Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Smáauglýsingar
Dýrahald
Cavalier hvolpar til sölu
Blendheim cavalier til sölu, fæddir
21.03.2015. Verða tilbúnir til afhend-
ingar 30.05.2015. Þeir verða með
ættbók frá HRFÍ. Fleiri upplýsingar
má fá í síma 8464221 eða e-mail
laudia92@hotmail.com
Hljóðfæri
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Íþróttir
Verðlaunagripir
- gjafavara -áletranir
Bikarar, verðlaunapeningar, barm-
merki, orður, póstkassaplötur,
plötur á leiði, gæludýramerki,
starfsgreinastyttur.
Fannar,
Smiðjuvegi 6, Rauð gata,
Kópavogi, sími 5516488
Til sölu
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Teg: 15450-18 Einstaklega mjúkir og
þægilegir sandalar úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 11.885.
Teg: 15450-19 Einstaklega mjúkir og
þægilegir sandalar úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 11.885.
Teg: 15450-102 Einstaklega mjúkir
og þægilegir sandalar úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 11.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Hjólbarðar
Matador heilsárs- og vetrardekk
175/65 R 14 kr. 12.950
195/65 R 15 kr. 15.700
215/70 R 16 kr. 25.900
235/60 R 18 kr. 37.500
255/55 R 18 kr. 39.900
255/50 R 19 kr. 45.700
275/40 R 20 kr. 58.900
Framleidd af Continental Matador
Rubber í Slóvakíu.
Frábær dekk á góðu verði
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi.
S. 544-4333.
Húsviðhald
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Hreinsa þakrennur,
laga vatnstjón, ryð á
þökum og tek að mér
ýmis smærri verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Kerrur
Humbaur gæða álkerrur
Bjóðum þessar léttu og sterku
álkerrur frá Humbaur Þýskalandi á
kr. 149.900. Gerð1380. Stærð 201 x
102 cm, burður 750 kg brúttó og 628
kg nettó. Skoðið heimasíðu okkar.
www.Topplausnir.is
Upplýsingar í síma 5177718.
Smiðjuvegur 40, gul gata.
Kópavogi.
Til leigu
Lokastígur, 101
Miðbær/Vesturbær —
Herbergi
Herbergi sem eru lítil, 10 til 15 fm
með húsgögnum, sameiginlegt eld-
hús, þráðlaust internet, baðherbergi
með sturtu. Langtímaleiga sem þýðir
12 mánuðir og lengur, kr. 60.000 til
70.000 þúsund. Kr 50.000 trygging
vegna skemmda . Tveir mánuðir fyrir-
fram. Laust . Senda póst .
osbotn@gmail.com
SUMARLEGIR OG SÆTIR
Teg. RAPTURE - þunnur, haldgóður
í 32-38 D, DD, E, F, FF, G, GG skálum
á kr. 9.985.
Teg. DECO - létt fylltur í 30-38 D,
DD, E, F, FF, G skálum á kr. 9.980.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
✝ Jón Agnarssonfæddist 24. júlí
1916 á Steinstúni í
Árneshreppi í Tré-
kyllisvík, Strönd-
um.
Hann lést 26.
apríl 2015 á Land-
spítalanum í Foss-
vogi.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
laug Þorgerður
Guðlaugdóttir, f. 20.1. 1889, og
Agnar Jónsson, f. 24.1. 1889.
Systkini hans voru Ingvar, f.
1914, d. 1996, Guðrún Ágústa, f.
1915, d. 1935, og fjögur systkini
sem létust í fæðingu.
Jón giftist Sigríði Tóm-
asdóttur frá Brimilsvöllum í
Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, 13.
júní 1943.
Þau eignuðust þrjú börn: 1)
Agnar, f. 30.3. 1944, sambýlis-
kona Ingibjörg Kristjánsdóttir.
Börn hans með Sigríði Sigurð-
ardóttur, fyrrverandi konu sinni:
a) Agnes, f. 10.6. 1970, sonur
hennar: Pétur, b) Jón, f. 15.2.
1976, maki hans er Helen Gróa
Guðjónsdóttir. Börn þeirra:
Katrín Birna, Agnar Guðjón,
María Snædís; 2) Guðlaug, f.
15.11. 1947, börn a) Ingólfur, f.
27.7. 1970, faðir Sigurður V. Ing-
ólfsson, b) Ágúst Bjarki, f. 1.2.
vitssamur og frábær verkmaður.
Börn og unglingar á þessum
tíma urðu líka að byrja ung að
hjálpa til á heimilum foreldra
sinna.
Jón vann á Djúpuvík við upp-
byggingu síldarverksmiðjunnar
þar, þegar síldarævintýrið var í
algleymingi. Síðan fór hann til
Þingeyrar við Dýrafjörð í nám í
vélvirkjun undir stjórn kennara
og stjórnanda sem var þekktur
fyrir vandvirkni og kunnáttu
með vélar og lauk Jón þar námi.
Jón flutti svo til Reykjavíkur
og hóf störf hjá vélsmiðjunni
Héðni og vann þar í nokkur ár.
Jón kynntist konu sinni, Sig-
ríði, í Reykjavík og bjuggu þau
fyrstu búskaparárin í Tjarnar-
götu 10a, beint á móti Ráðhús-
inu, þar til þau fluttu í Kópavog.
Þar byggðu þau sér framtíðar-
heimili fyrir fjölskylduna á
Digranesvegi 48b, sem þá var, en
er nú Digranesheiði 8, Kópavogi.
Á svipuðum tíma byggðu þau
véla- og bifreiðaverkstæði við
hliðina á heimili sínu sem heitir
nú Bifreiða- og vélaverkstæði
Jóns Agnarssonar. Jón starfaði
þar eftir að hann hann hætti í
Héðni og flutti í Kópavog. Jón
vann þar við bifreiða- og véla-
viðgerðir ásamt syni sínum alla
ævi síðan, þar til fyrir örfáum ár-
um, en Agnar sonur hans lærði
vélvirkjun eins og faðir hans.
Útför Jóns fer fram frá Digra-
neskirkju í dag, 8. maí 2015, kl.
13.
1975, faðir Magnús
P. Karlsson, fyrr-
verandi sambýlis-
maður; maki Ágúst-
ar Bjarka er Sigur-
veig Margrét Stef-
ánsdóttir. Börn
þeirra: Sverrir Þór,
Snorri Marteinn,
Magnús Steinar og
Kári Stefán. 3)
Ragnheiður, f. 2.12.
1953, börn hennar
með fyrrverandi manni sínum,
Guðmundi Sighvatssyni: a) Sig-
ríður Hrönn, f. 30.10. 1978, barn
hennar: Sunna, b) Atli Örn, f.
15.7. 1980, maki hans er Vigdís
Lúðvíksdóttir. Börn þeirra: Sól-
ey Nótt og Úlfar Alexander.
Jón fæddist á Steinstúni í Ár-
neshreppi og ólst þar upp fyrstu
æviárin, en móðurforeldrar hans
bjuggu þar.
Síðan flutti fjölskyldan að
Melum í Árrneshreppi og bjó þar
í nokkur ár og loks fluttu þau að
Hrauni í sömu sveit þegar Jón
var kominn nálægt fermingu og
bjuggu þar næstu árin þangað til
foreldrar hans fluttu til Reykja-
víkur sökum sjóndepru föður
hans.
Það kom snemma í ljós að Jóni
var margt til lista lagt og sér-
staklega var hann hagur í hönd-
um eins og foreldrar hans, hug-
Afi minn, Jón Agnarsson,
fæddist árið 1916 á bænum
Steinstúni, í Árneshreppi í Tré-
kyllisvík, á Ströndum, sem
Hrafn Jökulsson nefnir af-
skekktustu sveit á landinu í
bókinni „Þar sem vegurinn end-
ar“, frá 2007, en síðan bjó fjöl-
skyldan lengi á bænum Hrauni,
sem nefndur er nýbýli í bókinni
„Strandamenn“ eftir Jón
Guðnason.
Afi mundi tímana tvenna og
upplifði miklar þjóðfélagsbreyt-
ingar. Hann lærði vélvirkjun á
Þingeyri og hefur sennilega erft
hæfileika frá föður sínum, sem
var annálaður hagleiksmaður.
Ingvar bróðir hans var fjölfræð-
ingur, rithöfundur og listmálari,
en vann lengst af sem forstjóri
Barðans, svo áttu þeir eina syst-
ur sem dó aðeins 19 ára, Guð-
rúnu Ágústu.
Afi og Ingvar unnu á Djúpu-
vík en ömmu Sigríði kynntist
hann heima hjá Ingvari sem
leigði á Mánagötunni í Reykja-
vík, en hún var systir Aðalheið-
ar, sem varð kona Ingvars.
Amma og afi voru vel kristin.
Sálmarnir sem þau kenndu mér
voru það fyrsta sem ég lærði í
tónlist og fann ég að heimilislíf-
ið hjá þeim og fólki af þeirra
kynslóð var nokkuð sem ég
kunni vel að meta. Áhrifin verða
æ dýrmætari með tímanum.
Ég held að metnaður afa hafi
ævinlega verið sá að vera eins
vandvirkur og hann gat, frekar
en að verða auðugur af viðgerð-
unum. Ánægja viðskiptavinanna
skipti hann miklu. Hann var
verkfræðingur í eðli sínu og
fann ótal lausnir á erfiðum við-
fangsefnum, sérstaklega á þeim
tímum þegar bílar voru svo
sjaldgæfir og verðmætir að
mikilvægt var að gera við þá en
ekki bara að kaupa sér nýjan
bíl.
Afi var mjög mildur uppal-
andi, faðir og afi, glaðlyndur og
söngelskur, eins og amma mín
líka var. Þau nutu sín vel úti í
náttúrunni, oft var farið í Heið-
mörk og sungið í bílnum á leið-
inni, revíulög, þjóðlög og hvað-
eina.
Hvernig er hægt að komast í
gegnum lífið án bjartsýninnar
og lífsgleðinnar sem hann gaf
öllum í kringum sig? Maður
verður að reyna að læra af hon-
um og tileinka sér þá góðu kosti
sem hann hafði til að bera.
Vel tel ég þau ömmu og afa
hafa sinnt því að ala mig upp, að
sínu mikla leyti. Á grænum
grundum framlífsjarðar hafa
þau nú aftur sameinast, ásamt
öðrum ættingjum og vinum.
Ingólfur Sigurðsson.
Sumt fólk á lífsleiðinni verður
manni minnisstæðara en annað
af ýmsum ástæðum. Heiðurs-
maðurinn Jón Agnarsson er
einn þeirra. Hann andaðist á
Borgarspítalanum 26. apríl síð-
astliðinn, á 99. aldursári. Ég
kynntist Jóni haustið 1988 í
gegnum dótturson hans, Ingólf
Sigurðsson, en við Ingólfur vor-
um þá báðir á málabraut
Menntaskólans í Kópavogi. Jón
hafði þá verið ekkill í tæp þrjú
ár, en eiginkonu hans, Sigríði
Tómasdóttur, hafði ég lítillega
kynnst í gegnum Kirkjufélag
Digranesprestakalls, þar sem
hún var virk á meðan hún lifði.
Aldrei sagði hún mér þó að hún
ætti dótturson á aldur við mig,
en tilviljun réð því að nokkrum
árum síðar lentum við Ingólfur
saman í bekk og með okkur þró-
aðist djúp vinátta. Það er óneit-
anlega svolítið sérstakt að alast
nær alfarið upp í skjóli afa síns
og ömmu, en í stormum brost-
inna fjölskyldutengsla voru þau
Jón og Sigríður klettarnir í upp-
vexti þessa dóttursonar síns.
Sigríður lést skyndilega 28. des-
ember árið 1985, en þá var Ing-
ólfur aðeins fimmtán ára gam-
all. Allt frá fyrstu kynnum
mínum við Jón nokkrum árum
síðar tók hann mér vel og fagn-
aði mér alltaf innilega er ég
kom í heimsókn. Þeir sóttu mik-
inn styrk hvor til annars, ekki
síst þegar árin færðust yfir. Jón
rak bifreiðaverkstæði við heim-
ili sitt að Digranesvegi 92, sem
síðar varð Digranesheiði 8,
ásamt Agnari syni sínum og
starfaði með honum þar á með-
an hann gat, en fylgdist með
nánast allt fram til hinstu
stundar. Við heimilið stóð einnig
bíllinn hans, gulur Oldsmobile
frá árinu 1926, sem vakti gríð-
arlega athygli fjölda fólks. Ók
hann þeim bíl sínum sjálfur eitt-
hvað fram yfir nírætt. Þeir eru
ekki margir á tíræðisaldri sem
eiga gangfæran bíl sem aðeins
er tíu árum yngri en þeir sjálfir.
Jón var afskaplega vinnusamur
og vandvirkur en umfram allt
lífsglaður maður, sem hafði
gaman af léttu gríni og unni
söng og dansi. Hann var einnig
reglusamur og sérstaklega
heilsuhraustur, enda gætti hann
vel að mataræði sínu. Hann fór
reglulega í sund og síðar stuttar
gönguferðir, auk þess sem síð-
ustu árin naut hann þess að
dansa með eldri borgurum að
Stangarhyl 4. Kom hann stund-
um prúðbúinn til dyra, er ég
kom til Ingólfs undir kvöldmat
og spurði mig, hvort ekki væri
sunnudagur í dag! Fór hann
þangað allt fram í febrúar á
þessu ári, er heilsu hans tók að
hraka. En lífsviljinn var enn til
staðar um stundarsakir. Aldrei
leit hann á sig sem gamalmenni.
Vakti hann oft undrun þess
fólks sem annaðist hann, jafnvel
undir það síðasta. Því fólki ber
að þakka alla alúð og umhyggju.
Jón stóð ætíð á meðan stætt var
og naut langrar ævi. Ég tengd-
ist Jóni Agnarssyni og fjöl-
skyldu hans sterkum vináttu-
böndum og tel ég mig vera
ríkari að hafa kynnst honum. Ef
til vill er það aðeins tilviljun, að
hann lést á sömu deild Borg-
arspítalans og faðir minn, sama
dag og móðir mín, bara sextán
árum síðar, og náði svipuðum
aldri og amma mín! Ég bið al-
góðan Guð um að blessa minn-
ingu þeirra hjóna, Jóns Agnars-
sonar og Sigríðar Tómasdóttur,
og sendi öllum ástvinum þeirra
hugheilar samúðarkveðjur.
Þorgils Hlynur Þorbergsson.
Jón Agnarsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar