Morgunblaðið - 24.03.2015, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015
Tökum að okkur trjáklippingar,
trjáfellingar og stubbatætingu.
Vandvirk og snögg þjónusta.
Sími 571 2000
www.hreinirgardar.is
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
ENAMicro 9 One Touch frá Jura
Líttu við hjá Eirvík og við bjóðum þér í kaffi.
Fékk hæstu einkun hjá þýsku neytendasamtökunum en 14 vélar
voru prófaðar. Hægt að velja um kaffi, espresso, latte macchiato,
cappuccino eða heitt vatn í te með því að þrýsta á einn hnapp.
Tilboð kr. 125.424
Malín Brand
malin@mbl.is
Áhugaverðar breytingar á kynja-
hlutföllum koma fram í nýjustu af-
brotatíðindum embættis ríkislög-
reglustjóra. Það er mat Helga
Gunnlaugssonar, prófessors í fé-
lagsfræði og sérfræðings í afbrota-
fræðum við Háskóla Íslands.
Þær breytingar sem greindar
hafa verið ná til hlutfalls kynjanna í
þjófnuðum á tólf mánaða tímabili,
eða frá mars 2014 til febrúar 2015
en á þeim tíma hefur hlutur kvenna
aukist í þjófnuðum á sama tíma og
dregið hefur úr þjófnuðum meðal
karla.
Ástæða þess að Helgi segir þess-
ar breytingar vera áhugaverðar er
meðal annars sú að konur hafa ekki
verið í meirihluta áður í brotum af
þessu tagi.
„Fjöldatölurnar á bak við þjófn-
aðina koma ekki fram en við sjáum
skýra hlutfallsbreytingu á milli
karla og kvenna á allra síðustu
mánuðum. Meirihluta síðasta árs
sér maður hlutföllin 60:40 á milli
kynjanna en svo verður þessi
áhugaverða breyting núna í febrúar
þar sem konurnar fara fram yfir
karla. Það hefur verið fækkun í
þessum brotaflokki frá 2009 og það
sem mér þykir líklegt að sé að ger-
ast er að fækkunin sé meiri meðal
karla en kvenna,“ segir Helgi.
Rétt eins og þróunin hefur verið í
nágrannalöndunum og í Bandaríkj-
unum hefur dregið úr auðgunar-
brotum, m.a. þjófnaði. Í Bandaríkj-
unum hefur brotum af þessu tagi
fækkað frá 1990, að sögn Helga. Á
Norðurlöndum hefur dregið úr
brotum af þessu tagi síðan rétt fyr-
ir aldamót og loks hér á landi frá
árinu 2009.
Konurnar nálgast karlana
Helgi segir að af tölunum frá rík-
islögreglustjóra megi því draga þá
ályktun að fækkun þjófnaða eigi
einkum við karla en heldur minni
fækkun hafi orðið á meðal kvenna í
þjófnuðum. „Það er alveg nýtt að
hlutfall kvenna verði allt í einu
hærra. Alla jafna hefur hlutfallið
verið sextíu prósent karla á móti
fjörutíu prósentum kvenna, líka í
búðaþjófnaði. Þessi hlutföll milli
kynjanna eru algeng ytra og þess
vegna vekur athygli að sjá hlutföllin
breytast eins og þau birtast þarna.
En hafa ber í huga að hér er um
einstaka mánuði að ræða en ekki
heilt ár eða lengra tímabil“ segir
Helgi.
Stóra spurningin sem eftir situr
er hvers vegna þróunin sé þessi og
svarar Helgi því til að hegðun karla
virðist hafa tekið hraðari breyting-
um en hegðun kvenna. „Kynin eru
farin að líkjast hvort öðru í atferli.
Samt er eins og hegðun karla hafi
breyst meira. Konur hafa ætíð ver-
ið mun minna í afbrotum en karlar
og munurinn enn meiri í öðrum
brotaflokkum. Í þjófnuðum hefur
kynjamunurinn verið einna minnst-
ur.“ Helgi segir að í þeim löndum
sem við miðum okkur gjarnan við
sé raunin einmitt sú að fækkun af-
brota almennt birtist meira á meðal
karla en kvenna og það sé einmitt
það sem geri það að verkum að
munur milli kynjanna er að minnka.
Eftir sem áður sitji mun færri kon-
ur í fangelsi en karlar og stafi það
m.a. af því að karlar fremji oftar al-
varlegri brot en konur og má þar
nefna ofbeldis- og auðgunarbrot.
Morgunblaðið/RAX
Þjófnaður Í febrúarmánuði breyttust kynjahlutföllin í þjófnaði þegar konur voru í meirihluta þeirra sem brutu af sér.
Dregur úr afbrotum
karla en ekki kvenna
Fleiri konur í innbrotum Hegðun karla breyst meira
Hlutfall kynjanna í þjófnuðum síðustu 12 mánuði
Karl Kona
Mars
‘14
Ágúst
‘14
Apríl
‘14
Sep.
‘14
Maí
‘14
Okt.
‘14
Júní
‘14
Nóv.
‘15
Des.
‘15
Júlí
‘14
Jan.
‘15
Feb.
‘15
100%
80%
60%
40%
20%
0%
Heimild: logreglan.is
68
80
71 72
77
65 66 62
55
60
54
32 33
20
29 28
23
35 34 38
45
40
46
67
Nýtt tveggja ára
meistaranám í
fjölmiðla- og boð-
skiptafræðum
hefst í haust í
samstarfi stjórn-
málafræðideildar
og félags- og
mannvísinda-
deildar Háskóla
Íslands og fé-
lagsvísindasviðs
Háskólans á Akureyri.
Námið verður hægt að taka í fjar-
námi og einnig verður í boði 30 ein-
inga diplómanám. Nemendur geti
innritast í hvorn háskólann sem þeir
kjósi.
Valgerður Jóhannsdóttir, aðjunkt
og umsjónarmaður með MA-námi í
blaða- og fréttamennsku í HÍ, segir í
samtali við mbl.is brýnt sé að efla
rannsóknir í fjölmiðla- og boð-
skiptafræðum hér á landi. Það verði
ekki gert nema bjóða upp á öflugt
rannsóknarnám á þessu sviði.
Nýtt nám
í HÍ og HA
HÍ Skólinn er í
samstarfi við HA.
„Frá nóvember 2006 til september
2014 hafa laun hjúkrunarfræðinga
og verk- og tæknifræðinga þróast í
stórum dráttum í hátt við launa-
vísitölu og þannig haldið nokkurn
veginn í við launaþróun annarra
hópa.“
Þetta kemur fram í skýrslu heild-
arsamtaka vinnumarkaðarins sem
fjármála- og efnahagsráðuneytið
hefur tekið saman. Upplýsingarnar
fjalla um launaþróun þeirra stétt-
arfélaga, sem eru með 100 félags-
menn eða fleiri og standa utan
heildarsamtaka, með sambæri-
legum hætti og er að finna í riti að-
ila vinnumarkaðarins „Í aðdrag-
anda kjarasamninga“, sem birt var
í febrúar 2015.
Er hér um að ræða stéttarfélög
lækna, hjúkrunarfræðinga og verk-
og tæknifræðinga.
Segir ennfremur að launaþróun
verk- og tæknifræðinga sé ívið lak-
ari á þessu tímabili en hjúkrunar-
fræðinga. „Launaþróun lækna hef-
ur aftur á móti ekki haldið í við
launavístölu á þessu tímabili og
drógust þeir verulega aftur úr öðr-
um hópum.
Í því samhengi verður þó að hafa
í huga að samsetning þeirra launa
er töluvert frábrugðin því sem
þekkist hjá öðrum hópum. Þannig
er t.d. hlutfall reglulegra launa af
heildarlaunum lægra hjá læknum
en öðrum hópum. Það hefur þó ekki
marktæk áhrif á launaþróun þeirra
í samanburði við aðra á vinnumark-
aði.“
Samsetning launa lækna töluvert frá-
brugðin því sem þekkist hjá öðrum hópum