Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 59
8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Höfundur bókarinnar Secrets
of the Millionaire Mind er
heldur hógværari í sínum lof-
orðum til lesandans en höfundar
hinna bókanna, enda vísar titill-
inn einungis til þess hvernig ger-
ast má milljónamæringur, ekki
milljarðamæringur. Leiðin að því
marki ætti að vera ögn styttri.
Höfundurinn, T. Harv Eker,
segist í hógværð sinni geta á
fimm mínútum sagt fyrir um fjár-
hagslega framtíð einstaklings
sem hann hittir. Hann vill meina
að allt felist þetta í undirmeðvit-
und einstaklingsins. Hvernig þú
hugsar um peninga skiptir höf-
uðmáli að mati höfundar, ekki
hvað þú hefur lært í skóla um
fjármál og fjárfestingar.
Undirmeð-
vitundin lykill
að ríkidæmi
Bækurnar um Skúla skelfi hafa
löngum verið dáðar hér á landi.
Skúli skelfir er ekki eins og allir
hinir og í bókinni Heimsmeta-
bók Skúla skelfis dregur höfund-
urinn Francesca Simon fram
ýmis furðuleg og fyndin heims-
met sem Skúli hefur gaman af
að segja frá.
Í bókinni er sagt frá því hvað
stærstu nærbuxur í heimi eru
stórar, greint frá ógeðslegasta
ljóði í heimi og því hver er mest
selda bók heims.
Bókin er myndskreytt af Tony
Ross og það er Guðni Kolbeinsson sem þýðir.
Skúli skelfir heitir á frummálinu Horrid Henry og er eins
og nafnið gefur til kynna alveg skelfilegur í viðmóti og hátt-
um, en að sama skapi getur hann verið skelfilega fyndinn og
skemmtilegur.
SKELFIRINN SKELFIR OG
SKEMMTIR ENN Á NÝ
Út er komin bókin Alex eftir
franska spennusagnahöfundinn
Pierre Lemaitre. Höfundurinn
er vel þekktur og verðlaunað-
ur rithöfundur og handritshöf-
undur í heimalandi sínu. Hlaut
hann til að mynda Prix
Goncourt, frönsku bók-
menntaverðlaunin, fyrir bók
sína Au revoir là-haut sem
fjallar um fyrri heimsstyrjöld-
ina.
Hin hrollvekjandi spennu-
saga Alex er þó fyrsta bók
Lemaitre til að vera þýdd á
ensku, en hún kom út í enskri þýðingu árið 2013. Sú
þýðing hlaut Alþjóðlega rýtinginn það ár, en það eru
verðlaun Samtaka breskra glæpasagnahöfunda, CWA. Nú
er bókin komin út sem kilja í íslenskri þýðingu Friðriks
Rafnssonar. JPV gefur bókina út en Alex er hrollvekjandi
spennutryllir sem gerist í Parísarborg.
HROLLVEKJANDI ALEX
Milljarðamæringar hugsa einfaldlega
öðruvísi en annað fólk, segir höfundur
bókarinnar Think like a Billionaire,
Become a Billionaire, Scot Anderson.
Í bókinni einblínir hann á hugsunarhátt
þess sem hefur komist til efna.
Þeim sem þykir eftirsóknarvert að
læra um það hvað bærist um í huga Do-
nalds Trumps ætti að þykja mikið til bók-
arinnar koma. Höfundur heldur því fram
að með því að hugsa eins og millj-
arðamæringur getirðu orðið millj-
arðamæringur.
Nokkurs konar Trump-væðing heilans
kann því að eiga sér stað við lestur bók-
arinnar. Höfundur tekur á því hvernig
hugsa megi öðruvísi um áhættu, fjárfest-
ingar, vinnu, peninga, vandamál, und-
irbúning og tíma. Lesandinn þarf þó að
taka ábyrgð á afleiðingunum, en ef eitt-
hvað er að marka orð höfundar þá ættu
vasarnir einfaldlega að fyllast af aurum
við það eitt að lesa bókina og fara að
hugsa öðruvísi, meira eins og Trump.
Borað í heilann á
Donald Trump
Lesið til fjár
MILLJARÐASKRUDDUR
ÞAÐ VERÐA FÁIR RÍKIR AF ÞVÍ AÐ SITJA
HEIMA OG GERA EKKI NEITT. EN HVER VEIT
NEMA BÓKLESTUR GETI GAGNAST Á LEIÐ-
INNI AÐ RÍFLEGU RÍKIDÆMI? Í ÞAÐ
MINNSTA HAFA ÞÓNOKKRAR BÆKUR KOM-
IÐ ÚT Á SÍÐUSTU ÁRUM SEM VIRÐAST
SKRIFAÐAR TIL ÞESS AÐ LEIÐBEINA LES-
ANDANUM TIL AUKINNAR VELMEGUNAR.
Bókin Rich Dad Poor
Dad eftir fjárfestinn
Robert Toru Kiyosaki
varð strax umdeild eftir
að hún kom út árið
2000.
Bókina byggir Kiyo-
saki mikið til á sínu eig-
in uppeldi og hann gefur
ráð um hvernig kenna
eigi börnum að líta á
peninga. Virtir gagnrýn-
endur hökkuðu bókina í
sig þegar hún kom út og
sögðu ráðin ómerkileg og jafnvel hættuleg. Það
breytti því þó ekki að bókin hefur selst í yfir 26 millj-
ónum eintaka og var lengi á metsölulista The New
York Times.
Varhugaverð
metsölubók
Í bókinni How to be a Billionaire eftir fjármálasérfræðinginn Martin S. Fridson er kortlagt
hvernig það fólk, sem náð hefur þeim árangri að verða milljarðamæringar, hefur farið að.
Því er haldið fram að milljarðamæringar sem hafi auðgast á eigin verðleikum (þ.e. ekki erft
auðæfin) eigi það sameiginlegt að vera framúrskarandi í því að afla tekna … sem kannski ætti
ekki að koma á óvart. En í bókinni er greint frá því að ákveðnar aðferðir og sérstakan hugs-
anahátt þurfi til að komast á þann stað að geta talist milljarðamæringur. Í hverjum kafla er
farið yfir tiltekinn þátt sem stuðlað hefur að því að hinir og þessir mógúlar hafa komist frá
því að vera venjulegir fyrirtækjarekendur yfir í að verða auðjöfrar með milljarða í vösum.
Aðferðir þekktra viðskiptajöfra á borð við Sam Walton, stofnanda Wal-Mart, og Richard
Branson, stofnanda Virgin Atlantic, eru kortlagðar. Allt hugsað til þess að stytta lesandanum
leiðina í átt að stórkostlegum auðæfum.
Á Amazon-vefnum segir um bókina að hún sé hvorki meira né minna en handbók sem geti
nýst hverjum sem er sem á annað borð hefur áhuga á að brjótast til efna. Fyrir alla hina getur
hún eflaust verið áhugavert lesefni um karla með mikilmennskubrjálæði.
Ríkir karlar kortlagðir
BÓKSALA 28. JAN-3. FEB
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 AfturganganJo Nesbø
2 Schritte International 3
3 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
4 Schritte International 2 B+cd
5 Þekkir þú Línu langsokk?Astrid Lindgren
6 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
7 HafnfirðingabrandarinnBryndís Björgvinsdóttir
8 LjónatemjarinnCamilla Läckberg
9 DNAYrsa Sigurðardóttir
10 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
Íslenskur kiljur
1 AfturganganJo Nesbø
2 LjónatemjarinnCamilla Läckberg
3 Skugga- BaldurSjón
4 Bonita AvenuePeter Buwalda
5 Lífið að leysaAlice Munro
6 Hinumegin við fallegt að eilífuKatherine Boo
7 Ég man þigYrsa Sigurðardóttir
8 Rutt úr vegiLee Child
9 VilltCheryl Strayed
10 Fimmtíu gráir skuggarE. L. James
Út er komin ljóðabókin Tilvera í
máli og myndum. Höfundur bók-
arinnar er Halla Snorradóttir en
hún gefur bókina út sjálf undir
merkjum útgáfunnar Lindar í Hafn-
arfirði.
Halla er Hafnfirðingur í húð og
hár og hefur fengið við ljóðagerð
frá barnsaldri, orti sitt fyrsta ljóð
aðeins þriggja ára gömul. Ljós-
mynd af því ljóði handskrifuðu er
birt aftast í bókinni. Titill bók-
arinnar vísar til þess að í bókinni er
einnig að finna myndverk höfund-
arins. Höfundur á heiður af málverkum sem prýða forsíðu og
er að finna á síðum bókarinnar en hún hefur mikið fengist við
myndlist gegnum tíðina ásamt því að yrkja ljóð. Alls prýða 16
málverk höfundar ljóðabókina en myndlistaráhugi er Höllu í
blóð borinn. Auk þess að hafa stundað nám í ritlist við Há-
skóla Íslands hefur hún lokið námskeiðum í málun, vatnslitun
og módelteikningu. Bókin fæst í verslunum Eymundsson.
LJÓÐ OG MÁLVERK