Morgunblaðið - 15.04.2015, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.04.2015, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015 ÁLÞAKRENNUR Viðhaldslitlar Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar. Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki. Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is HAGBLIKK ehf. Árið í ár er stórt fyrir frú Vigdísi Finn- bogadóttur. Fyrir nokkrum vikum var fyrsta skóflustungan tekin að Vigdísar- stofnun, alþjóðlegri miðstöð tungumála og menningar, og í júní nk. verða 35 ár liðin frá forsetakjöri henn- ar. Svo á frú Vigdís líka afmæli í dag en í tilefni þess viljum við í Íslensk-japanska félaginu færa henni afmælisgjöf. Í gegnum tíðina hefur Vigdís átt í góðu sambandi við Japani en landið hefur hún heimsótt margoft og komið á tengslum íslenskra og jap- anskra vísindamanna, listamanna og fólki sem vinnur við góðgerða- mál. Vigdísi er að þakka að styrkt- arsjóðurinn Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation bætti Ís- landsdeild við stofnunina með það að markmiði að styrkja Íslendinga í verkefnum tengdum Japan. Margir hafa notið góðs af sjóðnum á sviði menningar og vísinda og þar á með- al félagar Íslensk- japanska félagsins. Árið 1987 fór Vigdís á fund Hirohito Jap- anskeisara, en hún var síðasti þjóðhöfðinginn sem átti fund með keisaranum áður en hann lést tveimur ár- um síðar. Vigdís lagði sig jafnframt fram við að kynnast almennum borgurum í Japan á ferðalögum sínum þar og voru Bessastaðir alltaf opnir, þegar ýmsir hópar frá Japan komu til Íslands í ólíkum er- indagjörðum. Eitt sinn tók hún á móti hópi japanskra húsmæðra sem voru að kynna sér íslensk heimili og endurnýtingu sorps hér á landi. Í gegnum tíðina hefur Vigdís lagt áherslu á hversu mikilvæg tungu- mál séu Íslendingum. Til þess að vera virkir í alþjóðasamfélaginu er nauðsynlegt fyrir okkur að læra erlend tungumál. Eldmóður frú Vigdísar Finnbogadóttur og hennar samstarfsfélaga er ástæðan fyrir því að Stofnun Vigdísar Finnboga- dóttur í erlendum tungumálum var sett á stofn. Vafalaust á hún eftir að styrkja menntun og rannsóknir á tungumálum og tungumálakennslu. Í tilefni dagsins vill Íslensk- japanska félagið styrkja Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur með hundrað þúsunda króna styrk. Þetta er lítill þakklætisvottur frá fé- laginu með óskum um bætt skilyrði fyrir rannsóknir og kennslu í jap- önsku og japönskum fræðum í framtíðinni. Styrkurinn gæti von- andi hvatt fleiri til að styrkja stofn- unina svo að þessi glæsilega ný- bygging við Háskóla Íslands nýtist sem fyrst. Til hamingju með afmælið, Vigdís Finnbogadóttir! Íslensk-japanska félagið styrkir stofnun Vigdísar Finnbogadóttur Eftir Stefán Atla Thoroddsen » Íslensk-japanska félagið rifjar upp atvik þar sem Vigdís hefur komið að tengsla- myndun á milli Íslands og Japans. Félagið gefur henni einnig gjöf. Stefán Atli Thoroddsen Höfundur er formaður Íslensk- japanska félagsins. Vegna umræðu og vandræðagangs ráðherra með náttúrupassa þá langar mig að segja frá því hvern- ig Ítalir rukka fyrir „náttúru- passa“. Við hjónin vorum í Róm fyrir skömmu og þegar við fórum af hótelinu vorum við rukkuð um sex evrur pr. mann pr. nótt. Okk- ur var sagt að þetta væri nýr skattur sem lagður hefði verið á um áramótin 2013-2014. Þessi skattur var innheimtur á hótelinu og lagður á alla gesti sem koma til landsins. Mér var sagt þetta væri gert á öllum hótelum, a.m.k. í Róm. Okkur hafði verið sagt að þetta væri gert, en við bjuggumst ekki við að þetta væri svona há upphæð, eða 36 evrur á okkur hjónin fyrir þrjár nætur. Ég sat þarna þónokkra stund í lobbíinu áður en við fórum og sá ekki annað en allir borguðu þetta án þess að þrasa. Ég held að svona fyrirkomulag sé auðveldara í framkvæmd og mun réttlátara, þ.e. að láta gesti borga pr. gistinótt, heldur en að setja þetta gjald á alla Íslendinga, fólkið sem býr í landinu. Við ætt- um ekki að þurfa að borga sér- staklega fyrir að skoða okkar eigið land. Anna Einarsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Réttlátari náttúrupassi Passi Sanngjarnt er að ferðamenn borgi fyrir að fá að fara um náttúruna. Morgunblaðið/RAX Vísindi eru enginn heilagur sannleikur, ekki heldur er trúin sannleikur! Annað slagið rekst ég á það viðhorf, eða trú að þegar vísinda- legur rökstuðningur er ekki til staðar þá geti málið ekki verið satt. Ég hlæ innra með mér þegar ég heyri þetta viðhorf, vegna þess að það er eiginlega bara fyndið. Bara ef þú getur ekki mælt eitthvað, þá er það ekki til, eða það sem er enn betra, ef eitthvað hefur ekki verið rannsakað, þá getur það alls ekki verið til? Einu sinni var talið að jörðin væri flöt, samkvæmt niðurstöðum vís- indanna í þá daga. En þó svo að vís- indin héldu þessu fram, þá var jörðin alls ekki flöt! Sama hve margir trúðu því þá var jörðin alls ekki flöt! Það kemur fyrir að fólk sem hefur ofurtrú á vísindum telji að það sé boðberar sannleikans og að aðrir eigi að vera sammála því. Kannski er eitt skelfilegasta dæmið um slík, þegar Adolf Hitler tókst að fá alltof marga til að trúa því að „vísinda- legar“ skoðanir hans væru sannleik- urinn. Sex milljón mannslífum síðar var heil heimsálfa í sárum. En af hverju er ég að tala um þetta? Ég er jarðeðlisfræðingur og annar tveggja stjórnenda Heilsu- meistaraskólans. Ég vann við vís- indarannsóknir í fjögur ár og veit að það er ákveðin blekking að segja að vísindi sýni okkur sannleikann. Margt sem við tökum sem vísinda- legum sannleika er oft aðeins vís- indalegar túlkanir byggðar á fyr- irframgefnum ályktunum. Þannig eru margar rannsóknir unnar. Rannsakandinn fer af stað með til- gátu, býr til tilraun til að sanna til- gátuna og túlkar svo niðurstöð- urnar. Hvorki tilgátan né túlkunin jafngildir staðreyndum. Í heiminum má sjá tvær mismun- andi leiðir eða hugmyndafræði til að skilja veröldina. Ein er vélræn hug- myndafræði sem hefur verið áber- andi síðan á dögum Newtons: Allt er eins og vél og ef þú gerir við hvern hluta vélarinnar gerir þú við heildina og bíll er ágætt dæmi um þetta. Samhliða þessu lifir önnur hug- myndafræði, enn eldri og vaxandi. Það er hin heildræna hugmynda- fræði, að í öllu efni séu gagnvirk innbyrðis áhrif eins og í skammtaeðlisfræði. Fólk er að átta sig á þessu og aðhyllist nú í æ meira mæli þessa ný- stárlegu en gömlu hug- myndafræði. Vissir þú að það sem þú velur að rannsaka, tækin sem þú notar til að rannsaka, rannsókn- araðferðirnar sem þú notar og hvernig þú túlkar niður- stöður rannsókna þinna byggist allt á því hvaða vísindalegu hugmynda- fræði þú aðhyllist? Og þar með er komin góð ástæða þess að við getum ekki treyst vís- indum til að segja okkur sannleik- ann. Önnur ástæða fyrir því að ég á erfitt með að treysta fólki sem veifar fána vísindanna sem sannleikanum er að það velur að trúa á og vitna í vísindi sem passa inn í hugmynda- fræði þess, alveg sama þó að aðrar rannsóknir sýni fram á annað. En mig langar að játa að einu sinni þjáðist ég af því sem ég kalla vísindahroka. Ég hélt að fólk sem tryði á stjörnuspeki léti blekkja sig. En ég ákvað að sannreyna hana sjálf, til að athuga hvort það væri einhver sannleikur í stjörnuspeki. Ég stúderaði fræðin og gerði síðan um 50 stjörnukort fyrir aðra og ræddi niðurstöðurnar við fólkið. Ég komst að því að það er nægilega mikill sannleikur í stjörnuspeki til að hún geti verið hjálpartæki. Það þýð- ir þó ekki að ég trúi því að stjörnu- speki sé hinn eini sannleikur, heldur gagnlegar upplýsingar sem fólk get- ur notað til að bæta líf sitt. Mér er í raun sama hverju vís- indin og rannsóknir halda fram eða hverju fólk trúir. Það sem skiptir mig máli er hvað virkar. Vísindi eru ekki það sama og sannleikurinn Eftir Ann Birgitte Lassen Ann Birgitte Lassen »Margt sem við tök- um sem vísinda- legum sannleika er oft aðeins vísindalegar túlkanir byggðar á fyr- irframgefnum álykt- unum. Höfundur er Cand. Scient. í jarðeðl- isfræði og skólastjórnandi Heilsu- meistaraskólans. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbein- ingar fylgja hverju þrepi í skráning- arferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morg- unblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.