Morgunblaðið - 08.04.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Engjateigi 5 • Sími 581 2141
Ný buxnasending
frá Gardeur
Verðlistinn 50 ára
Þökkum viðskiptin í gegnum árin
Af þessu tilefni er 20% afsláttur
af öllum vörum þessa viku
v/Laugalæk • sími 553 3755
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Perfect fit
Roxy
Ný sending
Vertu
vinur
á
Rauði krossinn á Íslandi hefur sent
tvo sendifulltrúa til Jemen til að
sinna stríðssærðum. Elín Jakobína
Oddsdóttir skurðhjúkrunarfræð-
ingur er nú stödd í Djibútí þar sem
teymi hennar bíður eftir að komast
inn í Jemen þar sem hún mun starfa
á sjúkrahúsi í borginni Aden. Jón
Magnús Kristjánsson bráðalæknir
bíður þess nú að komast til Djibútí
og mun einnig starfa á sjúkrahúsinu
í Aden. Þar munu þau gera skurð-
aðgerðir á þeim sem særst hafa í
stríðinu sem þar geisar.
Eru þau bæði vanir sendifulltrúar
Rauða krossins en áður störfuðu þau
meðal annars á Haítí við að sinna
slösuðum eftir jarðskjálftana sem
skóku landið árið 2010.
Í kjölfar loftárásanna sem gerðar
voru á Jemen 25. mars síðastliðinn
hafa yfir 300 manns látist og þar af
um 200 óbreyttir borgarar. Þúsundir
hafa særst og eru margar borgir án
vatns og rafmagns.
Alþjóða Rauði krossinn sendi frá
sér yfirlýsingu 4. apríl síðastliðinn
þar sem krafist er 24 stunda hlés á
bardögum til að koma hjálpar-
gögnum inn í landið.
Íslendingar til aðstoðar í Jemen
Elín Jakobína
Oddsdóttir
Jón Magnús
Kristjánsson
Rauði krossinn
sendi lækni og
hjúkrunarfræðing
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, færði í gær
starfsfólki fjármálaráðuneytisins
orkustykki og bréf þar sem hún seg-
ist bíða spennt eftir kostnaðarmati á
tveimur húsnæðisfrumvörpum sem
hún hyggst leggja fyrir Alþingi á
þessu vorþingi. Þetta kom fram á
fésbókarsíðu Eyglóar í gær.
Í bréfinu til fjármálaráðuneytisins
segir einnig að vonandi muni „þessir
orkubitar hjálpa ykkur við að meta
áhrifin á ríkissjóð og þjóðarbúskap-
inn að hjálpa þeim allra fátækustu
að fá öruggt húsaskjól“.
Ríkisstjórninni tókst ekki að af-
greiða frumvörpin tvö fyrir páskafrí,
en þau eru enn í kostnaðarmati hjá
fjármálaráðuneytinu. Eygló hyggst
hins vegar leggja
frumvörpin fram
eftir páska og þá
með afbrigðum,
enda rann frest-
urinn til að leggja
fram ný þingmál,
sem eiga að kom-
ast á dagskrá fyr-
ir sumarhlé, út
hinn 31. mars síð-
astliðinn. Snúa
frumvörpin að stofnkostnaði vegna
félagslegs leiguhúsnæðis og húsa-
leigu- og vaxtabótum.
Hefur Eygló sagt að húsnæðis-
frumvörpin séu mikilvægt skref í
rétta átt til að greiða úr þeim vanda
sem ríkt hefur á húsnæðismarkaði.
„Vonandi munu þessir
orkubitar hjálpa ykkur“
Eygló
Harðardóttir