Morgunblaðið - 24.03.2015, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 83. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Lyftu bílnum af konunni
2. Ashya laus við krabbameinið
3. Er fjölskyldan loks fundin?
4. Meint svindl aldrei sannað
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Jón Páll Eyjólfsson, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar, mun kl. 17 í dag
halda fyrirlestur í Listasafninu á
Akureyri, Ketilhúsi, undir yfirskrift-
inni Leikhúsvélar, tæki og lögmál
Donalds Rumsfelds um stig þekk-
ingar. Í honum mun Jón Páll fjalla um
almenna kenningu sína um samyrkju
í sviðslistum; Leikhúsvélina. Kenning
þessi hefur bæði vakið alþjóðlega at-
hygli og verið kennd í Listaháskóla Ís-
lands, en hún er afurð níu ára til-
raunavinnu sem miðar að samvinnu í
sviðslistum og ber heitið Mindgroup,
að því er segir í tilkynningu.
Ókeypis er inn á fyrirlesturinn sem
er sá tíundi og næstsíðasti í röð fyrir-
lestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á
hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfir-
skriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni
Listasafnsins á Akureyri, Verk-
menntaskólans á Akureyri, Háskól-
ans á Akureyri og Myndlistaskólans á
Akureyri.
Leikhúsvélar, tæki
og lögmál Rumsfelds
Hinn heimskunni bandaríski gítar-
leikari Al Di Meola verður gestur á
Guitarama-hátíð Björns Thoroddsen
gítarleikara í Háskólabíói í október.
Di Meola er meðal eftirsóttustu gítar-
djassista samtímans og
afar vinsæll einleikari.
„Þetta er mikill við-
burður,“ segir Björn
sem hefur undanfarið
stýrt vinsælum
hátíðum í
Kanada og
Noregi.
»39
Al Di Meola gestur
á gítarhátíð Björns
Á miðvikudag Suðaustan 15-23 m/s, hvassast við suðvestur-
ströndina og slydda eða rigning, en úrkomulítið norðaustantil.
Á fimmtudag, föstudag og laugardag Suðvestlæg átt, 8-13 m/s
og éljagangur, en bjartviðri norðaustantil. Hiti kringum frostmark.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt og þykknar smám
saman upp, slydda eða rigning á Suður- og Vesturlandi um kvöldið.
VEÐUR
Skautafélag Akureyrar varð
í gærkvöld Íslandsmeistari
karla í íshokkíi þriðja árið í
röð með því að vinna stór-
sigur á Skautafélagi Reykja-
víkur, 7:0, í fimmta úrslita-
leik liðanna í Skautahöllinni
í Laugardal. SA vann þar
með einvígið 4:1. Þetta er
jafnframt átjándi titill fé-
lagsins og margir leikmann-
anna hafa leikið hátt í
tuttugu sinnum til úr-
slita. »1
Þrautreyndir
Íslandsmeistarar
Eyjólfur Sverrisson segir að Kasakar
séu með hraða, flinkir og baráttu-
glaðir fótboltamenn og það gæti
orðið mikið þolinmæðisverk fyrir
íslenska landsliðið að mæta þeim í
Astana á laugardaginn
kemur. „Ég vona bara
að þeir slökkvi ekki
ljósin eins og gerðist
þrisvar hjá okkur!“
segir Eyjólfur sem
var með 21 árs
landslið Íslands í
Astana fyrir
ári. » 4
Vona bara að þeir
slökkvi ekki ljósin
Tindastóll og Keflavík standa
mjög vel að vígi í átta liða úrslit-
um Íslandsmóts karla í körfubolta
og eru bæði komin í 2:0. Báðum
liðum nægir því einn sigur í viðbót
til að komast í undanúrslitin.
Tindastóll vann Þór í Þorlákshöfn,
96:85, og Keflvíkingar lögðu
Hauka á heimavelli, 84:82, eftir
spennandi lokakafla. »2-3
Góð staða Tindastóls
og Keflvíkinga
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hollvinir Grensásdeildar vinna stöð-
ugt að því að safna fé til tækjakaupa
og endurbóta á húsnæði deildarinnar.
Nú stendur yfir sala á geisladisknum
Með sorg í hjarta með hljómsveitinni
Gæðablóðum og rennur ágóðinn til
Grensásdeildar. Hljómsveitinni renn-
ur blóðið til skyldunnar því tónlist-
armaðurinn Ólafur Þórðarson, Óli í
Ríó, bróðir söngvara Gæðablóða, var
sjúklingur á Grensásdeild áður en
hann lést.
„Það vantar alltaf peninga,“ sagði
Ottó Schopka, formaður Hollvina
Grensásdeildar. Hann segir að nú
vanti meðal annars sjúkrarúm,
rafknúinn sturtustól, sturtustól fyrir
sundlaug, hjólastóla, meðferðarbekki
fyrir sjúkraþjálfun og þrekhjól. Þessi
búnaður slitnar hraðar en áður vegna
aukinnar meðalþyngdar landsmanna.
Orðið mjög þröngt
Þá er áhugi á að gera sjúkrastof-
urnar vistlegri, t.d. með endurnýjun
náttborða, og koma þar fyrir komm-
óðum, stólum, lömpum og fleira enda
dvelja sjúklingar oft langdvölum á
stofunum. Eitt verkefni er þó lang-
stærst.
„Það hefur lengi staðið til að
stækka Grensásdeildina. Húsnæðið
hefur ekkert stækkað frá því deildin
tók til starfa fyrir rúmlega fjörutíu
árum. Það er orðið mjög þröngt og
vantar betri aðstöðu fyrir þjálf-
un og fleira,“ sagði Ottó. Við-
bygging við Grensásdeild
kostar um 1.100 milljónir.
Ottó sagði að söfnunar-
átak Eddu Heiðrúnar
Backman, Á rás fyrir
Grensás, hefði safn-
að um 100 milljónum
króna.
„Það voru notaðar
um 32 milljónir af þeim
peningum til að byggja
skýli yfir bílastæði svo fólk sem kem-
ur í þjálfun þurfi ekki að standa úti í
roki og rigningu á meðan það tekur
hjólastólinn úr bílnum og kemur sér
inn í skjól,“ sagði Ottó. Hann sagði að
áhugi væri á að bæta aðgengi sjúk-
linga að lóðinni við Grensásdeild svo
þeir geti notið útivistar á góðviðris-
dögum.
Hollvinir Grensásdeildar hafa rætt
við stjórnvöld um viðbygginguna við
Grensásdeild. Ottó kvaðst gera sér
vonir um að hún geti orðið næst í röð-
inni á eftir sjúkrahóteli sem fljótlega
hefst bygging á. Hann sagði að rætt
hefði verið um að hollvinasamtökin
settu fjármuni í hönnun bygging-
arinnar. Mikilvægt væri að fram-
kvæmdir hæfust sem fyrst því hönn-
unin úreltist fljótt.
Ný viðbygging er draumurinn
Hollvinir Grens-
ásdeildar eru á
fullu í fjáröflun
Morgunblaðið/Kristinn
Grensásdeild Otto Schopka, formaður Hollvina Grensásdeildar, í skýlinu sem byggt var yfir bílastæðið.
„Óli bróðir minn [Ólaf-
ur Þórðarson] lá á
Grensásdeildinni í
heilt ár áður en hann dó
og fékk þar einstaklega góða
umönnun,“ sagði Kormákur
Bragason, í hljómsveitinni
Gæðablóðum. „Okkur datt í
hug að það gæti verið við
hæfi að styrkja Hollvina-
samtök Grensásdeildar með sölu
disksins okkar.“
Kormákur var í hljómsveitinni
South River Band, ásamt Ólafi og
fleirum. Þeir félagar í SRB spiluðu
stundum fyrir Óla á meðan hann lá
á Grensásdeild og svo fyrir fólkið á
deildinni eftir að Óli lést. Það átti
sinn þátt í að ákveðið var að selja
plötuna til styrktar Grensásdeild.
„Þótt platan heiti Með sorg í
hjarta, þá er húmorinn allsráðandi,
kannski stundum svolítið kald-
hæðinn þó,“ sagði Kormákur.
Húmorinn allsráðandi
DISKUR GÆÐABLÓÐA SELDUR TIL STYRKTAR GRENSÁSDEILD
Kormákur
Bragason