Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2015
Vel gengur að safna sjálfboðaliðum
vegna Smáþjóðaleikanna sem settir
verða hér á landi 1. júní næstkom-
andi, að sögn Rögnu Ingólfsdóttur,
verkefnastjóra kynningarmála hjá
Íþrótta- og Ólympíusambandi Ís-
lands. Þegar hafa um 800 manns
gefið kost á sér en takmark móts-
haldara er 1.200 manns. Átakinu
„Býr kraftur í þér?“ var hrint af
stokkunum síðastliðið haust og þyk-
ir það hafa skilað góðum árangri.
Skrúfað verður fyrir skráningu 25.
febrúar næstkomandi, þannig að
nú fer hver að verða síðastur,
ætli menn að leggja leikunum
lið.
Sjálfboðaliðastörfin eru
fjölbreytt og reyna á mis-
munandi hæfileika og
kunnáttu fólks. Verk-
efnin eru meðal ann-
ars í veitinga-
miðstöð leikanna,
við setningar- og
lokaathöfn, við
verðlaunaafhend-
ingar og þjónusta
við fjölmiðla, auk
fylgdarmennsku við
keppnisliðin.
Í fréttabréfi leik-
anna, sem ÍSÍ gef-
ur út, gerir Brynja
Guðjónsdóttir,
verkefnastjóri
sjálfboðaliða, grein
fyrir ferlinu framundan.
Í mars verður hlutverkum og vökt-
um úthlutað til sjálfboðaliða. Í apríl
fer fram fatamátun og þjálfun sjálf-
boðaliða um land allt. Í maí verður
afhentur fatnaður, aðgangsskírteini
og gjafir frá samstarfsaðilum. Í júní
hefst svo veislan.
Lukkudýr Smáþjóðaleikanna kattferskt í snjónum í Reykjavík.
Morgunblaðið/Þórður
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR Í SUMAR
Vel hefur gengið að
safna sjálfboðaliðum
Peter Lindholm Jensen, trymbill
dönsku rokkhljómsveitarinnar
Disneyland After Dark, eða
D-A-D, lét fara vel um sig í volgu
vatni Bláa lónsins í byrjun febrúar
1995 enda ekki tekið út með sæld-
inni að lemja húðir fáklæddur í sjö
stiga frosti.
D-A-D-liðar voru staddir hér á
landi við tökur á tónlistar-
myndbandi við lag af plötunni
„Helpyourselfish“ og í baksíðu-
frétt Morgunblaðsins var viðraður
ótti þess efnis að hljóðfæri sveit-
arinnar væru að líkindum öll ónýt
eftir volkið í lóninu.
Myndatökumaður var Karl Ósk-
arsson, leikstjóri Thorleif Hoppe
og framkvæmdastjóri verkefnisins
á Íslandi var Hlynur Óskarsson.
Hljómsveitin hét Disneyland Af-
ter Dark á þessum tíma en neydd-
ist skömmu síðar til að breyta
nafninu í D-A-D eftir að Walt
Disney-samsteypan höfðaði mál á
hendur henni.
Binzer-bræðurnir, Jacob og Jes-
per, starfrækja D-A-D ennþá
ásamt Stig Pedersen og fagnaði
sveitin þrítugsafmæli sínu í fyrra.
Jensen sleppti kjuðunum hins veg-
ar árið 1999 og leysti Laust nokk-
ur Sonne hann af hólmi.
GAMLA FRÉTTIN
D-A-D
í lóninu
Peter Lindholm Jensen, trymbill D-A-D, makindalegur í Bláa lóninu fyrir
réttum tuttugu árum. Hann sagði skilið við sveitina fjórum árum síðar.
Morgunblaðið/RAX
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Howard Webb
knattspyrnudómari
Þorsteinn Joð
fjölmiðlamaður
Yanis Varoufakis
fjármálaráðherra Grikklands
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ÚTSÖLU-
MARKAÐUR
SÝNISHORN,
SÍÐUSTU EINTÖK
OG SMÁVARA
ALLT AÐ
70% AFSLÁTTUR
Fallegur grár sófimeðáklæði úr 100%bómull.
Tveggja sæta. L 144 cm. 179.900kr.
Þriggja sæta. L 204 cm. 199.900kr.
Stavanger-sófi
Þrjú innskotsborð. Hvítlakkaðar borðplötur og
fætur úr eik. 39.900kr.
Akato-sófaborð
Stóllmeð svörtu eðahvítu leðurlíki.
Fætur úr hvíttaðri eik. Sætishæð49cm.
19.900kr.
Plump-stóll
Kökudiskur á tveimur hæðum.1.995kr.
Kökudiskur á þremur hæðum.2.995kr.
Cookie-kökudiskur
Borðstofustóllmeð litaðri setu og krómfótum.
Einnig hægt að fámeðsvörtum fótum. 14.900kr.
Arosny-borðstofustóll
Ragna
Ingólfsdóttir