Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015
Láttu okkur létta
undir fyrir
næstu veislu
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Serviettu- og
dúkaleiga
Gardínuhreinsun
Dúkaþvottur
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Runnið hafa tvær grímur á Norð-
menn vegna sölu á flotastöð í
Norður-Noregi eftir að í ljós kom að
kaupandinn hefur leigt rússneskum
rannsóknaskipum stöðina. Óttast er
að Rússar geti notað flotastöðina í
hernaðarlegum tilgangi.
Í flotastöðinni Olavsvern, nálægt
Tromsø, er ekki aðeins höfn, heldur
einnig aðstaða fyrir kafbáta og þyrl-
ur, og skipgeng göng, sem grafin
voru inn í fjall við stöðina, ásamt
fleiri mannvirkjum.
Norski herinn lokaði flotastöðinni
árið 2009 og hún var sett í sölu 2011.
Hún var seld tveimur árum síðar á
þriðjungi þess verðs sem norska
stjórnin vildi fá fyrir hana. Uppsett
verð var 105 milljónir norskra króna,
jafnvirði 1,8 milljarða íslenskra, en
hún var seld á 38,1 milljón norskra
króna, 657 milljónir íslenskra. Svæð-
ið er alls um 948.900 fermetrar, þar
af um 25.000 fermetrar inni í fjallinu.
Þar er einnig 3.000 fermetra hafnar-
bakki og 124 herbergja gistihús.
Norski kaupsýslumaðurinn Gunn-
ar Wilhelmsen keypti stöðina.
Norska varnarmálaráðuneytið og
Atlantshafsbandalagið lögðu blessun
sína yfir söluna og töldu að hvorki
norski herinn né NATO hefði þörf
fyrir hana. Kaupandinn hugðist gera
flotastöðina að viðhaldsmiðstöð fyrir
borpalla og neðansjávarbúnað sem
hægt væri að nota við boranir á hafs-
botni á norðurslóðum. Hætt var við
það og flotastöðin var leigð rúss-
neskum rannsóknaskipum.
„Óskiljanleg mistök“
Fjallað er um söluna í nýjasta
hefti Newsweek og þar kemur fram
að á meðal rannsóknaskipanna sem
sést hafi í flotastöðinni sé skip í eigu
rússnesks rannsóknarfyrirtækis
sem sérhæfi sig í jarðbylgjumæling-
um. Á meðal viðskiptavina fyrir-
tækisins eru Gazprom og fleiri fyrir-
tæki í eigu rússneska ríkisins.
Newsweek hefur eftir Göran Frisk,
fyrrverandi herforingja í Svíþjóð, að
rússnesk rannsóknaskip gegni mikil-
vægu hlutverki fyrir rússneska her-
inn. „Mikilvægasta verkefni rúss-
neska flotans er að tryggja að
kjarnorkukafbátar Rússa geti siglt
óhindrað um heimshöfin,“ hefur
tímaritið eftir Frisk. „Rússnesku
rannsóknaskipin eru ekkert grín.
Það er óskiljanlegt að norsku stjórn-
inni skuli hafa orðið á þessi mistök.“
Að sögn norska ríkisútvarpsins
hafa margir stjórnmálamenn og
fyrrverandi herforingjar áhyggjur af
sölunni á flotastöðinni. „Sú ákvörðun
að loka Olavsvern var hneyksli og við
mótmæltum henni,“ hefur norska út-
varpið eftir tveimur fyrrverandi her-
foringjum í Noregi, Jan Reksten og
Einar Skorgen.
Øvind Korsberg, þingmaður
Framfaraflokksins, tók í sama
streng í viðtali við norska ríkisút-
varpið. Hann sagði að ástandið í ör-
yggismálið hefði gerbreyst frá því að
ákveðið var að selja flotastöðina.
Hættan sem Noregi stafaði af rúss-
neska hernum væri meiri nú en árið
2009 og norski herinn þyrfti á flota-
stöðinni að halda til að verja landið.
Flotastöð í Norður-Noregi
Rússland
Finnland
Noregur
Svíþjóð
Olavsvern
Tromsø
Sala á norskri flota-
stöð sögð hneyksli
Rússar leigja flotastöð sem var seld í Norður-Noregi
Stjórnvöld í Danmörku hafa
mótmælt grein sem sendiherra
Rússlands í Kaupmannahöfn
skrifaði í Jyllands-Posten um
helgina þar sem hann varaði við
því að dönsk herskip gætu „orð-
ið skotmörk rússneskra kjarn-
orkuflauga“ ef Danir tækju þátt
í eldflaugavörnum Atlantshafs-
bandalagsins. Danir hafa lofað
að leggja til að minnsta kosti
eitt herskip búið ratsjám til að
fylgjast með hugsanlegum eld-
flaugum. Martin Lidegaard,
utanríkisherra Danmerkur, sagði
að yfirlýsing sendiherrans væri
óviðunandi og Rússum stafaði
engin hætta af eldflaugavörn-
unum. „Menn eiga ekki að vera
með svona alvarlegar hótanir,“
sagði hann.
Kjarnorkuárás
hótað í grein
DANMÖRK
Fyrsti forsætisráðherra Singapúr,
Lee Kuan Yew, lést á sjúkrahúsi í
fyrradag, 91 árs að aldri. Þúsundir
manna vottuðu minningu hans virð-
ingu sína í gær með því að leggja
blóm við sjúkrahúsið. „Hann barð-
ist fyrir sjálfstæði okkar, byggði
upp ríki úr engu og gerði okkur
stolt af því að vera Singapúrar,“
sagði sonur Lees og núverandi for-
sætisráðherra, Lee Hsien Loong.
Obama Bandaríkjaforseti fór lof-
samlegum orðum um þátt Lees í því
að gera Singapúr að alþjóðlegri
viðskiptamiðstöð, sagði hann einn
af „risum sögunnar“. Lee hafði ver-
ið gagnrýndur fyrir pólitíska kúg-
un og mannréttindasamtök hvöttu
stjórnina í Singapúr til að koma á
umbótum í mannréttindamálum.
AFP
Fyrsti leiðtogi Singapúr syrgður
Kosningabandalag hægrimanna fór
með sigur af hólmi í fyrri umferð
sýslukosninga í Frakklandi á sunnu-
dag og fékk meira fylgi en Franska
þjóðfylkingin (FN).
UMP, kosningabandalag flokks
Nicolas Sarkozy, fékk mest fylgi,
eða 29,4% atkvæðanna. Franska
þjóðfylkingin fékk 25,2% en Sósíal-
istaflokkurinn galt afhroð, fékk að-
eins 21,9%. Úrslitin eru álitin áfall
fyrir Francois Hollande forseta því
litið er á sýslukosningarnar sem
prófstein á styrk sósíalista fyrir
næstu forsetakosningar sem verða
árið 2017.
„Mikil umskipti“
Mörgum stuðningsmönnum Sar-
kozy var létt þegar úrslitin voru til-
kynnt því skoðanakannanir höfðu
bent til þess að
Franska þjóð-
fylkingin fengi
mest fylgi. Sar-
kozy lýsti úrslit-
unum sem „mikl-
um umskiptum“
og stórum sigri
fyrir franska
hægrimenn sem
hefðu „sameinast
að nýju“.
Marine Le Pe, leiðtogi Frönsku
þjóðfylkingarinnar, fagnaði þó úr-
slitunum og sagði að þau væru
„mjög mikill sigur“ fyrir flokkinn.
„Ég sagði skýrt fyrir kosningarnar
að 20% myndu vera góð niðurstaða
og 25% sigur,“ sagði hún.
Síðari umferð kosninganna fer
fram á sunnudaginn kemur.
Hægribandalag sigraði
Frönsku þjóðfylkinguna
Franskir sósíalistar guldu afhroð
Nicolas Sarkozy
Ebólufaraldurinn í Vestur-Afríku
verður yfirstaðinn í ágúst, að því er
yfirmaður málaflokksins hjá Sam-
einuðu þjóðunum segir í viðtali við
BBC. Hann viðurkennir að Samein-
uðu þjóðirnar hafi gert mistök við
að takast á við faraldurinn. Stofn-
unin hafi stundum verið full hroka.
Nú er ár síðan faraldurinn braust
út af fullum þunga. Yfir 10.000
manns hafa dáið af völdum sjúk-
dómsins á þeim tíma.
Mannúðarsamtökin Læknar án
landamæra segja að alþjóða-
samfélagið hafi brugðist og að
merki um að faraldur væri í upp-
siglingu hefðu verið hunsuð. Sam-
tökin segja að Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin (WHO) beri m.a.
ábyrgð í málinu. Flestir hafa látist í
þremur löndum:
Gíneu, Líberíu
og Síerra Leóne.
Talið er að sá
fyrsti sem lést úr
ebólu í faraldr-
inum hafi verið
ungur drengur í
Gíneu. Hann lést
í desember 2013.
Þrír mánuðir liðu áður en WHO
lýsti yfir faraldri. Fimm mánuðir til
viðbótar liðu áður en WHO lýsti yfir
neyðarástandi. Þá höfðu yfir þús-
und manns látist úr ebólu. Enn er
fólk að smitast og deyja úr ebólu í
Vestur-Afríku. Þegar enginn hefur
smitast í sex vikur verður formlega
tilkynnt að faraldurinn sé yfirstað-
inn.
VESTUR-AFRÍKA
Ebólufaraldurinn yfirstaðinn í ágúst
Repúblikaninn
Ted Cruz, þing-
maður í öldunga-
deildinni, hefur
tilkynnt að hann
gefi kost á sér í
forkosningum
repúblikana þeg-
ar forsetaefni
þeirra í kosning-
unum árið 2016 verður valið. Cruz
er 44 ára gamall lögmaður, stund-
aði nám við Harvard og Princeton
og tók sæti í öldungadeild þingsins
fyrir Texas árið 2012.
Hann er uppáhald Teboðshreyf-
ingarinnar, óhræddur við að taka
slaginn við andstæðinga og sam-
flokksmenn, og átti stóran þátt í
stöðvun hins opinbera síðla árs
2013, þegar hann barðist hatram-
lega gegn sjúkratryggingaumbót-
um Baracks Obama Bandaríkja-
forseta.
BANDARÍKIN
Ted Cruz tilkynnir framboð