Morgunblaðið - 24.03.2015, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2015
AF MÚSÍKTILRAUNUM
Heiða Eiríksdóttir
heidatrubador@gmail.com
Síðastliðið sunnudagskvöld var afturkomið að því: Hin yndislega stund þeg-ar Músiktilraunir 2015 runnu af stað
þýddi að páskarnir væru handan við hornið og
svo kæmi vorið á handahlaupum í kjölfarið.
Níu atriði kepptu á þessu fyrsta undan-
úrslitakvöldi og það liggur við að um níu ólík-
ar tónlistarstefnur hafi líka verið að ræða, svo
mikil var fjölbreytnin.
Gummi Hebb var fyrstur á svið og fluttiléttpoppaða nýbylgju-raftónlist í anda
hljómsveita eins og Soft Cell og Simple Minds.
Mjög áheyrilegt en í síðara laginu, sem var ör-
lítið lengra og ómarkvissara, stóð ég mig að
því að vera farin að hugsa um páskaegg í stað
þess að heyra lagið, svo það má líklega huga
aðeins betur að lagasmíðunum.
Tramps úr Reykjavík skörtuðu skemmti-lega rokkaðri söngkonu með spennandi
rödd, og lagasmíðar voru blanda af gamaldags
hipparokki og nýrra, drungalegra dóti, en
þegar strengur slitnaði í síðara laginu datt
stemmningin aðeins niður. Hljómsveit sem
gaman verður að heyra meira frá í framtíð-
inni.
Þriðja hljómsveit á svið var Vára úrKópavogi og þar á bæ var mikið búið að
pæla, í sándi, lögum og útsetningum. Rödd
söngvarans var eftirminnileg og einkar
skemmtilegur rokkaður kafli í síðara lagi lyfti
bandinu upp á flott plan.
Við tóku Deffice sem einnig voru úrKópavogi, greinilega mikið rokkað í
Kópavogi um þessar mundir, en þrátt fyrir
fögur fyrirheit um áhrifavalda á borð við AC/
DC var bandið full átakalítið, og vantar
kannski að gefa bara meira í. Spila fastar,
meira, hærra og oftar og gefa áhrifavöldunum
lausan tauminn.
Par-Ðar frá Suðurnesjum hafði greini-lega unnið heimavinnuna sína og helst
mætti lýsa tónlist þeirra sem ljóðrænu sýru-
rokki. Fyrra lagið hófst á því að trommarinn
fór með ljóð um svartan fugl, og í sama lagi
var notast við hið framandi hljóðfæri regn-
stokk og hljóðeffektum beitt á gítara og radd-
ir svo úr varð gífurlega litríkt sjónarspil. Til-
rauna- og leikgleðin var allsráðandi en
lagasmíðarnar voru líka til staðar og raddanir
í síðara lagi minntu á hippalega Crosby, Stills
og Nash. Er hippinn að koma sterkur inn árið
2015?
Eftir hlé stigu fyrstir á svið Yolo Swagg-ins and the Fellatio of the Bling sem spila
tónlistarstefnuna CrunkCore, sem mætti þýða
sem öskur-elektró. Tvímælalaust skemmtileg-
asta öskur-elektróband sem ég hef heyrt í á Ís-
landi.
Við tóku Distort City og spiluðu rokk semgekk svakalega vel upp í fyrra laginu,
sérstaklega þegar báðir gítarleikarar sungu,
og annar þeirra hljómaði meira að segja dálít-
ið eins og Jim Morrison úr Doors, sem verður
að teljast fremur kúl. En svo gerðist eitthvað
allt annað í síðara laginu sem endaði á mjög
svo ó-kúl vó-ó-kafla. Geriði fleiri lög með söng
sem er í anda Jim Morrison og sleppiði vó-ó og
heimurinn fellur að fótum ykkar, strákar.
Elgar er illskilgreinanleg, enda segistsveitin spila ólíkar tónlistarstefnur, allt
eftir skapi hverju sinni. Á sunnudagskvöld
hefði fyrra lagið þeirra getað sómt sér sem
létt-djass undir borðhaldi eða sem undirspil
fyrir gömlu dansana, og svo voru einhver
furðuleg Chris Rea-áhrif á síðara lagi þeirra.
Elgar er mjög óvenjuleg Músiktilrauna-
hljómsveit, en einmitt líka sönnun þess að allt
rúmast í þessari stórkostlegu hljómsveit-
arkeppni.
Lokahljómsveitin, Áhryf, var rokktríó ánsöngs og eins og svo oft vill verða saknaði
maður söngs er líða tók á prógrammið, enda
erfitt að halda úti rokki af þessari gerð án þess
að endurtaka sig og enda á einhverju djammi.
Gítarleikari átti þó marga prýðilega spretti og
skapaði sannfærandi hljóðheim, þótt djamm-
aður væri.
Niðurstaðan eftir kvöldið kom ekki áóvart: Tvær þéttustu og best undirbúnu
sveitir kvöldsins komust áfram, Vára með
kosningu úr sal en Par-Ðar hlaut kosningu
dómnefndar. Tilraunirnar eru hafnar og nú
má koma vor.
Vorboðinn ljúfi
Áhryf Erfitt er að halda úti rokki af þessari
gerð án þess að endurtaka sig.
Elgar Elgar er illskilgreinanleg, enda segist
sveitin spila ólíkar tónlistarstefnur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Par-Ðar Hlaut kosningu dómnefndar og komst áfram í Músíktilraunum.
Distort City Gekk svakalega vel upp í fyrra
laginu en ekki í síðara laginu.
Öskur-elektró Yolo Swaggins and the Fellatio of the Bling spila tónlistarstefnuna CrunkCore.
Deffice Þrátt fyrir fögur fyrirheit um áhrifa-
valda var bandið full átakalítið.
Vára Þriðja hljómsveit á svið var Vára úr Kópavogi og þar á bæ var mikið búið að pæla, í sándi,
lögum og útsetningum. Rödd söngvarans var eftirminnileg, segir m.a. um sveitina.
Gummi Hebb Var fyrstur á svið og flutti
léttpoppaða nýbylgju-raftónlist.
Tramps Skörtuðu skemmtilega rokkaðri söngkonu með spennandi rödd.
Músíktilraunir 201538