Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Side 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Side 43
Mark Kenly Domino Tan Sýning danska fatahönnuðarins Mark Kenly Domino Tan var haldin í konunglega danska leikhúsinu í Kaup- mannahöfn. Við gengum inn á hlið hússins og eftir stutta krókaleið og örlitlar efasemdir um hvort við værum á réttum stað mætti okkur hrátt, stórt rými sem einkenndist af mikilli lofthæð og hvítum veggjum. Við settumst í okkar sæti á bekknum og biðum þess að sýningin byrjaði. Í millitíðinni mættu helstu stjörnur dönsku tísku- senunnar á staðinn. Sýningin hófst. Hvítur veggur á annarri hlið rýmisins opnaðist og í ljós kom svið og áhorfendastæði leikhússins sem gerði upplifunina ennþá skemmtilegri. Danski hönnuðuirinn Mark Kenly Domino Tan sýndi sérstaklega glæsilega línu að þessu sinni sem passaði jafnvel á hátísku- vikuna í París. Fáguð snið og áhugaverð smáatriði gerðu hverja flík eft- ir aðra að listaverki. Litirnir hentuðu þessum eilítið lífrænu sniðum vel og upphófu þau hvort annað. Dimmblár, rústrauður, dökkfjólublár og skær eða pasltelblár unnu vel saman, sköpuðu góða heild og gerðu sýninguna að einni bestu sýningu á tískuvikunni að þessu sinni. Mark Kenly Domino Tan er nafn til að leggja á minnið. Veronica B. Vallenes Sýning Veronicu B. Vallenes var sérlega falleg á köflum. Demp- aðir litatónar, beis, karmellit- aður og dökkgrænn gáfu ein- földum og klassískum flíkum fágað yfirbragð. Þó voru ýmsir gallar á sýningunni sem var haldin á Hotel d’Angleterre, svo sem of stutt pils og furðu- legir hálsklútar sem þóttu skemma fyrir heildinni. Tískuveisla Tískuvikan í Kaupmannahöfn er alltaf sérstaklega skemmtileg. Fatnaðurinn höfðar mögu- lega betur til hinnar hefðbundnu konu enda flest af því sem sýnt er sérlega klæðilegt. Mikið er af skemmtilegum viðburðum á tískuvik- unni þar sem tískuritstjórum, blaðamönnum og bloggurum gefst tækifæri til að kynnast hver öðr- um og merkjunum betur. Þá skemmir ekki að vera keyrð milli staða á Fiat 500 í boði tískuvikunnar og njóta kampavíns með kollegum frá öllum heimshornum á milli sýninga. 8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 20% afsláttur Sími: 528 8800 drangey.is Smáralind Stofnsett 1934 Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Kíktu inn á drangey.is Ítarlegar upplýsingar á www.drangey.is Dömu- og herrahanskar Líka stórar stærðir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.