Morgunblaðið - 07.03.2015, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Samtök sjálfstæðra skóla héldu upp á tíu ára af-
mæli sitt með afmælishátíð í Flóa í Hörpu í gær.
Um 500 gestir nutu veitinga og dagskrár og
skemmtu sér vel eins og þessir starfsmenn leik-
skólans Vinaminnis í Breiðholti. „Við höfum náð
fram mörgum af okkar baráttumálum. Samt
þurfum við að standa saman áfram og halda vörð
um málefni okkar,“ sagði Sigríður Anna Guð-
jónsdóttir, formaður samtakanna.
Skemmta sér á afmælishátíð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samtök sjálfstæðra skóla fagna 10 ára afmæli
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárfestar sjá nú kauptækifæri í at-
vinnuhúsnæði enda sé viðbúið að
leiguverð taki að stíga eftir því sem
efnahagsbatinn heldur áfram.
Sjóðir tengdir sjóðastýringar-
fyrirtækinu GAMMA, sem eru í eigu
fjárfesta, eru þar á meðal, skv.
öruggum heimildum blaðsins.
Fulltrúi GAMMA var erlendis og
átti ekki kost á því að veita viðtal.
Það er þekkt úr hagfræði að við
djúpa kreppu taka skuldabréf fyrst
við sér í kjölfar þess að seðlabankar
lækka vexti. Þegar síðan sér fyrir
endann á kreppunni byrja hlutabréf
svo að hækka í verði. Töf er á þessari
hækkun enda verður tekjufall hjá
fyrirtækjum eftir kreppu.
Íbúðarhúsnæði er númer þrjú í
röðinni að bregðast við lægri vöxtum
eftir að atvinnusköpun hefst á ný.
Síðasta batamerkið í röðinni
Atvinnuhúsnæði er síðast í röðinni
og virðist nú komið að því. Á þenslu-
árunum byrjaði íbúðarhúsnæði að
hækka í verði 2004 og fylgdi atvinnu-
húsnæði í kjölfarið árið 2006.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, segir greinileg batamarki á
markaði fyrir atvinnuhúsnæði.
„Við finnum fyrir aukinni eftir-
spurn á ákveðnum svæðum. Þess
vegna höfum við haldið áfram að
vaxa og kaupa eignir. Eins og við
kynntum á uppgjörsfundi í síðustu
viku er nýtingarhlutfallið hjá okkur,
útleiguhlutfallið, nú 97%. Við eigum
von á því að það haldist þannig. Það
þýðir að varan hjá okkur er búin,“
segir Helgi og bendir á að eftir-
spurnin sé fyrst og fremst eftir
minni rýmum, t.d. fyrir iðnaðarhús-
næði. Síðustu mánuði hafi eftirspurn
eftir stærri einingum verið hægari.
Reginn sjái tækifæri í iðnaðarhús-
næði sem er ekki á dýrustu svæðum.
Ríkharð Ottó Ríkharðsson er
framkvæmdastjóri Nýja Norður-
turnsins hf., fimmtán hæða skrif-
stofuturns við Smáralind sem verður
tekin í notkun með haustinu.
Leiguverðið enn of lágt
„Eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði
er smám saman að aukast, samfara
hagvexti og minnkandi atvinnuleysi.
Það er þó nokkuð í að það verði eðli-
leg verðmyndun á þessum markaði.
Það borgar sig til dæmis ekki enn að
byggja nýtt atvinnuhúsnæði til leigu.
Hægt og sígandi nálgast þó sá
punktur,“ segir Ríkharð.
Annar viðmælandi hjá stóru fast-
eignafélagi sagði orðið mjög lítið orð-
ið til af 300-400 fermetra húsnæði til
leigu. Smám saman sé að skapast
þrýstingur á nýbyggingar.
Veðja á atvinnuhúsnæði
Fjárfestar horfa til aukinnar eftirspurnar Félög tengd GAMMA sjá tækifæri
Skýrt batamerki í hagkerfinu Styttist í að nýbyggingar standi undir kostnaði
Morgunblaðið/Ómar
Bati Leiguverð á atvinnuhúsnæði í
miðborg Reykjavíkur er á uppleið.
Georg Breiðfjörð Ólafsson í Stykk-
ishólmi hefur slegið aldursmet
Helga Símonarsonar á Þverá í
Svarfaðardal, sem hafði lifað lengst
allra íslenskra karla, í 105 ár og
345 daga, en Helgi lést sumarið
2001. Georg er orðinn 105 ára og
346 daga gamall en hann verður
106 ára 26. mars. Sonur hans Ágúst
Ólafur segir Georg vera heilsu-
hraustan og lífsglaðan. „Hann er
mjög minnugur og fylgist vel með
því sem er að gerast í kringum
hann.“
Ekki vill Ágúst þakka mataræð-
inu langlífi föður síns, sem hann
segir hafa verið mjög hefðbundið
en lítið um grænmeti og ávexti.
„Hann borðar þennan klassíska ís-
lenska mat en hefur alltaf hugsað
vel um heilsuna og aldrei unnið sér
til óbóta.“ Georg býr á dvalarheim-
ilinu í Stykkishólmi ásamt bróður
sínum, sem er orðinn 100 ára gam-
all. vilhjalmur@mbl.is
Elstur íslenskra karlmanna
Aldur Georg Breiðfjörð Ólafsson lætur ekki aldurinn á sig fá en er bæði lífs-
glaður og minnugur. Hinn 26. mars fagnar 106 ára afmæli sínu.
Björgunarsveitir á Austurlandi voru
komnar í var fyrir versta veðrinu rétt
fyrir klukkan tíu í gærkvöldi og á
góðri leið til byggða með tvo erlenda
gönguskíðamenn sem óskuðu að-
stoðar í gærmorgun. Mennirnir neit-
uðu að fara með björgunarsveitar-
mönnum til byggða á þriðjudag þegar
einn félagi þeirra var sóttur veikur á
jökulinn.
Friðrik Jónas Friðriksson, formað-
ur Björgunarfélags Hornafjarðar,
segir að rætt hafi verið við mennina á
þriðjudag og þeim gerð grein fyrir
versnandi veðri og beðnir um að
koma niður af jöklinum með björg-
unarmönnum. „Þeir neituðu að koma
niður af jöklinum og eins kom ekki til
greina af þeirra hálfu að færa sig neð-
ar,“ segir Friðrik.
Dýr og hættuleg aðgerð
Friðrik segir að alls hafi um 50
manns komið að björgunaraðgerðinni
í gær, sem hófst klukkan tíu í gær-
morgun og stóð fram á kvöld eða í
tæpa 12 tíma. „Tíu bílar sóttu menn-
ina, í hverjum bíl eru þrír menn og
síðan kemur fólk í svæðisstjórnum
einnig að þessari aðgerð.“
Veður var afleitt á jöklinum og seg-
ir Friðrik björgunarmenn hafa metið
aðstæður svo að ekki væri æskilegt
að senda vélsleða. „Þetta var enginn
skreppitúr eins og þegar við fórum á
þriðjudag. Við mátum áhættuna
þannig að við sendum bara bíla og
snjóbíl.“
Í ljósi þess að mennirnir neituðu að
koma niður á þriðjudag, þrátt fyrir
aðvörun, vaknar sú spurning hvort
herða þurfi reglur eða setja lög um
ferðir á hálendinu. „Við björgum fólki
í öllum veðrum, en það er ekki hlut-
verk okkar að setja reglur. Þetta er
hins vegar innan þjóðgarðs og for-
svarsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs
mættu skoða reglur um ferðalög inn-
an hans.“ vilhjalmur@mbl.is
Bjargað af
Vatnajökli
í gærdag
Neituðu að koma
niður á þriðjudag
Björgun Björgunarsveitir sóttu 2
erlenda ferðamenn á Vatnajökul.
Páskar á Kanarí
28. mars - 9. apríl
Verð frá kr.
á mann m.v. 2 fullorðna og tvö börn.
147.800 kr. á mann m.v. 2 fullorðna.
Flogið með Icelandair
119.900
SÍÐUSTU
SÆTIN