Morgunblaðið - 07.03.2015, Page 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
Sigmar ÓlafurMaríussongullsmiður
fæddist 8. mars 1935 í
Hvammi í Þistilfirði.
Hann flutti til Reykja-
víkur 1957 ásamt
unnustu sinni og
seinna eiginkonu,
Þórdísi Jóhanns-
dóttur. Unga parið
stóð þá á tímamótum
þar sem Sigmar hafði
lent í alvarlegu slysi
árið áður og misst
báða fætur. Þau eign-
uðust heimili á
Rauðalæk þar sem
þau bjuggu á fyrstu
árum Sigmars í gull-
smíðanáminu en 1970
fluttu þau að Suð-
urbraut 9 í Kópavogi
þar sem Sigmar býr
enn. Þau eignuðust
fimm börn: Sigrúnu
Ásu, Berglaugu
Selmu, Svan Mar, sem lést ungur, Hönnu Maríu og Þórdísi Höllu. Sam-
býliskona Sigmars til ársins 2000 var Ragnheiður Ríkarðsdóttir og
eignuðust þau dótturina Áslaugu. Afabörn Sigmars eru 10, langafa-
börn orðin 11 og afkomendur því samtals 27.
Sigmar stofnaði fyrirtækið Módelskartgripi árið 1964. Lengst af
var það til húsa á Hverfisgötu 16a en í seinni tíð á Suðurbraut 9. Á
báðum stöðum hefur alltaf verið gestkvæmt, heitt á könnunni og
blómlegt mannlíf. Sigmar var virkur í íþrótta- og félagsstarfi. Hann
stundaði lyftingar af kappi, var í Íþróttafélagi fatlaðra og keppti
t.a.m. á Ólympíuleikum fatlaðra. Hann tók einnig þátt í ferlimálum
fatlaðra m.a. með nefndarstörfum. Hann var gerður að heiðursfélaga
Sjálfsbjargar og fálkaorðuna fékk Sigmar 1994 fyrir félagsstörf í
þágu fatlaðra. Gullsmíðafélagið á mikið í Sigmari en þar var hann for-
maður og gjaldkeri um árabil og hlaut heiðursskjal félagsins 2004.
Snemma á ævinni fór Sigmar að safna gömlum hlutum svo úr varð
mikið safn alþýðuhluta sem fyrir nokkrum árum var komið fyrir í
byggðasafni á Sauðanesi á Langanesi. Annað áhugamál er málaralist en
hann hefur sótt málaranámskeið og safnað að sér verkum um árabil.
Sigmar heldur upp á daginn með nánustu fjölskyldu.
Sigmar Ólafur Maríusson er áttræður
Gullsmiður Sigmar rak Módelskartgripi.
Lét ekki alvarlegt
slys hindra sig
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Íris
Anna Arnarsdóttir
Bergmann fæddist
25. desember
2013. Hún vó 2.995
g og var 48 cm
löng. Foreldrar
hennar eru Ýr
Hnikarsdóttir og
Arnar Már
Bergmann.
Nýr borgari
Þ
orbjörn fæddist í Reykja-
vík 7.3. 1965 en flutti með
fjölskyldunni í Borgar-
nes þegar hann var sjö
ára og lauk þar grunn-
skólaprófi: „Ég á margar góðar minn-
ingar frá þessum fallega bæ og óvið-
jafnanlegri fjallasýninni þaðan þegar
vel viðrar. Á bernskuárunum dvaldi
ég oft í Sumarhúsum í Skagafirði hjá
afa mínum og ömmu, Brodda og Frið-
riku, og hjá afa og ömmu í Hvera-
gerði, Stefáni og Elínu. Auk þess var
ég í sveit á sumrin á Kvíum í Þverár-
hlíð frá 12 ára og til 15 ára aldurs.
Þessi ár hafa eflaust ýtt undir áhuga
minn á náttúrunni, dýrum og
jurtum.“
Þorbjörn var í MR: „Fyrsta
menntaskólaveturinn bjó ég hjá
Brodda afa mínum sem reyndist mér
vel í dönsku- og þýskunámi.“ Þor-
björn lauk stúdentsprófi 1985, stund-
aði síðan nám í læknadeild HÍ og fékk
lækningaleyfi 1992, var síðan þrjú ár í
unglæknisstöðu á lyflækningadeild
og svæfinga- og gjörgæsludeild
Landspítala og hélt síðan til Madison
í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum þar
sem hann lauk sjö ára sérnámi í
Þorbjörn Guðjónsson, læknir og hjartasérfræðingur – 50 ára
Á Hornströndum Þorbjörn og Þórdís nota hvert tækifæri til að ganga á fjöll og ráfa um óbyggðir landsins.
Göngugarpur og golfari
Hundavinur Þorbjörn hefur átt hunda um árabil og sinnir nú hundarækt.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is