Morgunblaðið - 24.03.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015
Árin segja sitt1979-2014
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sýnum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
)553 1620
Verið velkominn
Ljósmynd/Benedikt Hermannsson
Leikarar Litli leikklúbburinn setur upp leikrit sem fjallar um leikhóp á landsbyggðinni, sem setur upp leikrit.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Okkur fannst tilvalið að setjaupp þetta leikrit. Það erskemmtilegt og mjög kald-hæðið en það er alltaf gott
að gera grín að sjálfum sér,“ segir
Steingrímur Rúnar Guðmundsson,
formaður Litla leikklúbbsins á Ísa-
firði, en áhugaleikfélagið fagnar 50
ára afmæli sínu á þessu ári með því
að setja upp leikritið Kallarðu þetta
leikrit?! Leikritið var frumsýnt 21.
mars og verður sýnt fram að afmæl-
inu 24. apríl næstkomandi en Litli
leikklúbburinn var stofnaður árið
1965 þegar Leikfélag Ísafjarðar lagði
upp laupana.
Leikritið er eftir Ágúst T.
Magnússon en hann er formaður
Leikfélagsins á Seyðisfirði en um-
rætt leikrit var einmitt afmælisverk
Leikfélags Seyðfirðinga árið 2008.
Steingrímur segir að þeim hafi þótt
tilvalið að setja þetta verk einnig upp
því það hafi fallið vel í kramið hjá
Austfirðingum.
Leikritið fjallar um lítið leikfélag
á landsbyggðinni sem baksar við að
setja upp leikrit en er í óvissu um
sögulok verksins því höfundur þess,
hirðskáld leikfélagsins, er kominn
með ritstíflu. Þá er voðinn vís því
leikstjórinn frá Reykjavík er væntan-
legur. Í leikritinu koma meðal annars
við sögu þrjár hurðir, söngvar, kossa-
flens og kinnhestar. Steingrímur vill
þó ekki meina að um farsa sé að ræða
heldur gamanleikrit sem hefur
sterka skírskotun til samtímans.
Leikstjórinn er Kári Halldór,
Gera grín að sjálfum
sér á afmælinu
Litli leikklúbburinn á Ísafirði fagnar 50 ára afmæli sínu á þessu ári en hann var
stofnaður 24. apríl árið 1965. Af því tilefni var settur upp gamanleikurinn Kallarðu
þetta leikrit?! eftir Ágúst T. Magnússon. Leikritið gerist í samtímanum og fjallar um
lítið leikfélag úti á landi sem er í óðaönn að setja upp leikrit en það gengur á ýmsu og
koma meðal annars við sögu þrjár hurðir, söngvar, kossaflens og kinnhestar.
Efalítið fyllast margir sem komnir eru
um og yfir miðjan aldur fortíðarþrá
þegar þeir vafra gegnum ofangreinda
vefsíðu sem Helgi Snorrason hefur
haldið úti um nokkurt skeið. Þar get-
ur að líta gamlar og nýjar ljósmyndir
sem og forvitnilegar upplýsingar um
átrúnaðargoð æskunnar sem spiluðu
og sungu á sveitaböllum og unglinga-
skemmtunum út um allar trissur
forðum daga.
Reyndar einskorðast vefsíðan ekki
við bítlatímabilið svokallaða heldur
er þar einnig alls konar fróðleikur um
unga sem aldna tónlistarmenn og
hljómsveitir af öllum stærðum og
gerðum. Vefsíðan er stöðugt í smíð-
um enda lengi hægt að bæta við upp-
lýsingum um einstaka tónlistarmann
eða hljómsveit, sögu þeirra og afdrif
til þessa dags. Helgi er virkur á face-
book þar sem hann kallar eftir mynd-
efni sem og á síðunni sjálfri.
Vefsíðan www.musicallovertheworlddotcom.wordpress.com
Morgunblaðið/Jim Smart
Tónlist Heimild um íslenskar og erlendar hljómsveitir og tónlistarmenn.
Músik um allan heim
Hafið og þær umhverfisógnir sem
að því steðja er þema Grænna daga
í Háskóla Íslands dagana 25. – 27.
mars. Grænir dagar eru röð við-
burða sem eiga að stuðla að vit-
undarvakningu um umhverfismál
sem og ábyrgð, skilningi og góðri
umgengni gagnvart hafinu.
Grænir dagar verða formlega
settir kl. 11 á morgun á Háskóla-
torgi. Síðdegis kl. 16 verður sýnd
heimildarmyndin Mission Blue í
Norræna húsinu, en í myndinni er
fylgst með sjávarlíffræðingnum
Sylviu Earle og samtökum hennar
berjast fyrir bættri umgengni við
sjóinn.
GAIA, félag meistaranema í um-
hverfis- og auðlindafræðum skipu-
leggur Græna daga í samvinnu við
Norræna Húsið og Mission Blue.
Endilega ...
... njótið
Grænna daga
Mynd Sylvia Earle sjávarlíffræðingur.
„Þetta var brjálæðislega skemmti-
legt og við komum sjálfum okkur
skemmtilega á óvart en við lentum í
öðru sæti í hraðakeppninni,“ segir
Brynja Björk Hinriksdóttir en hún tók
þátt í Mývatnssleðanum ásamt Hildi
Halldórsdóttur. Það er sleðakeppni
sem haldin er á Mývatni annað hvert
ár. Sleðarnir þurfa að vera heima-
smíðaðir, mega ekki vera vélknúnir.
Sleði stúlknanna sem þær nefndu frú
Brynhildi, var valinn sá vinsælasti af
áhorfendum. Brynja segir að líklega
hafi hann hreppt verðlaunin því hann
hafi verið heimilislegur. Þær buðu
upp á heitan drykk og var sætið ein-
staklega hlýlegt enda bólstrað. Efni-
viðinn í sleðann sóttu þær m.a. í
Góða hirðinn og voru einn dag að
setja hann saman.
Mývatnssleðinn haldinn í þriðja sinn
Frú Brynhildur heimilisleg
Sleði Brynja Björk Hinriksdóttir og Hildur Halldórsdóttir ánægðar með sleðann.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.