Morgunblaðið - 24.03.2015, Síða 17

Morgunblaðið - 24.03.2015, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015 TRAUSTIR, NOTAÐIR GÆÐABÍLAR Á HAGSTÆÐU VERÐI Audi A4 2.0 TDI AT Árgerð 2012, dísil Ekinn 29.000 km, sjálfskiptur Skoda Octavia Combi 4x4 1.6 TDI. Árgerð 2013, dísil Ekinn 64.000 km, beinskiptur VW Caddy Life Ecofuel Árgerð 2013, bensín/metan Ekinn 80.000 km, beinskiptur Mitsubishi I-MIEV rafmagnsbíll Árg. 2012, rafmagn Ekinn 8.500 km, sjálfskiptur Toyota Yaris 1330 Sol Árgerð 2013, bensín Ekinn 9.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 4.990.000 Ásett verð: 3.740.000 Ásett verð: 2.490.000 Ásett verð: 2.540.000 Ásett verð: 2.690.000 Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 heklanotadirbilar.is Komdu og skoðaðu úrvalið! Audi Q7 3.0 TDI 233 hö Árgerð 2007 dísil Ekinn 115.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 4.990.000 VW Polo 1.4 Comfortl. 85 hö Árgerð 2012, bensín Ekinn 66.500 km, sjálfskiptur VW Tiguan Sport&Style 140 hö. Árgerð 2014, dísil Ekinn 39.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 2.190.000Ásett verð: 5.590.000 MM Pajero 3.2 Intense Árgerð 2012, dísil Ekinn 68.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 6.990.000 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ríkiskaup hafa boðið út, fyrir hönd fjarskiptasjóðs, ljósleiðarahring- tengingu á Vestfjörðum og einnig á Snæfellsnesi. Í útboðsauglýsingun- um kemur fram að fjarskiptasjóður hyggist gera samninga við þá sem eiga lægstu tilboð og teljast vera hæfir bjóðendur. Þeir eiga að hanna, byggja, reka og eiga ljósleiðara- strengi auk tilheyrandi búnaðar, annars vegar á Snæfellsnesi og hins vegar á Vestfjörðum. Þessi landsvæði eru nú hvort um sig tengd landsneti fjarskipta með einfaldri ljósleiðaratengingu. Fyrir- hugað er að tvöfalda tenginguna með ljósleiðarastrengjum sem fari aðra leið en núverandi strengir þannig að til verði hringtengingar. Það mun auka mjög á öryggi fjarskipta. Tilboð í bæði verkin verða opnuð 24. apríl næstkomandi. Háhraðanet sé grunnþjónusta Aðgang að háhraða-nettengingu á að skilgreina sem grunnþjónustu sem standi öllum til boða, óháð bú- setu. Þetta er helsta tillaga starfs- hóps innanríkisráðherra um lands- átak í uppbyggingu innviða fjar- skiptakerfisins. Með háhraða-net- tengingu er miðað við a.m.k. 100 Mb/s – svonefnt breiðband. Starfshópurinn telur raunhæft að stefna að því að 99,9% landsmanna eigi kost á breiðbandi um þráð- bundið aðgangsnet fyrir árslok 2020. Hann leggur til að skilgreint verði átaksverkefni á landsvísu til sex ára (2015–2020) um uppbygg- ingu ljósleiðaraneta á svæðum þar sem markaðsbrestur er til staðar. Þ.e. þar sem fjarskiptafyrirtæki munu ekki að óbreyttu leggja nýja ljósleiðara á markaðslegum for- sendum. Lagt er til að fjarskipta- sjóður aðstoði þá staði sem fjar- skiptafyrirtækin geta ekki veitt netþjónustu. Alls þarf að tengja 3.923 staði við ljósleiðara. Heildarkostnaður við uppbyggingu breiðbands á svæðum sem búa við markaðsbrest, er áætl- aður 5-6,7 milljarðar króna sam- kvæmt kostnaðarmati Mannvits hf. Kostnaður við að ná 100% útbreiðslu fyrir árslok 2020 er talinn vera 6-8 milljarðar króna. Sveitarfélögin tryggi ákveðna lág- marksþátttöku lögheimila og skuld- bindingar um 250.000 króna stofn- framlag frá hverju heimili. Hverju sveitarfélagi er heimilt að greiða stofnframlagið að hluta eða að fullu. Beint framlag ríkisins er áætlað vera 3-4 milljarðar króna. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Háhraðanet Lagt er til að allir landsmenn geti tengst háhraðaneti, flestir um ljósleiðara. Þeir hafa víða verið lagðir. Háhraðanet verði talið grunnþjónusta  Ljósleiðarahringtengingar á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum Samkvæmt opinberum upplýsingum voru um 250 smá- virkjanir í rekstri á Íslandi árið 2014. Vatnsaflsvirkjanir sem hafa uppsett afl undir 10 MW flokkast sem smá- virkjanir. Hlutur smávirkjana á Íslandi er 3,8% og til lengri tíma litið má ætla að hlutfall smávirkjana í raf- orkuframleiðslunni hér á landi verði um 6%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Veiðimálastofnunar um möguleg áhrif smávirkjana á líf- ríki í vatni en auk þess gefur skýrslan yfirlit yfir smá- virkjanir á Íslandi, en skýrsluna má nálgast á vef Veiði- málastofnunar. Meðalafl þessara smávirkjana er 305 kW en um 84% eru með uppsett afl undir 200 kW. Þær smávirkjanir sem vitað er til að voru í rekstri árið 2014 deilast niður á 46 sveitarfélög, þar af eru 24 sveitarfélög með 1-3 má- virkjanir innanborðs. Í fimm sveitarfélögum eru fleiri en 10 smávirkjanir og í Þingeyjarsveit eru flestar eða 48 smávirkjanir. Vaxandi áhugi á byggingu slíkra mannvirkja Áhugi á byggingu slíkra mannvirkja fer vaxandi um þessar mundir og er það í takt við hækkandi raforkuverð og aukna kröfu um endurnýjanlega raforkugjafa. Ýmis- legt hefur verið gert til að ýta undir frekari raforku- framleiðslu með vatnsafli og hvetja til byggingar smá- virkjana, t.a.m. með orkusöluöryggi fyrir smáframleið- endur og vottun fyrir atvinnurekstur sem notar endur- nýjanlega orkugjafa. Minna hefur verið gert til að meta umhverfisáhrif vegna smávirkjana en þau geta verið umtalsverð í sum- um tilfellum. Smávirkjanir eru hornreka í íslenska kerf- inu á margan hátt og mikilvægt er að stefna að því að koma allri umgjörð í kringum þær í betra horf. Um 250 smávirkjanir voru í rekstri í fyrra  Flestar í Þingeyjarsveit  Á margan hátt hornreka í kerfinu Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Heimarafstöð Bæjarlækurinn í Fagradal var virkjaður fyrir tæpum 90 árum og var myndin tekin fyrir nokkr- um árum er unnið var að endurnýjun búnaðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.