
Buxur frá
Filippa K
þurfa nýjan
eiganda.
Þær eru í L.