Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Landnámsplattar til sölu Nánari upplýsingar í s. 867-4183 Rafmagnsreiðhjól, eldri árgerð seld með allt að 50% afslætti, verð nú frá 75.000, takmarkað magn. www.el-bike.is Hvaleyrarbraut 39, 220 Hafnarfirði, opið virka daga 8–16, sími 864 9265 Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt TILBOÐ VIKUNNAR Teg. DALILA - stakar stærðir C- FF á kr. 4.800. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur Teg. BIJOU - D-H skálar á kr. 12.900, buxur við á kr. 5.990. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Þú mætir – við mælum og aðstoðum. www.misty.is – vertu vinur Húsviðhald Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373. brbygg@simnet.is          Hreinsa þakrennur, laga vatnstjón, ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Smáauglýsingar Atvinnublað alla sunnudaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Kolbrún Her-mannsdóttir fæddist á Land- spítalanum í Reykjavík 14. jan- úar 1952. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 8. mars 2015. Foreldar Kol- brúnar voru hjón- in Hermann Guð- mundsson, f. 22. desember 1914 í Bæ við Stein- grímsfjörð, d. 8. júní 1980, og Aðalbjörg Jónsdóttir, f. 15. desember 1916 í Heiðarbæ við Steingrímsfjörð. Hún lifir dóttur sína. Systkini Kol- brúnar eru Jón, f. 8 október 1939, Ragnhildur, f. 11. desember 1941, Guðmundur, f. 23. febrúar 1943, Að- alsteinn, f. 10. apr- íl 1945, Guðjón, f. 3. janúar 1949, d. 7. janúar 1949, Guðbjörg, f. 3. des- ember 1950, d. 7. mars 2003. Sambýlismaður Kolbrúnar var Guðlaugur Gísli Reynisson, f. 8. janúar 1950, d. 10. ágúst 1982. Kolbrún var í Vogaskóla og lauk þaðan gagnfræða- prófi, einnig var hún í námi í Noregi í eitt og hálft ár á vegum Blindrafélagsins og lærði handverk. Hún var snemma sjónlítil og síðar al- blind. Hún var handlagin og gekk vel í sinni vinnu hjá Blindrafélaginu þar sem hún bjó og kynntist Gísla sínum, en hann dó eftir allt of skamman tíma í sambúð þeirra. Kolbrún var ákveðin og sjálfstæð, leigði íbúð ut- an blindraheimilis, síðan keypti hún eigin íbúð í Breiðholtinu og bjó þar til yfir lauk. Hún var í nýrna- vél þrisvar í viku síðustu 10 árin og stóð sig vel til síð- ustu stundar. Kolbrún verður jarð- sungin frá Langholtskirkju í dag, 24. mars 2015, kl. 13. „Mamma mín, farðu með pabbabænir fyrir mig“: Blunda í ró mín, blíða Kolla, í nótt, beri þig inn í draumalöndin fljótt. Svefndísin góða silfurvængjum á, sýnir þér fegurð lífsins mesta þá. Blunda í ró, þú barn, svo þreytt af leik, bætist nú þróttur styrkist lundin veik. Vaknaðu glöð sem vorfugl morgni á, verndi þig guð og bægi hættum frá. (Hermann Guðmundsson frá Bæ við Steingrímsfjörð) Börnin mín ávallt blessa þú, ég bið þig faðir minn. Gef að þau standi sterk og trú, við störf og lærdóm sinn. Finnist þeim lífsins fjúkið kalt, ó, faðir bænheyrðu mig. Láttu þau muna umfram allt, að elska og biðja þig. (Hermann Guðmundsson frá Bæ við Steingrímsfjörð) Kveðja, elsku vina, þín mamma. Aðalbjörg Jónsdóttir. Elsku Kolla. Nú ert þú farin til pabba, ömmu og Guggu syst- ur, ásamt sambýlismanni þínum Gísla, sem dó svo ungur. Barátta þín við nýrnavélina var aðdáunarverð líkt og sjálf- stæði þitt, þrátt fyrir blindu lengst af ævi. Kjarkurinn við að kaupa eigin íbúð, reka hana og fara flestra þinna ferða, á tón- leika, matsölustaði og leikhús með aðstoð þinnar ágætu hjálp- arkonu, Lilju, og Þorsteins bíl- stjóra, var aðdáunarvert. Ég veit að þú vildir helst kom- ast heim í þína eigin íbúð, en það átti ekki að verða, lífið fjaraði út. Mamma, okkar ástkæra móð- ir, var alla tíð vakin og sofin með hugann hjá þér, las fyrir þig pabbabænir fram á síðasta dag. Elsku pabbi, sem dó 1980, orti og söng um og fyrir þig, gaf þér margar gleðistundir og var þér félagi, ásamt mömmu að sjálf- sögðu sem var þér svo mikilvæg alla tíð. Sérstakar þakkir færast því fólki sem best um þig hugsaði. Að sjálfsögðu mömmu, Jóhönnu og Aðalsteini og svo öllum þeim öðrum sem mest aðstoðuðu þig við lífið. Þín ró og staðfesta var fáum gefin, en brosið þitt var frá Monu Lisu Kveðja yfir! Guðmundur bróðir, Klara og fjölskylda, Ragnhildur systir og fjölskylda. Nú þegar komið er að kveðjustund hjá okkur Kollu rifjast upp margar minningar. Sem barn og unglingur var ég oft hjá afa og ömmu í Sól- heimum í lengri og skemmri tíma þegar ég kom úr sveitinni og kynntist ég Kollu því vel. Ég ætla að setja á blað tvö minn- ingarbrot sem ég hef oft hugs- að til í gegnum tíðina. Ég hef verið um 5 ára gamall og var staddur hjá ömmu og afa í Sólheimunum ásamt Kollu. Það var ekki mikið af leikföngum á heimilinu en ein- hver gaf mér rauðan stóran Willys jeppa, sem ég brunaði með um gólfin. Einn daginn þegar ég var inni í herbergi hjá Kollu kom ég auga á heilmikið safn af dúkkulísum, heilu kóngafjölskyldurnar krýndar kórónum og fallegum fötum ásamt nánast allri flóru mann- kyns og dýra. Stærsta dúkku- lísusafn sem ég hef séð fyrr og síðar. Kolla lánaði mér allt safnið til að keyra um með í nýja jepp- anum mínum. Það gladdi lítinn strák mikið að fá að bruna um alla íbúðina með allt þetta fal- lega pappírsfólk. Mörgum árum seinna, eða þegar ég var um tvítugt og ný- kominn heim frá Kaupmanna- höfn bjó ég um tíma í Sólheim- unum hjá ömmu. Við Gugga frænka ætluðum að fara í Hollywood sem þá var vinsæl- asti skemmtistaðurinn í bænum og við vildum endilega bjóða Kollu með okkur og hún var al- veg til í það. Það var samþykkt af ömmu sól með þeim skilyrðum að við gættum hennar vel og skiluðum henni heim í Hamrahlíðina eftir dansleikinn. Kvöldið var mjög skemmtilegt hjá okkur öllum og þegar kom að heimferð hitti Kolla góða vinkonu í fataheng- inu sem vildi endilega sjá henni fyrir fari í Hamrahlíðina og við Gugga samþykktum það. Þegar við Gugga vöknuðum morguninn eftir og komum fram í eldhús sáum við hvar Kolla sat fremur niðurlút við eldhúsborðið og amma sól stóð alvarleg í bragði og horfði á okkur. Við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið og skildum ekki af hverju Kolla var mætt í Sólheimana. Eftir smá þögn sagði amma sól, „vitið þið hvað, hún Kolla kom heim rétt áðan í fylgd tveggja lögregluþjóna“ sem sögðu að hún hefði gist í fangageymslunum í nótt vegna ölvunar. Það var ekki alls kostar rétt, hún var ekki ofurölvi, þeir átt- uðu sig ekki á því fyrr en morg- uninn eftir að Kolla var veru- lega sjónskert! Kolla hafði orðið viðskila við vinkonu sína í fata- henginu og var að feta sig áfram fyrir utan Hollywood eins og hálf reikul í spori í leit að henni þegar komu tveir myndarlegir lögreglumenn og sögðu henni að koma með sér, hún var vissulega þakklát þess- um góðu mönnum fyrir að bjóða sér far. Við Gugga vorum svo hissa og amma sól svo alvarleg að við skelltum upp úr og Kolla líka þar til tárin runnu, á endanum gaf amma sól sig og hló að þessu öllu saman með okkur. Þennan atburð rifjuðum við Kolla og Gugga stundum upp eftir á og höfðum gaman af. Elsku Kolla, takk fyrir sam- fylgdina. Árni Jónsson. Kolbrún Hermannsdóttir ✝ Guðrún Jóns-dóttir (Rúna) fæddist á Fitjum í Hrófbergshreppi á Ströndum 12. mars 1924. Hún lést á sjúkrahús- inu á Akranesi 13. mars 2015. Foreldrar Rúnu voru Jón Ottós- son, f. 14.6. 1891, d. 26.5. 1970, og María Bjarnadóttir, f. 25.5. 1893, d. 7.11. 1971. Rúna var sjöunda barn þeirra af tólf systkinum. Eftirlifandi bræður hennar eru Pétur, f. 20.7. 1927, og Gylfi, f. 25.5. 1933. 19. júlí 1952 giftist Rúna, Bjarna Inga Bjarnasyni mál- ara og organista í Akranes- kirkju, f. 5.4. 1909, d. 17.5. 1995. Dóttir Rúnu og Bjarna er Helga, f. 10.11. 1947. Helga giftist Birni H. Tryggvasyni, f. 3.8. 1947, d. 18.1. 2012, og eignuðust þau þrjú börn. 1) Bjarni Ingi Björnsson, kvæntur Ingi- björgu Kristínu Barðadóttur, þau eiga 4 börn, 2) Guðrún Hallfríður Björnsdóttir, í sambúð með Bergi Jónssyni, hann á 3 dætur, 3) Elínborg Björns- dóttir, í sambúð með Sturlu Magnússyni, þau eiga 2 syni. Rúna byrjaði ung að vinna við síldarverkun á Raufarhöfn, Seyðisfirði, Siglufirði og Akranesi á haustin. Á Akra- nesi vann hún hjá Akraprjóni í um 30 ár og eftir það prjónaði hún heima, allt þar til undir lokin. Rúna verður jarðsungin frá Akraneskirkju í dag, 24. mars 2015, og hefst athöfnin kl. 14. Amma, elsku amma Rúna. Fyrsta minning mín af ömmu Rúnu var þegar hún sat við eld- húsborðið á Kirkjubraut 17 og var að spila kana við Bjarna bróður, Ástu Vestmann og Gústu. Ég var gjörsamlega dolfallin yfir spilamennskunni frá degi eitt og naut þess að fá að vera með, spilaði frekar við þig á kvöldin á unglingsárunum held- ur en að fara niður í bæ og vera með vinkonum mínum. Ef ég vissi að Mæja frænka var að fara að koma upp á Skaga til að spila þá sleppti ég öllum áform- um og rauk beint til ykkar. Svo mikið gaman var að spila við ykkur. Get með sanni sagt að það verður erfitt að fylla í skarð þitt þar, ef mögulegt er. Svo þegar ég heyrði að Guð- rún systir var að fara að flytja að heiman og ég fengi stóra herbergið, var ég svo himinlif- andi að það hálfa væri nóg. Ég vissi þá að ég fengi að horfa á bannaðar myndir og vaka örlít- ið lengur en leyfilegt var. Best þótti mér þó að vita af þér inni í herbergi að lesa langt fram eftir nóttu því mér fannst alltaf erfitt að sofna ef aðrir voru sofnaðir á undan mér. Það var alltaf svo mikið öryggi að vita af þér að lesa. Ég á aldrei eftir að gleyma því þegar þú fórst með Marinó í göngutúr, þá 89 ára gömul og komst ekki til baka fyrr en rúmum klukkutíma seinna. Þá fóruð þið niður á skólalóð í boltaleik og að horfa á krakk- ana leika sér. Ég fékk líka oft að heyra það hversu öflug kona þú værir, svo dugleg að fara með strákana mína í göngutúr um bæinn. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og mína og alltaf tilbúin að gera allt ef þú gast það. Ég verð þér ævinlega þakk- lát fyrir það og mun geyma svo margar góðar og fallegar minn- ingar um þig í hjarta mínu. Ég kveð þig með miklum söknuði, elsku besta amma mín. Þú varst engri lík! Elínborg Björnsdóttir. Elsku hjartans amma mín, vinkona og mamma númer tvö. Konan sem ég er skírð í höf- uðið á og besta amma í öllum heiminum hefur kvatt þennan heim. Það sem ég á eftir að sakna þín, að hringja í þig til að spjalla, fíflast í þér og hlæja. Knúsa þig og kyssa, tosa í skinnið á handarbakinu, nudda hendurnar, pússa og lakka neglurnar. Hún elskaði það því þá var hún svo fín að eigin sögn. Að sýna henni og segja henni hvað mér þótti vænt um hana og elskaði hana mikið. Að þurfa að kveðja hana verður erfitt, skrýtið og vont en það kannski venst. Amma var einstök, ljúf og góð og lifði fyrir fjölskylduna. Hún dýrkaði okkur barnabörn- in og barnabarnabörnin sín. Hún var kona sem allir gætu tekið sér til fyrirmyndar fyrir það eitt að hún kvartaði aldrei og var alltaf jákvæð. Þegar amma varð níræð í fyrra kom ég henni á óvart og mætti í veisluna hennar. Það sem við vorum ánægðar með að sjá hvor aðra, við fórum báðar að gráta af gleði og þetta er stund sem ég gleymi aldrei. Ég á fullt af góðum minningum um ömmu sem ég mun ávallt geyma í hjarta mínu og minn- ast. Ég er endalaust þakklát fyr- ir að hafa náð að eyða með henni síðustu stundunum henn- ar. Að horfa á hana og hlusta á andardráttinn hennar, halda í höndina á henni, strjúka ennið og hárið og toga í skinnið í síð- asta sinn. Ég kveð nú ömmu í hinsta sinn með kökkinn í hálsinum og tómleika í hjartanu með þeim orðum sem ég notaði alltaf þeg- ar við kvöddumst. „Jæja, tútta, við heyrumst“, nema hvað að við heyrumst ekki aftur. Ég á eftir að sakna þín, elsku hjartans amma mín, en nú ertu komin á annan stað. Stað þar sem afi og pabbi taka vel á móti þér. Þangað til næst. Guðrún Hallfríður. Guðrún Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.