Morgunblaðið - 07.03.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
Vistfugl
alinn við kjör aðstæður
aukið rými ogútisvæði.
Hrein afurð
íslensk framleiðsla
óerfðabreytt fóður.
T
A
K
T
IK
/4
3
3
1
/f
e
b
1
5
ur vorboði í bæjarlífinu því þá vakna veitingastaðirnir
sem legið hafa í dvala yfir veturinn, til lífsins. Má þar
nefna Pottinn og Ljón norðursins. Það sem einnig ein-
kennir næstu mánaðamót fyrir utan upprisu veitinga-
manna er að grágæsirnar sem gist hafa Bretlandseyjar
í vetur fara að streyma í heimahagana. Bjartsýnustu
menn bera þá von í brjósti að frægasta gæs bæjarins,
SLN, skili sér þrátt fyrir að ekkert hafi sést til hennar í
fyrra.
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps undir stjórn Sveins
Árnasonar hélt tónleika í fyrrakvöld í Blönduóskirkju
fyrir fullu húsi við gríðarlega góðar undirtektir. Hljóm-
sveit Skarphéðins H. Einarssonar sá um undirleik á tón-
leikunum. Eftir frábærar viðtökur á Geirmundar verk-
efninu í fyrra þá langaði kórinn að halda áfram að flytja
dægurlög og ekki síst að halda áfram samstarfi við
hljómsveit Skarphéðins. Úr varð að taka valin lög Vil-
hjálms og Ellýjar og flytja þau, en Rögnvaldur Valbergs-
son hefur útsett lögin fyrir karlakór og hljómsveit, ásamt
Skarphéðni.
Í framhaldinu verða svo tónleikar á Hvammstanga
9. mars, Sauðárkróki 11. mars og svo í Miðgarði 22. mars.
Rétt er að geta þess einnig að Karlakór Bólstaðarhlíð-
arhrepps verður 90 ára á árinu og mun kórinn halda upp
á það í Húnaveri á síðasta vetrardag 22. apríl næstkom-
andi.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Syngja dægurlög Eygló Amelía Valdimarsdóttir söng einsöng með karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og gerði það vel.
Vorboðanna beðið með óþreyju
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Vínbúðin á Blönduósi sem verið hefur til húsa í gamla
bæjarhlutanum í 21 ár flutti um síðustu mánaðamót út
fyrir á, nánar tiltekið í hús sambyggt Arion banka við
Húnabrautina. Sá er þessar línur ritar hefur haft athvarf
fyrir sitt veraldarvafstur í litlu horni í gömlu vínbúðinni.
Nú er vínbúðin á braut og mannaferðum hefur eðlilega
örlítið fækkað vegna þess. Margir bæjarbúar hafa haft
nokkrar áhyggjur fyrir hönd bréfritara í „einsemdinni“
og jafnvel stungið upp á því að flytja hann með vínbúðinni
og koma honum fyrir í hraðbanka sem staðsettur er við
Arion banka. Náungakærleikurinn er enn við lýði.
Nýtt kaffihús byrjar rekstur um næstu mánaðamót í
bláa veitingahúsinu við sundlaugina sem á sínum tíma bar
nafnið Við árbakkann. Þetta hús hefur hýst yfir veturinn
mötuneyti fyrir grunnskólann en á því verður breyting
með tilkomu hins nýja kaffihúss sem mun kallast Ömmu-
kaffi. Til að mæta mötuneytisþörfinni er verið að innrétta
matsal í gamla íþróttahúsinu við grunnskólann.
1. apríl, dagurinn þegar leyfist að plata fólk, er örugg-
Ríkissaksóknari fór ekki fram á að
lögreglumaður, sem ákærður var í
svonefndu LÖKE-máli, sæti refsingu
þegar málflutningur fór fram í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær.
Þá mun málskostnaður falla á rík-
ið. Ákæruvaldið fer engu að síður
fram á sakfellingu mannsins fyrir
brot gegn þagnarskylduákvæði.
Þrír einstaklingar höfðu upp-
haflega stöðu grunaðra í málinu en
það snerist um meintar ólögmætar
uppflettingar á nöfnum tuga kvenna í
málaskráarkerfi ríkislögreglustjóra,
sem nefnt er LÖKE. Fallið var frá
málinu gegn tveimur mannanna, lög-
manni og starfsmanni upplýsinga-
tæknifyrirtækis, á síðasta ári en lög-
reglumaðurinn ákærður.
Á fimmtudag ákvað ríkissaksókn-
ari að falla frá öðrum af tveimur
ákæruliðum, þeim sem fjallaði um
uppflettingar lögreglumannsins í
málaskrárkerfi lögreglunnar. Hafi
frekari gagnaöflun ákæruvaldsins
eftir útgáfu ákærunnar leitt til þess
að ekki sé unnt að útiloka að í meiri
hluta tilvika hafi uppflettingarnar
tengst starfi lögreglumannsins.
Garðar St. Ólafsson, verjandi lög-
reglumannsins, sagði við mbl.is, að
fyrsti ákæruliðurinn hafi verið til-
kominn af annarlegum hvötum og nú
hafi það verið upplýst. Ekki hafi ver-
ið staðið með eðlilegum hætti að
rannsókn málsins hjá lögreglunni á
Suðurnesjum. Hins vegar hafi emb-
ætti ríkissaksóknara ekki haft þor til
þess að falla alfarið frá málinu og
„rassskella“ þar með lögregluna.
Embættið vilji frekar að dómari
sýkni í málinu. En með því að fara
þess á leit við dómara að ríkið greiddi
málskostnaðinn og engin krafa yrði
gerð um refsingu í málinu væri í raun
verið að viðurkenna sakleysi skjól-
stæðings hans.
Aðspurður segist Garðar eiga von
á því að lögreglumaðurinn snúi aftur
til starfa, sama hvernig málið fari,
þar sem ekki sé gerð krafa um refs-
ingu. Menn hafi snúið aftur til starfa í
lögreglunni eftir að hafa verið dæmd-
ir til þess að greiða sektir en engin
refsikrafa sé gerð í þessu tilfelli.
Ekki krafist refs-
ingar í Löke-máli
Málskostnaður fellur á ríkið
Dómur Héraðsdómur Reykjavíkur.
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
13,2% þeirra sem leituðu til Stíga-
móta á síðasta ári vegna kynferðis-
ofbeldis kærðu brotið til lögreglu.
Þetta kemur
fram í árs-
skýrslu Stíga-
móta sem kynnt
var í gær.
Jafnframt
kom fram að
79,7% hefðu
neitað að kæra
brotið á meðan
1,2% voru óviss.
Upplýsingar
vantaði um 25 af 423 einstakling-
um eða 5,9%.
Á blaðamannafundi sem haldinn
var í tilefni skýrslunnar sagði Guð-
rún Jónsdóttir, talskona Stíga-
móta, að útskýring á þeim litla
fjölda sem kærði væri mögulega
sú að þeir sem leituðu til Stíga-
móta gerðu það aðeins til að hjálpa
sjálfum sér. „Fæst þeirra sem
koma hingað eru í hefndarleit eða
ætla að kæra. Fólk kemur hingað
til að öðlast aukin lífsgæði eftir að
brotið er á því,“ sagði Guðrún.
Á vitlausum stað
Bætti hún við að þrátt fyrir að
þessar tölur sýndu bara þá sem
leituðu til Stígamóta gæfu tölurnar
til kynna að langflest fórnarlömb
kynferðisofbeldis ákvæðu að kæra
ekki gerandann. „Ástæðurnar fyr-
ir því að kæra ekki eru margar,“
sagði hún á fundinum. „Fólk ýmist
treystir ekki réttarkerfinu eða á
erfitt með að segja frá. Sumir ótt-
ast ofbeldismanninn og ákveða
þess vegna að kæra ekki. En al-
gengasta ástæðan er skömm og
sektarkennd. Fólk lítur svo á að
það hafi verið á vitlausum stað,
með vitlausu fólki á vitlausum tíma
í vitlausu ástandi. Í skýrslunni
kemur jafnframt fram að afleið-
ingar kynferðisofbeldis séu mis-
munandi eftir kynjum. Konur sem
leituðu til Stígamóta í kjölfar brots
á síðasta ári nefndu margar
skömm, kvíða, depurð og lélega
sjálfsmynd sem erfiðustu afleið-
ingar kynferðisofbeldis. Karlar
nefndu einnig skömm, lélega
sjálfsmynd og sektarkennd en
einnig reiði. Er reiði eina afleið-
ingin sem karlar sem leituðu til
Stígamóta fundu fyrir í meiri mæli
en konur.
Konurnar hræddari
Ég leyfi mér að telja að karl-
arnir sem leita til okkar séu oft í
verra sambandi við tilfinningar
sínar og geri minna úr afleiðing-
unum,“ sagði Guðrún.
Sú staðreynd að karlar finna
frekar fyrir reiði en konur sagði
hún að ætti sér eina líklega
ástæðu. „Karlarnir finna fyrir
meiri reiði en konurnar og setja
frekar ábyrgðina þar sem hún á
heima; hjá gerandanum.“
Í skýrslunni mátti sjá að konur
sem leituðu til Stígamóta voru til
að mynda helmingi hræddari en
karlarnir og áttu helmingi erfiðara
með að lifa góðu kynlífi eftir of-
beldi.
Karlar reiðari en
konur eftir brot
Karlar setja ábyrgðina frekar hjá ger-
andanum Aðeins 13,2% kæra brotin
Færri mál en árið áður
» Heildarfjöldi viðtala hjá
Stígamótum 2014 var 2.146.
» Ný mál brotaþola voru 306
árið 2014 en 358 árið áður.
» Fjöldi ofbeldismanna var
423.
» 88,1% skjólstæðinga var
konur en 11,9% karlar.
» 92,7% gerenda voru karlar
en 5% konur. Upplýsingar
vantaði um 2,4% gerenda.
Guðrún Jónsdóttir