Morgunblaðið - 07.03.2015, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2015
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Hljómsveitin Singapore Sling
heldur tónleika í kvöld á skemmti-
staðnum Húrra í tilefni af útgáfu
plötu sinnar The Tower of For-
onicity. Þá er platan Psych Fuck
væntanleg í sumar. Blaðamaður
ræddi stuttlega við Henrik
Björnsson, söngvara og gítarleik-
ara sveitarinnar, um plötuna og
það sem framundan er.
Meira stuð
-Hvernig eru þessar tvær plöt-
ur, The Tower of Foronicity og
Psych Fuck, frábrugðnar fyrri
plötum Singapore Sling?
„Þær eru meira stuð.“
-Er um eina heild að ræða og ef
svo er, hví var ákveðið að gefa
verkin út sitt í hvoru lagi?
„Ég var með svo mörg lög að
þau komust ekki fyrir á einni
plötu. Ég íhugaði að gera tvöfalda
plötu en sá að það hefði verið of
stór biti. Ég ákvað því að gera
tvær plötur. Þær eru hvor um sig
einstæð heild þótt þær tengist
auðvitað þar sem þær voru teknar
upp á sama tíma og sama stað,“
segir Henrik.
-Hvað er Foronicity?
„Það mun vera foronía á ís-
lensku, þ.e.a.s. fáránleiki.“
-Eru textarnir á plötunni að ein-
hverju leyti ádeila á Reykjavík og
Íslendinga, samanber lagið „Ab-
solute Garbage“? Er Reykjavík
þreyttari en aðrar borgir?
„Ég veit ekki hvort Reykjavík
er þreyttari en aðrar borgir. Ég
bara þekki Reykjavík betur en
aðrar borgir. Þetta er örugglega
svipað alls staðar. Allir fastir í
einhverri tilgangslausri lúppu, ét-
andi skít daginn út og daginn
inn.“
Mannabreytingar tíðar
-Sveitin hefur tekið þónokkrum
stakkaskiptum að mér skilst,
hverjir eru um borð í bandinu sem
stendur?
„Mannabreytingar eru tíðar í
Singapore Sling. Þeir sem hafa
áhuga á að vita hverjir eru í band-
inu núna geta séð það á laugar-
daginn.“
-Hvernig verður tónleikunum á
Húrra háttað, verða lög af báðum
plötum tekin? Hvað með eldri lög?
„Við munum einbeita okkur að
lögum af The Tower of Foronicity
og einnig taka nokkur gömul.
Engin lög af Psych Fuck núna.
Við einbeitum okkur að þeim þeg-
ar Psych Fuck kemur út í sumar.
Það stóð reyndar til að hún kæmi
út núna í mars en útgáfu hefur
verið frestað um þrjá mánuði.“
-Sveitin Pink Street Boys hitar
upp, ná sveitirnar tvær vel sam-
an?
„Já við náum vel saman og Pink
Street Boys er eitt af mínum
uppáhaldsböndum í dag.“
-Þið leggið síðan af stað í tón-
leikaferðalag, hvert verður farið?
„Við hefjum tónleikaferðalagið í
Englandi þar sem við spilum í
London, Bristol og Manchester.
Síðan förum við til meginlandsins.
Þar spilum við nokkra tónleika í
Frakklandi, Þýskalandi og á Ítal-
íu. Svo spilum við einnig í Vín,
Ljubljana og Brussel.“
Ljósmynd/Heiða Jónsdóttir
Dulúð Kynningarmynd fyrir Singapore Sling, sveipuð dulúð. Henrik segir plöturnar The Tower of Foronicity og
Psych Fuck frábrugðnar fyrri plötum Singapore Sling að því leyti að þær séu meira stuð.
„Allir fastir í einhverri
tilgangslausri lúppu“
Singapore Sling fagnar útgáfu The Tower of Foronicity
á Húrra Tónleikaferðalag um Evrópu framundan
Ljósmynd/Heiða Jónsdóttir
Forsprakkinn Henrik Baldvin
Björnsson úr Singapore Sling.
Una Björg Magnúsdóttir opnar í
dag kl. 17 sýninguna TENDER
BEND í Kling & Bang galleríi á
Hverfisgötu. Er það fyrsta einka-
sýning Unu. „Grunnhugmyndir um
skúlptúr, teikningu og eiginleika
gjörningsins koma við sögu í TEN-
DER BEND, skv. tilkynningu, bið,
spenna, endurtekning og hið ein-
staka augnablik eigi sér stað sam-
tímis. Una útskrifaðist með BA-
gráðu frá myndlistardeild Listahá-
skóla Íslands í fyrravor.
„Um sýningarrýmið hlykkjast
sérsmíðuð braut sem lagar sig laus-
lega að formi rýmisins. Tveir kapp-
akstursbílar með hvítt blað á milli
sín keyra stöðugt eftir brautinni.
Þessi skúlptúr ferðast fjálglega eft-
ir henni og leggur þannig áherslu á
teikningu brautarinnar, teikningu
sem reiðir sig á form rýmisins.
Sviðsett teikning, sem endurtekur
sig út í það óendanlega,“ segir m.a.
í tilkynningu og vitnað í Unu sem
segir hugmyndina að brautum hafa
vaknað þegar hún kíkti inn um
glugga hjá fatahreinsun. „Hún var
að vísu lokuð og allt slökkt, en fata-
brautin ef svo má kalla, liðaðist
ótrúlega fallega um litla og þrönga
rýmið. Hún hafði verið sérsmíðuð
inn í þetta rými til þess að nýta það
sem best,“ segir Una sem sérsmíð-
aði slíka braut fyrir sýninguna í
Kling & Bang. Hluta hennar má sjá
á meðfylgjandi ljósmynd.
Fyrsta einkasýning Unu Bjargar
Braut Hluti af verki á sýningu Unu.
Tónleikasýningin
TINA – drottning
rokksins verður
frumsýnd í Eld-
borg í Hörpu 2.
maí nk. Á morgun
kl. 14-18 verða
haldnar dans-
prufur í World
Class í Laugum
og leitað að fjór-
um kvenkyns dönsurum, 18 ára og
eldri, fyrir hlutverk í sýningunni
sem verður einnig flutt í Hofi á Ak-
ureyri. Þær sem vilja spreyta sig
verða að skrá sig með tölvupósti,
senda nafn, símanúmer og upplýs-
ingar um fyrri verkefni á rigg-
@rigg.is og merkja „Dansprufur
Tina“. Danshöfundur sýningar-
innar er Yesmine Olsson, Filippía
Elísdóttir sér um búninga og stjórn-
andi er Friðrik Ómar Hjörleifsson.
Leitað að dönsurum
fyrir Tinu-sýningu
Yesmine Olsson
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Lau 7/3 kl. 19:00 2 k. Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 16/4 kl. 19:00 14.k
Sun 8/3 kl. 19:00 3.k. Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Fös 17/4 kl. 19:00 15.k
Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas.
Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00
Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fim 23/4 kl. 19:00
Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Fös 24/4 kl. 19:00
Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Sun 26/4 kl. 19:00
Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Mið 29/4 kl. 19:00
Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Sun 12/4 kl. 19:00 13.k
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 8/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00
Lau 14/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00
Sun 15/3 kl. 13:00 Lau 11/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00
Lau 21/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00
Sun 22/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 20/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k
Sun 22/3 kl. 20:00 2.k Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k
Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k
Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k
Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Fös 10/4 kl. 20:00 aukas. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 7/3 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Fim 12/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00
Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Lau 7/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 21/3 kl. 19:30 28.sýn
Sun 15/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 29/3 kl. 19:30 29.sýn
Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins.
Konan við 1000° (Stóra sviðið)
Lau 14/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 20/3 kl. 19:30 52.sýn
Aukasýningar á Stóra sviðinu.
Karitas (Stóra sviðið)
Sun 8/3 kl. 16:00 Aukas. Sun 8/3 kl. 19:30 36.sýn
Allra síðustu sýningar.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 7/3 kl. 13:30 Sun 15/3 kl. 13:30 Sun 22/3 kl. 13:30
Sun 8/3 kl. 13:30 Sun 15/3 kl. 15:00 Sun 22/3 kl. 15:00
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 7/3 kl. 14:00 5.sýn Lau 14/3 kl. 16:00 8.sýn Lau 28/3 kl. 14:00
Lau 7/3 kl. 16:00 6.sýn Lau 21/3 kl. 14:00 Lau 28/3 kl. 16:00
Lau 14/3 kl. 14:00 7.sýn Lau 21/3 kl. 16:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
Segulsvið (Kassinn)
Fim 12/3 kl. 19:30 Frums. Fim 19/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 26/3 kl. 19:30 5.sýn
Fös 13/3 kl. 19:30 2.sýn Sun 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/3 kl. 19:30 6.sýn
Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Minnisvarði (Aðalsalur)
Lau 7/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 27/3 kl. 20:00
Mið 11/3 kl. 20:00 Sun 22/3 kl. 20:00 Sun 29/3 kl. 20:00
Fös 13/3 kl. 20:00 Mið 25/3 kl. 20:00
Eldbarnið (Aðalsalur)
Sun 8/3 kl. 14:00
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar (Aðalsalur)
Fim 26/3 kl. 20:00