Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
www.heilsudrekinn.is
Öll kínversk
leikfimi • Heilsubætandi Tai chi• Heilsu Qi Gong 5000 ára tækni• Kung Fu fyrir 4 ára og eldri
Í samstarfi við Kínverskan
íþróttaháskóla
Einkatímarog
hóptímar
Skeifan 3j | Sími 553 8282 |
frítt í leikfimi.
Skráðuþig
semfyrst
Fyrir alla
aldurshópa
Einvika
Fullt af
tilboðum
í gangi
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við hvikum hvergi frá uppskriftum og hráefni svo þetta
bragðast alveg eins og hinn sígildi breski réttur,“ segir
Höskuldur Ásgeirsson. Þeir Höskuldur, Benedikt
Sveinsson og Pétur Björnsson, allt menn sem starfað
hafa lengi í tengslum við sjávarútveginn, eru eigendur
Fish & chips-vagnsins við Vesturbugt við Reykjavíkur-
höfn.
Starfsemin þar hófst formlega í gær, þegar Stuart
Gill, sendiherra Breta á Íslandi, kom við. Tilviljun réð því
að heimsóknina bar upp á sama dag og þingkosningar
voru í Bretlandi. Byrjað var að afgreiða í vagninum í
Vesturbugt um síðastliðna helgi og hafa viðtökurnar ver-
ið góðar.
10.500 staðir í Bretlandi
„Við sem að þessu stöndum kynntumst hefðinni fyr-
ir fiski og frönskum úti í Bretlandi. Vildum innleiða hana
hér á landi og markaðurinn ætti að vera fyrir hendi, sé
meðal annars tekið tillit til þess að tugir þúsunda
breskra ferðamanna koma hingað á hverju einasta ári,“
segir Höskuldur. Til marks um vinsældir þessa réttar í
Bretlandi nefnir Höskuldur að þar séu starfræktir um
10.500 fish and chips-veitingastaðir og -vagnar þar sem
matbúið sé úr alls 70 þúsund tonnum af fiskflökum á ári.
Upp úr sjó eru það um 200 þúsund tonn af óslægðum afla
og stendur það magn nánast á pari við heildarkvóta ís-
lenskra skipa í þorski og ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári.
„Við lögðum mikið upp úr því að ná hinu rétta
bragði. Fiskinn þarf að steikja upp úr sérvalinni feiti en
áður hefur honum verið velt upp úr orly-deigi. Og svo er
þetta borið fram með frönskum kartöflum og mushy
peas-baunamauki,“ segir Höskuldur. Bætir við að fram-
tak þetta hafi kallað á talsverðan undirbúning, sem tók
heilt ár. Þurft hafi að afla ýmissa leyfa, útvega réttar
uppskriftir og hráefni svo og fisksöluvagn en sá sem nú
stendur við vesturhöfnina var keyptur frá Blackburn og
er splunkunýr. Og til þess að allt sé gert eftir kúnst-
arinnar reglum fengu eigendur Fish and chips Hilmar B.
Jónsson, þjóðþekktan meistarakokk, til að fylgja starf-
seminni úr hlaði. Þar er Hilmar á heimavelli, en fyrir um
hálfri öld þegar hann var lærlingur á Matstofu Austur-
bæjar voru fiskur og franskar þar oft á borðum og gerði
fólk þeim veitingum jafnan góð skil. „Nei, þessi matar-
gerð er ekkert flókin. Það er bara að komast á sporið og
bragðið,“ segir Hilmar.
Fá sér í svanginn
Það var Höskuldur Ásgeirsson sem fylgdi Stuart
Gill sendiherra að söluvagninum og mælti á tungu hans
að gesturinn væri svangur og það væri rétt að gefa hon-
um að borða.
„Lyktin er sú rétta og bragðið er gott,“ sagði sendi-
herrann og gæddi sér á fiski og frönskum. Hann rómaði
framtak þetta og sagðist þekkja vel frá Bretlandi hve
mikilla vinsælda réttur þessi nyti þar. Sagði jafnframt að
það væri ekki ósennilegt að hann kæmi öðru hvoru í
framtíðinni í vagninn og fengi sér í svanginn.
Vildum breskt bragð
Sendiherrann var svangur Fish and chips í Vesturbugt
fær góðar viðtökur Feiti, orly-deig og baunastappa
Morgunblaðið/ Sigurður Bogi
Fiskimenn Pétur Björnsson, Höskuldur Ásgeirsson, Stuart Gill, sendiherra Breta á Íslandi, og Benedikt Sveinsson.
Sígilt Fiskur, franskar og grænt baunamauk úr dós.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það hefur verið tekin ákvörðun
um að Íslandi verði ekki boðið á
fundi sem umsóknarríki taka
vanalega þátt í,“ segir Janis Berz-
ins, talsmaður Lettlands sem for-
mennskuríkis ESB.
Að sögn Berzins er hér um að
ræða fyrstu breytinguna á verk-
ferlum hjá Evrópusambandinu í
kjölfar bréfs Gunnars Braga
Sveinssonar utanríkisráðherra til
sambandsins 12. mars sl. Þetta sé
ákvörðun formennskuríkisins.
Berzins segir aðspurður ekki
hægt að segja til um hvenær og
þá hvort frekari breytingar verða
gerðar á umræddum verkferlum.
Lettar fara með formennsku í
ESB til 30. júní næstkomandi þeg-
ar Lúxemborg tekur við keflinu.
Engin áform um viðræður
Sem kunnugt er skrifaði Gunnar
Bragi í bréfinu að það væri
„bjargföst afstaða ríkisstjórnar-
innar að ekki skuli líta á Ísland
sem umsóknarríki ESB“ og að
ríkisstjórn Íslands liti „svo á að
rétt sé að ESB lagi verklag sitt að
þessu“. „Ríkis-
stjórn Íslands
hefur engin
áform um að
hefja aðildar-
viðræður að
nýju,“ sagði m.a.
í bréfinu.
Ísland var í
gær enn flokkað
sem umsóknarríki á vef sam-
bandsins. Talsmaður stækkunar-
deildar ESB vísar á samþykkt í
ráðherraráði ESB hinn 21. apríl
sl. Eins og komið hefur fram sam-
þykkti ráðið við það tilefni svar-
bréf ritað af Edgars Rinkevics,
utanríkisráðherra Lettlands, sem
nú fer með formennsku í ESB.
Sagði í bréfinu að tekið yrði mið
af afstöðu íslenskra stjórnvalda,
ásamt því sem breytingar á verk-
ferlum yrðu skoðaðar.
Hjá Maju Kocijancic, talsmanni
Johannes Hahns, sem fer með
stækkunarmál hjá ESB, fengust
þær upplýsingar að vefritið Poli-
tico hefði ranglega haft eftir tals-
manni ESB að aðildarumsókn Ís-
lands „yrði tæknilega opin næstu
tvö ár“. ESB tjáði sig ekki um
einstakar fréttir.
Ísland tekið af
boðslista ESB
Íslandi ekki lengur boðið á fundi sem
umsóknarríki Svar við áréttingarbréfi
Janis Berzins
Fyrstu sex dagar þessa maímánaðar
nú eru þeir sólríkustu í Reykjavík
frá því að sólarmælingar hófust fyrir
um 90 árum. Þetta kemur fram í
bloggi Sigurðar Þórs Guðjónssonar
(nimbus.blog.is). Hinn 6. maí skein
sólin í 16,1 klukkustund sem var
lengur en nokkru sinni frá því að sól-
skinsmælingar hófust. Eldra met
var 15,8 klukkustundir.
Daginn áður, 5. maí, var einnig
slegið sólarmet en þá skein sólin í
16,0 stundir en fyrra met var 15,7
stundir. 4. maí skein sólin í 15,7
stundir en áður hafði hún skinið
lengst í 15,6 stundir. Sólskinið hinn
3. maí sl. jafnaði fyrra met og naut
sólar í 16,0 stundir þann dag.
Sól var ekki gengin til viðar í gær
þegar punkturinn var settur aftan
við þessa frétt í glampandi sól. Sól-
skinsmetið hinn 7. maí var 16,1
klukkustund.
Veðurspáin gerði ráð fyrir því að
heiðskírt yrði að morgninum í dag
og svo léttskýjað fram eftir degi á
höfuðborgarsvæðinu.
Kuldi norðan úr höfum
Kalt hefur verið á landinu það sem
af er mánuðinum og hitinn talsvert
undir meðallagi. Fyrstu fimm daga
mánaðarins var meðalhitinn í
Reykjavík heil þrjú stig undir með-
allagi þessarar aldar en 2,3 stig und-
ir meðallagi áranna 1961-1990. Á
Akureyri er meðalhitinn -0,1 stig,
eða þrjú stig undir meðallagi áranna
1961-1990. Meðalhitinn á svæðinu
frá Skagafirði og austur og suður
um til sunnanverðra Austfjarða hef-
ur verið undir frostmarki.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur,
skrifaði í bloggi sínu (trj.blog.is) að
kuldinn þessa dagana ætti uppruna
sinn í Norður-Íshafi. „Þegar hlýna
tekur á vorin gerist það fyrst yfir
meginlöndunum og hinir stóru
kuldapollar vetrarins hörfa til norð-
urs og setjast gjarnan að yfir Norð-
ur-Íshafi. Þar skjóta þeir öngum í
ýmsar tilviljanakenndar áttir – og
svo vill til að þessa dagana liggur
einn anginn til okkar,“ skrifaði
Trausti. Hann benti á það á Face-
book-síðu Hungurdiska að mið-
vikudagurinn 6. maí hefði verið
þriðji dagurinn í röð með landsmeð-
alhita í byggð undir frostmarki.
Trausti skrifaði einnig að átta maí-
mánuðir hefðu byrjað kaldari í
Reykjavík síðustu 67 ár en nú.
gudni@mbl.is
Sólskinsmet sett í Reykjavík í maíbyrjun
Maímánuður hefur verið sólríkur fyrir sunnan Kalt hefur verið á landinu og hiti undir meðallagi
Morgunblaðið/Kristinn
Sól, sól skín á mig Fyrstu dagarnir í maí hafa verið sólríkari á höfuðborg-
arsvæðinu en dæmi eru um frá því að mælingar hófust fyrir um 90 árum.