Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 29.04.15 - 05.05.15
1 2
5 6
7 8
109
43
Viðrini veit ég mig vera
Óttar Guðmundsson
Í fangabúðum nazista
Leifur H. Muller
Mörk
Þóra Karítas Árnadóttir
Hilma
Óskar Guðmundsson
Breyttur heimur
Jón Ormur Halldórsson
Biðlund
Nora Roberts
Andersenskjölin
Eggert Skúlason
Ingunn Snædal - Ljóðasafn
Ingunn Snædal
Ekki snúa aftur
Lee Child
Almanakið
Ólafur Jóhann Ólafsson
Hún var merkileg fréttin um leifar
Lækjarkots, sem kom hér í blaðinu
nýlega. Ef svo reynist vera, að
þarna hafi fundist rústir þessa
sögufræga bæjar, þá skora ég á
Minjavernd að láta hanna bygg-
inguna, sem á að reisa á lóðinni,
þannig, að rústirnar verði sýnilegar
gestum og gangandi, og sömuleiðis
steinhleðslurnar, sem sýna stærð
Tjarnarinnar, því að það er engin
ástæða til að hafa svona merkar
minjar ósýnilegar í felum undir
steinsteypu. Frekar á að draga þær
fram í dagsljósið og sýna þær sem
hluta af sögu Reykjavíkur. Svona
minjar eru einmitt það, sem erlend-
ir ferðamenn vilja sjá á hverjum
stað, og við borgarbúar viljum
sömuleiðis fá að sjá þær, og þess
vegna finnst mér mikils virði fyrir
okkur að láta allar sögulegar minj-
ar vera til sýnis. Það á ekki að fela
fyrir neinum rústir bæjar, sem
konungur hefur heiðrað með nær-
veru sinni. Það má líka minna fólk
á, hversu stór Tjörnin okkar var í
eina tíð og stór hluti hennar sé
undir uppfyllingum í dag. Engin
ástæða til annars.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Varðveitið sögulegar minjar
og hafið þær sýnilegar
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fornleifauppgröftur Fornleifar
leynast víða.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 5. maí var spilaður
tvímenningur með þátttöku 30
para.
Efstu pör í N/S - % skor:
Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 61,1
Axel Lárusson - Sigfús Skúlason 55,9
Auðunn Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 55,0
Hulda Hjálmarsd. - Hrafnh. Skúlad. 54,2
Jón Sigvaldason - Katarínus Jónss. 53,1
A-V:
Kristján Þorlákss. - Óskar Ólafsson 63,1
Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss. 58,0
Tómas Sigurjs. - Jóhannes Guðmannss.
56,1
Ágúst Vilhelmss. - Kári Jónsson 56,1
Haukur Guðmss. - Sigurður Kristjánss.
54,7
BFEH spilar á þriðjudögum og
föstudögum í félagsheimili eldri
borgara í Hafnarfirði að Flata-
hrauni 3. Spilamennska byrjar kl.
13. Keppnisstjóri er Sveinn R. Ei-
ríksson og hjálpar hann til við
myndun para ef spilarar mæta
stakir.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Mánudaginn 4. maí var spilaður
tvímenningur á 16 borðum hjá
bridsdeild Félags eldri borgara í
Reykjavík.
Efstu pör í N/S:
Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 410
Trausti Friðfinnss. – Guðlaugur Bessas.
342
Kristín Guðbj. – Friðgerður Bened. 342
Friðrik Jónsson – Örn Isebarn 327
A/V
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 394
Óli Gíslason – Magnús Jónsson 370
Oddur Halldórsson – Örn Jónsson 369
Eggert Þórhallsson – Logi Þormóðss. 352
Spilað er í Síðumúla 37.
Gullsmárinn
Spilað var á 12 borðum í Gull-
smára mánudaginn 4. maí.Úrslit í
N/S:
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 197
Gunnar Sigurbjss. – Sigurður Gunnlss. 190
Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 188
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 181
A/V
Haukur Bjarnason – Hinrik Lárusson 194
Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 194
Reynir Bjarnason – Sigurður Gíslason 188
Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 187
„Eins og allir deyja
vegna sambands síns
við Adam, svo munu
allir lífgaðir verða
vegna sambands síns
við Krist.“ (1 Kor. 15:
22).
Guð talaði við Nóa,
sem var afkomandi
Sets, sonar Adams og
Evu, og ákvað að eyða
öllum jarðarbúum og
Kains niðjum. Nói byggði örkina
(skip) og allt gekk að óskum því Guð
var með í verki og í örkina leiddi Guð
Nóa, konu hans, syni og tengdadæt-
ur. Ásamt pörum af tegundum dýra
á jörðinni, væntanlega ósamkyn-
hneigðum karl- og kvendýrum.
Adam og Eva höfðu „fæðst“ í Eden í
nánast ofdekruðu umhverfi en nú
varð maðurinn að auðmýkja sig við
meira harðræði þegar örkin strand-
aði við/á jökli Ararats. Þar við bætt-
ist að í flóðinu höfðu líklega aur-
skriður runnið úr fjöllunum á
láglendið, hulið þar dauða skrokka
manna og dýra auk gróðurs. Leiða
má svo að því líkur að uppblástur á
landi hafi orðið þegar jörðin þornaði
og eyðimerkur myndast. Það hefur
tekið landið mörg ár að gróðurvinjar
mynduðust eftir flóðið. Nói og hans
fólk lét það þó ekki á sig fá, reisti alt-
ari og þakkaði Guði fyrir björgunina.
Syndin hélt þó áfram að freista
mannsins og fljótlega sótti í sama
horfið hvað óhlýðni við Guð varðaði.
Babelturninn var fyrsta stóra
mannvirkið sem mannkynið stóð að
sameiginlega. Turninn átti að ná til
himna og vera sameiningartákn svo
mannkynið, sem þá talaði eitt tungu-
mál, sundraðist ekki um alla jörðina.
Þetta var andstætt vilja Guðs sem
hafði sagt við Adam og Evu, verið
frjósöm og uppfyllið jörðina. Ráða-
mennirnir leituðu ekki eftir áliti
Guðs varðandi framkvæmdina og
ætluðu greinilega að treysta völd sín
með byggingunni og sýna hvað þeir
gætu án Guðs. Guð hafði skapað
manninn til samfélags við sig og tók
því í taumana og ruglaði tungumáli
mannanna. Við það dreifðust menn í
allar áttir „heimskreppa“ skall á og
engir lífeyrissjóðir voru til á þeim
tíma, til að þjóðnýta og ljúka stór-
verkefnum. Turninn dagaði því uppi
hálfkláraðan. „Athafnamenn“ sem
hafna Guði og éta af diskum annarra
eiga langa sögulega hefð. Syndin
hélt/heldur þó áfram að elta mann-
kynið út um allar jarðir og kunni/
kann þjóðtungur allra.
Þessar frásagnir frá
„bernsku“ mannkyns-
ins sýna að þrátt fyrir
syndafallið tók Skap-
arinn ábyrgð á mann-
kyninu og þráði að end-
urheimta það. Þegar
Guð tók þá djörfu
ákvörðun að koma
sjálfur til jarðar í syni
sínum, Jesú Kristi, var
útséð með að maðurinn
gæti sigrast á synd-
samlegu líferni sínu án
hjálpar Guðs. Jesús kom og vann sitt
hjálpræðisverk á krossinum og áður
en hann sté upp til himna og tók þar
stöðu sína sem Guð kristinna manna.
Sagði hann við lærisveinana: „Farið
því og gerið allar þjóðir að lærisvein-
um, skírið þá í nafni föður og sonar
og heilags anda og kennið þeim að
halda allt það sem ég hef boðið yður.
Sjá, ég er með yður alla daga allt til
enda veraldar.“ (Mt. 28: 19-20)
Allir sannkristnir menn gera
Biblíuna að málsvara sínum og trúa
orði hennar.
„Þeir gleyma, eða vilja ekki muna
eftir því, að valdi heiðinna presta,
sem iðkuðu alla mögulega lesti, er
leiða af trúarbrögðum þeirra, svo að
ekki eru dæmi til slíks annars staðar
í heiminum, svo sem mannblót,
barnamorð, blóðugir bardagar, þar
sem sigurvegararnir þyrmdu hvorki
konum né börnum, öllu þessu hefur
kristindómurinn útrýmt, og einnig
hefur hann að miklum mun dregið úr
óráðvendni, drykkjuskap og laus-
læti. Ef ferðamaður gleymir þessu,
sýnir það ódrengilegt vanþakklæti,
því að ef hann skyldi verða fyrir því
að bíða skipbrot við einhverja
ókunna strönd, mundi hann biðja
Guð þess innilega, að kenning
kristniboðanna næði þangað“. Tilv. í
Charles Darwin, „Dagbók rannsókn-
armannsins“.
Það sem landkönnuðurinn og vís-
indamaðurinn á við er að allir
kristnir menn, þó af ólíku þjóðerni
séu, eiga tengsl í gegnum frelsarann
Jesú Krist og með játningu synda
sinna við kross hans endurfæðist
hinn iðrandi maður inn í ríki Guðs
þar sem allir skilja sameiginlega
andlega tungumálið, tungumál kær-
leikans og sannleikans sem þeir ein-
ir skilja sem eiga þegnrétt í Jerúsal-
em himnanna í anda Jesú Krists.
Guð Biblíunnar stofnaði sérstakt
ríki fyrir sína þjóð, himnaríki, sem
hann færir niður til jarðarinnar í
hjarta hvers iðrandi syndara sem
mætir við kross hans. Menn hafa
gert margar tilraunir til að gefa
mannkyninu eitt veraldlegt tungu-
mál aftur en það hefur í raun ekki
tekist þrátt fyrir góða viðleitni.
Jesús segir „Það er andinn sem
lífgar, maðurinn án hans megnar
ekkert. Orðin sem ég hef talað til yð-
ar, þau eru andi og þau eru líf.“ (Jh.
6: 63) Með því að opna hjarta sitt
fyrir hjálpræðisverki Jesú Krists
eignast menn andlegt tungumál sem
skilst á himni og jörðu. „Þjóðtunga“
heimsins sem glataðist á tímum
Babelsturnsins þegar Guð ruglaði
tungumáli jarðarbúa er nú gefin aft-
ur í andlegum skilningi og nú á for-
sendum Guðs í Jesú Kristi. Heilagur
andi gerir Biblíuna að erindreka og
talsmanni sínum hér á jörð, hún er
orðabók andlegs alheimstungumáls.
Syndin er illt andavald, högg-
ormur sem eitrar blóðrás hins
mannlega siðgæðis. Hjálpræðið í
Jesú Kristi er eina aflið sem getur
sigrað syndina.
Ég bið Íslendingum Guðs friðar.
Æviágrip syndarinnar og
tungumál hjálpræðisins
Eftir Ársæl
Þórðarson »Nói og hans fólk lét
það þó ekki á sig fá,
reisti altari og þakkaði
Guði fyrir björgunina.
Ársæll Þórðarson
Höfundur er húsasmiður.