Morgunblaðið - 08.04.2015, Page 11
Gult púður Sumir segja að gulur sé hamingjulitur og þessi stúlka tók gulu púðri fagnandi í Litahlaupinu.
undir 8 ára aldri fá frítt í fylgd með
fullorðnum. Á The Color Run hittist
fólk og kynnist og fregnir herma að
það hafi leitt af sér tíu trúlofanir og
eitt brúðkaup. Þetta er því sann-
kölluð kærleikssamkoma.“
Skaðlaust maísenamjöl
Davíð segir að það hafi verið
heilmikið ferli að fá litina sem úða
eigi yfir hlauparana til Íslands frá
Indlandi, en þeir eru ekki málning
heldur náttúrulegt litapúður sem
gert er úr kornsterkju, sem við
þekkjum betur sem maísenamjöl.
„Þetta er skaðlaust en vissulega
ættu þeir sem eru mjög viðkvæmir í
öndunarfærum kannski síður að
taka þátt í hlaupinu. Fólk þarf ekki
heldur að hafa áhyggjur af því að lit-
irnir skemmi fötin en við mælum
samt með að fólk mæti í sínum
hversdags hlaupafötum en ekki rán-
dýrri merkjavöru, bara til að vera al-
veg viss. Auk þess fylgir þvottaefni í
þátttökupakkanum. Ég hef sjálfur
tekið þrisvar þátt í The Color Run og
skórnir mínir og fötin hafa öll komið
sem ný úr þvotti eftir hlaupið,“ segir
Davíð og bætir við að stemningin
hafi verið einstaklega skemmtileg í
þessi skipti sem hann tók þátt.
Viltu úða yfir hlauparana?
Davíð segir að hluti þátttöku-
gjalda hlaupsins renni til góðgerð-
arsamtaka á Íslandi.
„Við stefnum að því að gefa
fimm milljónir til samtaka sem
tengjast réttindum barna og munum
tilkynna síðar hvaða samtök það
eru.“
Á nýrri vefsíðu íslenska Lita-
hlaupsins, www.thecolorrun.is, má
nálgast allar upplýsingar, þar er
hægt að skrá sig í hlaupið (þar er
linkur inn á midi.is) og þar geta einn-
ig þeir sent póst sem áhuga hafa á að
taka að sér að úða litapúðri yfir
hlaupara, eða með öðrum orðum:
langar að vera litabomba. Þeir hinir
sömu geta sent póst á netfagið:
island@thecolorrun.com
Einnig getur fólk freistað þess
að vinna sér þátttökumiða í hlaupið
með því að læka Facebook síðu The
Color Run.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
The Color Run var fyrst haldið árið 2012 í Phoenix í Arizona og var það
Bandaríkjamaðurinn Travis Snyder sem kom þessu hlaupi á laggirnar til
að hvetja bæði atvinnu- og áhugahlaupara til að hlaupa saman til gam-
ans. Á síðustu þremur árum hefur hlaupið farið sigurför um heiminn því
um er að ræða einstakan fjölskylduviðburð sem haldinn hefur verið í
meira en 40 löndum og tvær milljónir manna hafa tekið þátt. Árið 2014
voru hlaupin meira en 300 hlaup í meira en 50 löndum og er The Color
Run orðið tröllvaxinn alheims viðburður.
Þrátt fyrir að hlaupið gangi út á skemmtun og upplifun þá stuðlar það
líka að bættum lífsstíl. 60% þátttakenda í The Color Run eru að hlaupa 5
km í fyrsta sinn og taka flestir þessara aðila þátt í fleiri hlaupum og öðr-
um skemmtilegum keppnisviðburðum í kjölfarið. „Það er okkur mikið
gleðiefni að viðburður okkar leiði fólk til heilbrigðari og virkari lífsstíls,“
er haft eftir Snyder, upphafsmanni The Color Run.
(Texti af nýjum vef íslenska litahlaupsins: www.thecolorrun.is)
Tröllvaxinn alheimsviðburður
THE COLOR RUN
Stokkhólmsmeyjar Þessar skvísur hlupu í The Color Run í Svíþjóð.
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Klausturbleikja
Heitur matur
í hádeginu
Stór pillaður humar
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim
Glænýr
rauðmagi
Nýlöguð
humarsúpa