Morgunblaðið - 07.03.2015, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
ÁEvrópumóti einstaklinga,sem nú stendur yfir í Jerú-salem í Ísrael, er baristum 23 sæti í heimsbik-
arkeppni FIDE og Hannes Hlífar
Stefánsson á góða möguleika á því að
hreppa eitt þessara sæta en hann
vann skák sína í níundu umferð sem
fram fór á fimmtudaginn og reiknast
efstur þeirra fjölmörgu sem eru með
6 vinninga og er í 15. sæti.
Þegar þetta er ritað eru tvær um-
ferðir eftir og margt sem bendir til
þess að nái Hannes 7 vinningum úr
11 skákum dugi það honum til að
komast í heimsbikarkeppnina. Því
veldur að ýmsar breytur eru honum
hagstæðar, t.d. eru meðalstig and-
stæðinga hans óvenju há; hann hefur
t.a.m. aðeins teflt við einn skákmann
undir 2600 elo-stigum. En þetta
kemur allt á daginn þegar mótið
verður gert upp eftir lokaumferðina
sem fram fer á morgun, sunnudag.
Efstir eru Úkraínumaðurinn Kora-
bov, Tékkinn Navara og Rússinn
Najer, allir með 7 vinninga.
Frammistaða Hannesar reiknast
upp á 2706 elo sem er besti árangur
sem hann hefur náð í langan tíma.
Hann hefur unnið þrjá skákmenn
sem eru yfir 2600 elo-stigum og að-
eins tapað einni skák í mótinu. Guð-
mundur Kjartansson er einnig meðal
250 skákmanna sem hófu mótið. Bar-
áttuglaður skákmaður en þyrfti að
tefla af örlítið meira öryggi. Enn hef-
ur hann ekki gert eitt einasta jafn-
tefli! Hann hefur átt erfitt upp-
dráttar gegn stigahærri
andstæðingum: hefur unnið og tapað
á víxl og allar skákir sem hann hefur
teflt hafa unnist á hvítt. Hann er með
5 vinninga og er í 114. sæti.
EM Jerúsalem; 9. umferð:
Hannes Hlífar Stefánsson – Vikt-
or Erdos (Ungverjaland)
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3
d6 8. c3 O-O 9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11.
d4 Dc7 12. Rbd2 He8 13. Rf1 g6 14.
a4 Bd7 15. Bg5!
Ég er ekki viss um að Keres eða
aðrir sérfræðingar Tschigorin-
afbrigðisins hefðu verið ánægðir
með taflmennsku svarts sem ekki
hefur hirt um að skapa sér mótsspil
eftir c-línunni eða á miðborðinu. Með
þessum hellir hvítur sér út í barátt-
una um d5-reitinn.
15. … Bc6 16. Re3 cxd4 17. cxd4
Rc4?
Það er ekki auðvelt að finna góðan
leik en þessi er hreinlega slæmur, c4
– peðið sem nú birtist er augljós
veikleiki.
18. Rxc4 bxc4 19. Dd2 Bb7 20.
Hac1 Hac8 21. Bb1 Db8?!
Drottningin stendur ekki vel á b7,
betra var 21. … a5.
22. d5! Rh5 23. Ba2 c3 24. Hxc3
Hxc3 25. Dxc3 Bxg5 26. Rxg5 Dd8
27. Rf3 Rf4 28. h4!?
Í sjálfu sér ágæt lausn en einnig
kom til greina að leika 28. Bc4 og síð-
ar – Bf1.
28. … Dd7 29. g3 Hc8 30. De3
Hc2?!
Þetta lítur ágætlega út en senni-
lega var betra að reyna 30. … Rh3+
31. Kg2 Hc2 32. He2 Hxe2 33. Ddxe2
Dxa4 34. Bc4 Dd7 þó að riddarinn
standi tæpt á h3.
31. Rg5 Dg4
Svartur virðist eiga von um mót-
spil en næsti leikur Hannesar kæfir
þær vonir.
32. Bb3! He2
Það er engan betri leik að finna,
32. … Hxb2 er svarað með 33. Bd1!
og vinnur.
33. Hxe2 Rxe2+ 34. Kh2 Rd4 35.
Dd3 Dc8 36. Bc4 a5 37. b3 Dc5 38.
Kg2 Dc7
Um leið og Erdos lék þessum leik
féll hann á tíma. Það sparaði honum
sennilega miklar þjáninar því til
lengri tíma litið er staða hans harla
vonlítil. Góðir leikir eru 39. h5 eða
39. Rf3. Eftir uppskipti á riddurum á
hvítur að geta leikið b3-b4 og eftir
það ræður svartur ekki við frelsingj-
ann á a-línunni.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Hannes Hlífar á góða
möguleika á sæti í
heimsbikarkeppninni
!" #" #
$ % &
"
#
'(
% !#
) *%
(
#" &
"
+!% !#
,&
"-
!%)
!%) %-
!%) # !%) # !%
./ 0)
12!%) &!%)
3!% #"
! • Menntaskólinn við Hamrahlíð
er ríkisskóli sem starfar
samkvæmt
framhaldsskólalögum.
• Hlutverk skólans er að
mennta nemendur til
stúdentsprófs með áherslu á
undirbúning fyrir nám í
háskólum.
• Markmið Menntaskólans við
Hamrahlíð er velgengni
brautskráðra nemenda og að
skólinn sé fyrirmynd um
framsækna kennslu, góða
stjórnsýslu og rækt við
menningu og listir.
• Í Menntaskólanum við
Hamrahlíð eru ólíkar þarfir
einstaklinga virtar og gengið
er út frá vilja nemenda til að
axla ábyrgð.
• Áhersla er lögð á fjölbreytni í
valhluta námsins og
kappkostað er að kynna
nemendum vinnubrögð sem
tíðkast í háskólanámi.
Það er æðimargt
sem kemur upp í hug-
ann þegar skyggnst er
um af bæjarhlaðinu
hjá gömlum manni,
sumt ánægjulegt, ann-
að miður. Hrundóm-
arnir koma fyrst upp í
hugann enda ræki-
legast tíundaðir, sann-
arlega kominn þarfur
uppgjörstími og ekki
meira um það. Hins
vegar vil ég segja, að það er ógæfu-
merki eða hefur þótt það í okkar ís-
lenzka samfélagi að veitast að liggj-
andi manni, hvað þá sparka í hann.
Og vangavelturnar um vistun sak-
borninga eru afar ógeðfelldar og
hverju í veröldinni eiga þær að
þjóna? Flugvallarmálið er eitt dæmi
um það þar sem menn vaða fram af
frekju og offorsi segjandi eins og
óþægir krakkar: Ég á, ég má. Þar
hljóta einhverjir undarlegir hags-
munir að vera á bak við. Rétt í þessu
var ég að heyra að þurft hefði að
nota neyðarbrautina svokölluðu og
einnig sagt af þeim sem þekkir vel
til, að í illviðrunum að undanförnu
hafi þetta gerst nokkrum sinnum. Sá
sem sagði mér bætti um betur og
sagði: „Hvað varðar þetta rauðvín-
slegna kaffihúsalið um það hvort
sjúklingar landsbyggðarinnar geti
átt örugga braut á flugvellinum þeg-
ar bráð lífshætta steðjar að?“ Hörð
orð en hann gat sjálfur trútt um tal-
að hafandi bjargast fyrir tilveru
neyðarbrautarinnar.
Ég var starfsmaður Öryrkja-
bandalags Íslands alllengi og þá
varð mér dagljóst mikilvægi góðrar
ferðaþjónustu fyrir fatlaða, þar var
unnið gott starf af hálfu
Sjálfsbjargar miðað við
þann annars þrönga
stakk fjárhagslega sem
þeim var skorinn. En
það heyrði til und-
antekninga að undan
sjálfri þjónustunni væri
kvartað, enda þekkti ég
starfsmenn þar að ein-
stökum eðliskostum,
þar sem fólkið sem
ferðast þurfti var alltaf
í fyrsta sæti. Nú virðist
annað uppi á teningnum og ætla ég
ekki að hafa mörg orð þar um, en
hart þótti mér að sjá og heyra að
hinum ágætustu fötluðu starfs-
mönnum sem fyrir voru skyldi vera
sagt upp af þeim ástæðum að þeir
gætu ekki unnið fullan vinnudag. Þá
er nú betra að hafa starfsmenn sem
skilja fatlaða eftir í reiðileysi eða
gjöra sig seka um aðra glópsku eða
hvað að dómi þeirra sem þarna ráða
nú ferð. Máske Eyjólfur hressist
þrátt fyrir allt eftir endalausa mis-
takaröð og augljósa handarbaka-
vinnu í aðdraganda breytinganna.
Og svo eru það fregnirnar um að
nú þurfi borgin að taka þjónustu úr
höndum Samhjálpar sem hefur innt
hana af hendi af stakri prýði. Það
veit ég af viðtölum við svo marga
fyrr og síðar, að þar var virkilega vel
að verki staðið. Finnst þeim sem
ráða ferðinni þarna niðri í Tjörninni
virkilega, að betur verði fyrir séð hjá
borginni hafandi ferðaþjónustu fatl-
aðra sem víti til varnaðar, svo ekki
sé meira sagt? En síðustu óstað-
festar fregnir herma reyndar að
menn hafi vitkast og er það vel.
Og svo eru það fregnirnar um að
það sama ríkisvald sem hefur gefið
þeim bezt settu milljarða á milljarða
ofan hefur nú sýnt reisn sína með því
að fjármagna ekki lengur endurhæf-
ingardeild þá á Hrafnistu sem hefur
verið svo mörgum dýrmæt. Þvílík
býsn, segi ég nú bara, en reyndar í
samræmi við ýmislegt annað sem
ekki skal tíundað hér, aðeins minnst
á 25 ára markið sem sett er á nem-
endur í framhaldsnámi sem af ein-
hverjum ástæðum hafa orðið fyrir
seinkunum í námi sínu.
En í lokin verð ég að víkja að því
áhugamáli mínu að sem allra flestir
megi verða frjálsir við hvers konar
fíkniefni, þar sem sannað er að
áfengið er mikilvirkasti skaðvald-
urinn. Samt eru til menn sem halda
það hina mestu nauðsyn að áfeng-
issala sé svo nærri fólki að hún verði
að vera í góðu göngufæri við hvern
og einn. Ekki síður vilja ótrúlega
margir gefa öllu lausan tauminn í
áfengissölunni, svo gróðapungarnir
megi græða sem allra mest á ógæfu
annarra. Mikið hefur það þó glatt
þessa menn þegar það fregnaðist að
janúarsala ÁTVR hefði verið rúmum
8% meiri en í janúar í fyrra. En þeir
hugsa eflaust að enn meira hefði nú
verið drukkið ef „frelsið“ hefði verið
við lýði og þá um leið hefði gróðinn
lent í öðrum og verðugri vasa að
þeirra dómi. En hvað sem öllu þessu
líður þá hækkar sól á lofti og daginn
lengir stöðugt og svo er farið að
grilla í vorkomuna ef maður er
bjartsýnn.
Þá birtir vonandi yfir útsýninu af
bæjarhlaði þess gamla.
Af bæjarhlaðinu
Eftir Helga Seljan
Helgi Seljan
» Þá er nú betra að
hafa starfsmenn
sem skilja fatlaða eftir í
reiðileysi eða gjöra sig
seka um aðra glópsku.
Höfundur er form. fjölmiðlanefndar
IOGT.
Erum við Íslendingar upp til hópa
sóðar? Ég er mikið á ferðinni í Ár-
bænum, fótgangandi eða í stræt-
isvagni, og tek eftir því að tyggjó-
klessur og sígarettustubbar rata
ekki rétta leið í ruslafötur. Eins er
mikið um það að fólk skilji eftir poka
við gáma sem eru orðnir fullir. Á
gámunum er þó símanúmer sem
hægt er að hringja í ef þeir eru orðn-
ir fullir. Tökum okkur á.
Árbæingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Sóðaskapur
Hrafnar og rusl Hér hafa tveir hrafnar komist í góðgæti.