Húnavaka - 01.05.1981, Page 222
220
HÚNAVAKA
framkvæmd að ræða að það tekur
án efa mörg ár að ljúka henni og
er ráðgert að byggja húsið í
áföngum. Jón Guðmundsson
hefur verið ráðinn til að teikna
húsið.
Ferðamannaþjónusta.
Síðastliðið vor voru opnuð ný
tjaldsstæði á svonefndu „Sýslu-
mannstúni“. Svæðið hafði verið
girt af, gengið frá bilastæðum og
komið fyrir rennandi vatni. Síðar
er hugmyndin að koma þarna
upp húsi með snyrtiaðstöðu. Þessi
þjónusta virðist hafa komið í góðar
þarfir, því segja má að stöðug
notkun hafi verið allt s.l. sumar.
Blönduóshreppur gekkst fyrir
stofnun hlutafélags til kaupa á
Hótel Blönduósi á s.l. vori. Þá
hafði hótelrekstur legið niðri um
hríð og skapaði það vandræða-
ástand í þessum málum. Helstu
hluthafar í Hótel Blönduós h/f.
eru auk Blönduóshrepps, Kaup-
félag Húnvetninga, Pólarprjón
h/f, Sýslusjóður A-Hún. og Arn-
arflug h/f. Hótelið var keypt á 70
milljónir gkr. og gerðar á því
gagngerar endurbætur. Ferða-
skrifstofa ríkisins tók hótelið á
leigu til ársloka 1982. Hótelið var
opnað 17. júní s.l. og rekur
Ferðaskrifstofan það allt árið sem
Edduhótel.
Hér hefur verið greint frá
helstu framkvæmdum á vegum
sveitarfélagsins síðastliðin tvö ár.
Ekki er um tæmandi upptaln-
ingu að ræða, því verkefni sveit-
arfélagsins eru mörg og mismun-
andi. A síðastliðnu ári voru ýmis
smærri verkefni í gangi, sem lúta
að fegrun staðarins. Þá var nokk-
uð unnið að endurbótum á eign-
um sveitarfélagsins og má þar
nefna gamla skólahúsið, sem tek-
ið var í gegn að utan, og íþrótta-
völl staðarins, en þar var skipt um
efni i hlaupabrautum og varð af
því mikil bót því völlurinn var
ekki lengur talin keppnisfær. Eft-
ir er þó að laga sjálfan keppnis-
völlinn og verður það vonandi
hægt áður en langt um líður.
A miðju ári 1979 var gjald-
endabókhald sveitarfélagsins sett
í tölvuvinnslu, sem fram fer í
tölvukerfi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og er unnið í tölvu
Flugleiða h/f., en skráning gagna
er gerð í Búnaðarbankanum á
Blönduósi. Með þessari tilhögun
hefur skapast meira jafnvægi í
innheimtu en áður var. Tekjur
sveitarfélagsins koma nú jafnt og
þétt allt árið auk þess sem drátt-
arvextir reiknast nú jafnóðum á
öll vanskil. Hefur þetta fyrir-
komulag gefist mjög vel og nú
hefur verið ákveðið að setja allt
bókhald hreppsins í þessa tölvu-
vinnslu.
Eyþór E/íasson, sveitarstjóri.