Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015 Þ órólfur fæddist í Fagra- dal í Dalasýslu 24.3. 1935 en ólst upp í Mikla- garði í Saurbæjar- hreppi, í Hrappsey á Breiðafirði og á Innra-Ósi í Stranda- sýslu. Hann flutti til Reykjavíkur 1954, lauk gagnfræðaprófi frá Hér- aðsskólanum á Laugarvatni 1955, hóf flugnám hjá Flugskólanum Þyt hf. 1956, lauk einliðaflugprófi það ár, einkaflugmannsprófi 1959 og at- vinnuflugmannsprófi 1963. Starfsferill Þórólfur stofnaði og starfrækti, ásamt Helga Jónssyni, Leiguflug Þórólfs Magnússonar og Helga Jónssonar frá 1963, stofnaði síðan, ásamt fleirum, Flugfélagið Vængi 1969 og var framkvæmdastjóri þess fyrstu árin en þeir starfræktu það til 1978. Hann var flugstjóri hjá Arn- arflugi 1978-90 og starfaði hjá Ís- landsflugi frá 1990 til starfsloka árið 2000, þá með um 25.000 flugstundir að baki. Hann stundaði eftir það járnabindingar með járnaflokki vaskra járnabindingamanna Ingvars Sveinbjörnssonar og fleiri fram að hruni. Árið 2013 stofnaði Þórólfur með syni sínum og vinum flugklúbbinn Vængir EHF og er þar stjórnar- formaður. Þórólfur átti sæti í stjórn FÍA 1978-84, fyrst sem varamaður og síð- an meðstjórnandi, sinnti síðar stöðu varamanns stjórnar FÍA frá 1992- 99. Þórólfur hefur sinnt áhugamálum sínum, m.a. skógrækt á Héraði ásamt skóg- og kartöflurækt við sumarafdrep sitt í Grímsnesi síðustu ár. Hann söng 2. tenór í Karlakór Reykjavíkur frá 1988 -2000 og er nú í eldri deild Karlakórs Reykjavíkur. Fjölskylda Eiginkona Þórólfs er Þorbjörg Júlíusdóttir, f. 24.3. 1944, fulltrúi og húsfreyja. Foreldrar hennar voru Þórólfur Magnússon, fyrrv. flugstjóri – 80 ára Fjölskyldan Þórólfur, Þorbjörg, Júlíus B., Jónína Helga, og Aðalheiður Dóra. Með 25 þúsund flug- tíma í rúma hálfa öld Gamalkunnir taktar Þórólfur í gömlu Piper Cup-vélinni sem hann lærði á. Halla Margrét Jóhannesdóttir er með námskeið í skapandi skrifum og kallast það Skrif og sköpun – ritsmiðja. „Á námskeiðinu hvet ég fólk til að skrifa og lifa skapandi lífi, taka ritstjórann af öxl sér og leyfa sér að gera meira og hugsa minna, allavega á meðan það er koma sér af stað. Oft stoppar fólk sig áður en það er komið af stað en það er í skrifum eins og í öðrum greinum og listum að það gerist ekki allt í einni töku. Oft þurfa að vera undanfarar þegar maður ætl- ar að vinna skapandi verk.“ Halla er menntuð í ritlist, leiklist og er einnig íþróttakennari. Hún hefur leikið, leikstýrt og gefið út ljóða- bók og þekkir því vel til sköpunarferlisins. „Sjálf er ég að skrifa ungmennabók, þar er fullt af undanförum í gangi. Ég les líka inn á hljóðbækur og er í ýmsum verkefnum. Áhugamálin eru mörg, ég fer á skíði og hef gaman af tónlist, fer á tónleika og hef verið í kirkjukór og kvennakór. Svo er ég í jóga sem bjargar lífi mínu og hjálpar mér að verða fimmtug. Ég er alveg búin að plana afmælisdaginn. Það verður farið í hátíðarjóga um morguninn, síðan verður lesið í stjörnurnar, farið í nudd og á nemendasýningu hjá Jazzballettskóla Báru en þar ætla ég að horfa á dóttur mína dansa og svo verður góður matur í kvöld.“ Eiginmaður Höllu er Sólmundur Már Jónsson, viðskiptafræð- ingur og aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar. Þau eiga þrjú börn: Jóhannes Kára 18 ára, Laufeyju 12 ára og Teit 11 ára. Halla Margrét Jóhannesdóttir er 50 ára Morgunblaðið/Rósa Braga Nikka Halla hefur gefið út eina ljóðabók og er með bókaforlag sem heitir Nikka en tvær aðrar bækur hafa komið út á vegum þess. Hátíðarjóga og lesið í stjörnur Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Sauðárkróki Brynja Rósanna Brynjólfs- dóttir fæddist 13. mars 2014 kl. 22.17. Hún vó 3.925 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Auður Inga Ingi- marsdóttir og Brynj- ólfur Þór Jónsson. Nýr borgari Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2 Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu, bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti, kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar, hjólastillingar og margt fleira. LAGFÆRUM BÍLINN VIÐ www.solning.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.