Morgunblaðið - 07.03.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.03.2015, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015 ✝ Ólína K. Jón-asdóttir fædd- ist í Reykjarfirði á Hornströndum 21. nóvember 1930. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vestfjarða 27. febrúar 2015. Foreldrar henn- ar voru Alexandr- ína K. Benedikts- dóttir, f. 18.2. 1902, d. 1.9. 1988, frá Reykjarfirði, og Jónas Guðjónsson, f. 16.4. 1906, d. 10.4. 1981, frá Skjalda- bjarnavík. Alsystur eru Anna, f 19.7. 1927, Svanfríður Vigdís, f. 29.11. 1928, og Jensína Rósa, f. 9.6. 1932. Hálfsystkini (sam- feðra):, Högni, f. 11.12. 1933, d. 20.12. 1974, Kristján Knútur, f 19.11. 1934, d. 5.4. 1994, Mar- grét Kristín, f. 18.4. 1936, og Guðný Anna, f. 4.7. 1937, d. 30.10. 2012. Ólína hóf búskap með Krist- jáni Hilmari Lyngmo á Höfð- aströnd í Jökulfjörðum árið 1952, þau gengu í hjónaband árið 1953. Kristján fæddist á Ísafirði 17. mars 1931, for- eldrar hans voru Jónína Al- bertsdóttir, f. 25.6. 1904, d. 29.1. 1988, og Hilmar Lyngmo Hansen, f. 18.2. 1888, d. 1964. Kristján ólst að mestu upp hjá Guðjóni Kristjánssyni og Önnu eitt barn. Sonur Þórdísar er Ævar Þór, f. 1977, á hann eitt barn. 4. Jón Alberts, f. 1958, kvæntur Sigrúnu Ingadóttur, f. 1958, börn þeirra eru: Inga Dóra, f. 1985, maki Ari Arn- arson, f. 1982, eiga þau eitt barn. Ólína, f. 1990, maki Ingi- bjartur Bjarni Davíðsson, f. 1990, eiga þau tvö börn. 5. Kristinn Gunnar, f. 1959, kvæntur Halldóru Halldórs- dóttur, f. 1961, börn þeirra eru: Heiðar Þór, f. 1982, maki Mari Jacobsen, f. 1985. Halldór Hólm, f. 1985, maki Hugrún Linda Jóhannesdóttir, f. 1991. Sandra, f. 1988. 6. Sigrún, f. 1960. 7. Hilmar, f. 1963, kvænt- ur Sigríði Sigþórsdóttur, f. 1973, börn þeirra eru: Sigþór, f. 1998, og Eva Björg, f. 2000. 8. Jónas, f. 1969. 9. Berglind, f. 1974. Ólína stundaði nám við Kvennaskólann að Hverabökk- um í Hveragerði 1950-1951. Ól- ína og Kristján flytja til Ísa- fjarðar 1957 frá Höfðaströnd og hafa búið í Brunngötu 20 síðan 1960. Ólína var heima- vinnandi húsmóðir en tók einn- ig að sér að gera við og breyta fötum frá Kaupfélaginu og fleirum, gerði við vinnugalla fyrir Vélsmiðjuna Þór og Skipa- smíðastöð Marzelíusar. Prjón- aði hina ýmsu hluti og seldi. Einnig vann hún í Björnsbúð og um tíma sem stuðningsaðili fyr- ir barn á leikskóla. Hún bar út Morgunblaðið til margra ára. Úför Ólínu fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag, 7. mars 2015, kl. 14. Jónasdóttir, afa og ömmu Ólínu, í Skjaldabjarnarvík. Börn Ólínu og Kristjáns eru: 1. Guðbjörn Albert, f. 1953, d. 1954. 2. Guðmundur Óli, f. 1954, kvæntist Jónínu G. Krist- insdóttir, f. 1950, d. 2006. Núverandi maki Anette Han- sen, f. 1963. Börn Guðmundar og Jónínu eru: Sigurlína Jón- asdóttir (fósturdóttir), f. 1969, maki Magnús G. Gíslason, f. 1968, eiga þau þrjú börn. Linda, f. 1985, maki Haukur Ei- ríksson, f. 1982, eiga þau eitt barn. Börn Anette eru: Krist- rún, f. 1983, maki Ronni Berth Mortensen, f. 1978. Tómas Em- il, f. 1985, maki Elín Marta Ei- ríksdóttir, f. 1982 og eiga þau tvö börn. Edith, f. 1987, maki Jakob Örn Sigurðarson, f. 1982, og eiga þau tvö börn. 3. Sveinn Daníel, f. 1955, kvæntist Ingu Þorláksdóttur, f. 1958, þau slitu samvistum. Núverandi maki er Þórdís Steinþórsdóttir, f. 1950. Börn Sveins og Ingu eru: Krist- ján, f. 1980. Þorlákur, f. 1983, maki Jórunn Bjarnadóttir, f. 1979, eiga þau tvö börn. Brynj- ar, f. 1986, maki Hjördís Guð- mundsdóttir, f. 1992. Brynjar á Elskuleg tengdamóðir mín hef- ur fengið hvíldina. Vil ég þakka henni samfylgdina síðustu 18 árin. Ólína var einstök kona, ljúf og góð. Ég gat alltaf leitað til hennar, sama hvað það var þá gerði hún það sem hún gat til að aðstoða mig. Til dæmis þegar ég var með Sigþór lítinn og Evu Björgu viku- gamla þá var ég nýbúin að keyra Hilmar minn út á sjó, þá kom eitt- hvað yfir mig og ég bara gat ekki hugsað mér að fara ein heim. Ég hringdi í Ólínu og spurði hvort hún vildi koma með mér og börnunum heim og henni fannst það nú ekki mikið mál og kom hún með okkur, sem veitti mér mikinn stuðning. Þessi minning og margar aðrar munu ylja mér um ókomna tíð. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku Ólína, hvíl í friði. Þín tengdadóttir, Sigríður (Sigga). Elsku Ólína amma. Þegar ég var eins og hálfs árs vann ég í lífslottóinu og eignaðist annan pabba, þriðja settið af ömmu og afa og fullt af föður- systkinum og frændsystkinum. Ég varð strax ein af ykkur og gerði mér í raun ekki grein fyrir því að það væri ekki sjálfgefið fyrr en ég var komin með þó nokkurt vit, ég þekkti jú ekkert annað. Fyrir það er ég ævinlega þakklát og finnst ég svo rík að eiga svona mikið af góðu fólki í kringum mig. Það er skrítið að koma í Brunn- götuna og sjá þig ekki í sætinu þínu með prjóna eða bók í hönd. Þú varst mjög handlagin og prjón- aðir alveg fram á síðustu stundu. Ekki urðu verkin neitt mikið ein- faldari með árunum, útprjónaðir vettlingar á mjög fíngerða prjóna eða símunstraðir lopasokkar. Svo ekki sé talað um útsaumuðu púð- ana sem þú gafst langömmubörn- unum ein jólin. Við fjölskyldan njótum góðs af þessum verkum þínum og þú átt örugglega oft stóran þátt í því að hlýja mörgum af okkur á tánum. Það var svo gaman að þú skyld- ir koma í skírnina hans Davíðs Jóns núna í nóvember sl. og að þú hafir verið hér í borginni í tvær vikur. Langömmuskotturnar fengu að kynnast þér örlítið betur og voru fyrst svolítið feimnar við súrefnisslöngurnar þínar en voru fljótar að átta sig á að þarna var á ferðinni skemmtileg langamma sem gaman var að sniglast í kring- um í sófanum og hjúfra sig upp að. Elsku amma, við sem eftir sitj- um og kveðjum þig eigum fullt af yndislegum minningum um þig sem við varðveitum vel og þær veita okkur styrk á þessari kveðjustund. Þú varst yndisleg kona sem gott og gaman var að spjalla við og þú tókst alltaf jafn vel á móti mér og mínum þegar við komum vestur í heimsókn. Iðu- lega byrjaði og endaði jú vestur- ferðin í Brunngötunni hjá ykkur afa. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Með þessum orðum kveð ég þig í bili, amma mín, og ég trúi því að þú hafir það gott þarna hinum megin, sért frjáls eins og fuglinn og að handavinnan haldi sínu striki. Þín Inga Dóra. Elsku amma, við erum þakklát fyrir árin sem við áttum með þér og munt þú ávallt lifa í hjörtum okkar. Minningarnar eru margar eins og til dæmis þegar við vorum lítil fengum við oft fiskbúðing hjá þér og afa, einnig fannst okkur best að við máttum alltaf fá ís þegar við vildum. Við spiluðum stundum ólsen-ól- sen við þig og gátum við valið úr myndum til að horfa á í sjónvarp- inu. Þú varst alltaf svo dugleg að prjóna og sauma og prjónaðir mikið af vettlingum og sokkum fyrir okkur í gegnum árin. Elsku amma, við munum ylja okkur við allar þessar góðu minn- ingar sem þú gafst okkur. Sigþór og Eva Björg. Með örfáum orðum langar mig að minnast frænku minnar, Ólínu Jónasdóttur. Ég var bara sex ára þegar ég fór í sveit til ömmusystur minnar Alexandrínu Benedikts- dóttur móður Ólínu. Hjá henni var ég síðan hvert sumar öll mín bernskuár. Alla, eins og hún var kölluð, bjó þá í Reykjarfirði í Grunnavíkurhreppi. Hún giftist föðurbróður mínum Jónasi Guð- jónssyni og eignuðust þau fjórar dætur, þær Önnu, Svanfríði, Ólínu og Jensínu. Jónas og Alla skildu meðan dæturnar voru barnungar og ól Alla dæturnar upp ein. Alla keypti síðar helming jarðarinnar Höfð- astrandar í Jökulfjörðum og flutti þangað. En Anna, elsta dóttirin, bjó þá á næsta bæ. Hjá Öllu voru alla tíð í heimili móðir hennar Svanfríður Daníels- dóttir og maður hennar Þorberg- ur Samúelsson. Sem ung stúlka gekk Ólína alltaf að slætti með Bergi og vann þá á við hvern karl- mann. Mikil vinátta og virðing ríkti alla tíð milli Ólínu og Bergs. Allar voru systurnar fallegar stúlkur, Ólína ekki síst, með sitt fríða andlit, dökka mikla hár og spengilega vöxt. Ólína var rólynd, glaðlynd og hláturmild. Á heim- ilinu var alltaf rólegt og notalegt, engin læti eða rifrildi. Allir voru góðir hver við annan. Þarna var gott að vera. Ólína giftist Kristjáni Lyngmó, myndarlegum dugnaðarmanni, en hann var sonur Jónínu, sambýlis- konu Jónasar, föður Ólínu. Það voru því nokkuð óvenjuleg fjöl- skyldutengsl þeirra hjóna, þar sem þau áttu sameiginlegar hálf- systur. Ólína og Kristján hófu búskap á Höfðaströnd en árið 1957 flytja þau ásamt Öllu til Ísafjarðar. Þar festu þau kaup á húsi á Brunngötu 20 og áttu sitt heimili þar upp frá því ásamt Öllu. Það sýnir vel mannkosti þeirra Kristjáns og Ólínu að um tíma átti heimili hjá þeim móðir Kristjáns og einnig tóku þau Jónas föður Ólínu til sín, eftir að hann var orð- inn heimilislaus einstæðingur, þótt Ólína hefði haft lítið af honum að segja um ævina. Ólína og Kristján eiga átta börn, sex syni og tvær dætur, allt hið mesta myndar- og dugnaðar- fólk. Eitt barn, dreng, misstu þau kornungt. Má geta nærri hve erfið lífsreynsla það hefur verið ungri móður. Ólína var vel gefin, vel lesin og minnug. Hún fór ung á hús- mæðraskóla en það nám þótti henta verðandi húsmæðrum mjög vel. Ólína átti vissulega eftir að standa fyrir stóru heimili síðar. Síðustu árin átti Ólína við van- heilsu að stríða, en sýndi sama jafnaðargeð og ævinlega. Í hvert skipti sem ég kom til Ísafjarðar fór ég í heimsókn á Brunngötuna. Alltaf mætti manni sama hlýjan og elskusemin. Það er líka gott að hafa átt sumrin hjá Öllu, Svanfríði ömmu, Bergi og systrunum, þaðan á ég yndislegar bernskuminningar Ég vil að lokum þakka Ólínu samferð á ævinnar vegi, þegar leiðir skilur um sinn. Kristjáni og börnum þeirra Ólínu votta ég inni- lega samúð og systkini mín senda einnig fjölskyldunni samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Ólínu Jón- asdóttur Þrúður Kristjánsdóttir, Búðardal. Þegar ég sest niður og hugsa um hana Ólínu koma upp í hugann tryggð og vinátta. En af því átti hún nóg, vináttu og tryggð, sem hún sýndi ömmu minni í gegnum tíðina. Hún kom alltaf á Bakkana klukkan þrjú á hverjum degi og þær drukku saman; önnur kaffi og hin mjólkurbland, og ræddu málin eða skoðuðu handavinnu hvor hjá annarri. Hún hafði kannski prjón- að sokkabuxur eða nærboli sem voru alltaf þarfaþing hjá ungum börnum, svo ég tali ekki um flottu vestfirsku vettlingana sem komu frá henni og yljuðu mörgum hönd- um. Ólína og Kitti frændi voru part- ur af lífi mínu alla tíð, fyrst norður á Höfðaströnd, þegar ég sjö ára fór sem barnapía hjá þeim, síðan hér á Ísafirði þegar þau fluttu hingað, um tíma bjuggu þau á neðri hæðinni hjá okkur ömmu. Barnahópurinn var stór, sjö börn eru nú uppkomin en elsta barnið lést ungt. Ásamt börnunum var móðir hennar hjá henni alla tíð og síðar faðir hennar og oft tengda- móðir. Það sannaðist þá að þar sem hjartahlýjan er er alltaf pláss, því ekki voru húsakynnin stór. Ól- ína vann verkin sín vel, faldaði buxur fyrir verslun hér í bæ, gerði við vinnugalla o.fl. Hún bar út Morgunblaðið í neðri bænum í fjöldamörg ár. Nú er vinnudegi lokið hjá þér, Ólína mín, og þú hefur fengið hvíldina, þakka þér alla þína tryggð og vináttu í gegnum tíðina. Við hjónin sendum fjölskyld- unni okkar innilegustu samúðar- kveðju. Blessuð sé minning þín. Kristjana Sigurðar (Kiddý). Ólína K. Jónasdóttir ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19 • 210 Garðabær sími 842 0204 • www.harpautfor.is Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA MARGRÉT BJARNADÓTTIR, Stella, Lautasmára 1, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 27. febrúar. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 13. mars kl. 15. . Björn Gunnlaugsson, Regína W. Gunnarsdóttir, Stefán Bjarni Gunnlaugsson, Ólöf Jónsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ÞORGRÍMSDÓTTIR, Karfavogi 37, Reykjavík, lést 26. febrúar á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 10. mars kl. 13. . Hallgrímur P. Oddsson, Matthea Guðný Ólafsdóttir, Þorgrímur Hallgrímsson, Gyða Jónsdóttir, Oddur Hallgrímsson, Sigríður Kristín Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar og mágur, ÞÓR GUÐMUNDSSON, Hlíðarhúsum 5, Reykjavík, lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi 28. febrúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Aldís Ólöf Guðmundsdóttir, Hilmar Svavarsson, Margrét María Guðmundsdóttir, Jón Þór Þorbergsson, Brynja Guðmundsdóttir, Arnór Einarsson, Magnús Guðmundsson, Bergljót Einarsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KRISTJANA F. ARNDAL listmálari, er látin. Útförin verður auglýst síðar. . Þorgeir Þorgeirsson, Bergur Þorgeirsson og fjölskylda, Lilja Þorgeirsdóttir og fjölskylda, Finnur Þorgeirsson og fjölskylda, Fjóla Þorgeirsdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN HOFFMANN, áður til heimilis að Flókagötu 43, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 4. mars 2015. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Hans Indriðason, Erla Einarsdóttir, Níels Indriðason, Guðlaug Ástmundsdóttir, Indriði Indriðason, Anna Toft, Gunnar Indriðason, Hildur Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Indriðadóttir, Kristinn Karlsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.