Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Einhverjir hafa furðað sig á fjölda
einkaþotna á Akureyrarflugvelli und-
anfarið. Skýringin er svo sem ekki
flókin og í aðra röndina skemmtileg:
efnaðir útlendingar vilja renna sér á
skíðum af fjallatoppum við Eyjafjörð.
Lenda á Akureyri, stíga upp í þyrlu
og svífa norður á skíðasvæðin. Er það
ekki hið besta mál? Ég hef aldrei stig-
ið á „fjallaskíði“ en það hlýtur að vera
býsna gaman …
Hátíðin List án landamæra, þar
sem fatlaðir sýna listaverk af ýmsu
tagi, var sett fyrir sunnan um daginn,
en við hátíðlega athöfn í Hofi á Akur-
eyri í gær. Listamaður hátíðarinnar
er Akureyringurinn Karl Guðmunds-
son, Kalli. Voru verk hans kynnt í
Hofi og síðan flutt leikgerð af sögu
Jóns Hlöðvers Áskelssonar, af nem-
endum Fjölmenntar, í leikstjórn
Skúla Gautasonar.
Fyrsti hápunktur átaksins Akur-
eyri á iði verður á morgun, laug-
ardag, þegar íþróttafélög innan
Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA)
kynna starfsemi sína fyrir bæjar-
búum. Þá verður einmitt haldið form-
lega upp á 70 ára afmæli ÍBA með
þeim hætti að bæjarbúum gefst kost-
ur á að spreyta sig við hinar ýmsu að-
stæður: flot í Sundlaug Akureyrar,
jógatímar, karate, golf, fullorðins-
fimleikar, sjósund og sjálfsnudd.
Langa ekki alla að vera með?
Vert er að geta þess að í dag,
föstudag, verður hinum ýmsu starfs-
stéttum att saman í skriðsunds-
keppni sundfélagsins Óðins.
Í Akureyrarlaug verður meðal
annars spurt: Eru prestar sneggri en
bæjarfulltrúar? Una íþróttakennarar
sér betur í vatni en tónlistarmenn?
Eru fastagestir laugarinnar hrað-
syndari en starfsmenn hennar?
Ljóst er að athyglisvert verður að
koma við í Akureyrarlaug á morgun.
Eins gott að Ragnheiði Runólfs-
dóttur, annarri konunni sem kjörin
var íþróttamaður ársins á Íslandi (og
er nú þjálfari hjá sundfélaginu Óðni),
er ekki stefnt gegn blaðamanni
Morgunblaðsins sem fjallaði um hana
á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992.
Það yrði líklega vandræðalegt þótt ég
nefni ekki fleiri nöfn í þessu sam-
bandi …
Hvernig væri að bjóða mömmu í
ekta kvenfélagskaffi í tilefni mæðra-
dagsins? er spurt í tilkynningu. Á
sunnudaginn verður heitt á könnunni
og kræsingar á borðum í Pakkhúsinu,
Hafnarstræti 19 á milli kl. 14 og 17
þar sem Hlífarkonur halda árlegt
kaffisamsæti. Rétt að taka fram að
posar verða ekki tengdir …
Samsýningin Sköpun bernsk-
unnar verður opnuð í Ketilhúsinu um
helgina. Þátttakendur eru nemendur
leik- og grunnskóla Akureyrar, tíu
myndlistarmenn og Leikfangasýn-
ingin í Friðbjarnarhúsi.
Uppistandarinn Fíllinn, Sigur-
vin Jónsson, fagnar 50 ára afmæli í
dag og heldur upp á það með
skemmtikvöldi á Græna hattinum.
Þar skemmtir hann ásamt ýmsum
vinum sínum. Rokkhljómsveitin
Dimma verður svo með tónleika á
staðnum á laugardagskvöldið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Engin landamæri Listamaðurinn Kalli í Hofi í gær. Við hlið hans er framkvæmdastýran Íris Stefanía Skúladóttir.
Þyrluskíðaferðir án landamæra
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Nýtt happdrættisár DAS er að
hefjast. Sigurður Ágúst Sigurðsson
forstjóri segir helstu breytinguna
vera þá að íbúðarvinningar fari úr
þremur í sex en hver íbúðarvinn-
ingur er að verðmæti 30 milljónir
króna. „Íbúðirnar í ár eru að eigin
vali, það er frjálst hvort fólk kaupir
íbúð eða ekki, það getur líka fengið
bara peninginn. Hér áður fyrr vor-
um við mikið með íbúðir en við höf-
um dregið út nærri 150 íbúðir. Það
hefur verið reynslan í gegnum tíð-
ina að fólk vill oft frekar fá pening-
inn og geta valið hvað það vill.
Þetta er verðmæti þriggja her-
bergja íbúðar, þannig lagað,“ segir
Sigurður.
Hann segir það hafa verið stóra
ákvörðun að bæta við þremur íbúð-
arvinningum í vinningaskrána.
Næstum annan hvern mánuð sé
dregin út íbúð þó suma mánuði sé
dregið út tvo mánuði í röð og því
geti komið tveggja mánaða hlé milli
íbúðarvinninga. Happdrættisárið
hefst 12. maí næstkomandi en fyrsti
íbúðarútdrátturinn verður í lok
mánaðarins.
Stærri og fleiri vinningar
Á nýju happdrættisári DAS mun
fjöldi vinninga aukast um 10% en
yfir 51 þúsund skattfrjálsir vinn-
ingar verða dregnir út á árinu.
Nýtt happdrættisár DAS felur jafn-
framt í sér 15% hækkun heildar-
upphæðar vinninga. „Miðaverð
hækkar, fer úr 1.300 krónum í
1.500, þannig getum við hækkað
vinningsupphæðir og gert þær
meira aðlaðandi. Við erum að
hækka bæði fjárhæðir en líka að
fjölga vinningum, við fjölgum vinn-
ingum um 18%,“ segir Sigurður.
Meðalaldurinn lækkar
Sigurður segir áskrifendahópinn
hafa tekið örlitlum breytingum þar
sem yngra fólk kaupir áskrift í
auknum mæli. „Meðalaldur áskrif-
endahóps er aðeins að lækka. Við
drögum líka vikulega svo það er
alltaf verið að tilkynna vinninga.
Við leggjum mikið upp úr því að
fólk fái sem flottasta vinninga en
við erum líka með bestu vinnings-
líkurnar af þeim happdrættum sem
draga vikulega á Íslandi,“ segir
Sigurður. Hann segir flesta vera í
áskrift en einnig séu þó seldir stak-
ir miðar, fólk þurfi þó að passa vel
að miðinn sé endurnýjaður. Í lok
síðasta happdrættisárs var dregið
um rausnarlegan aðalvinning, íbúð
að eigin vali að upphæð 30 milljónir
króna. En eigandi miðans varð þó
af vinningnum þar sem hann hafði
hætt að endurnýja miðann fyrir ári.
61. starfsárið að hefjast
Sigurður segir DAS hafa verið
fjárhagslegan bakhjarl að uppbygg-
ingu fyrir dvalarheimili aldraðra al-
veg frá upphafi. Undanfarin ár hafi
áherslan verið á að innrétta og end-
urbæta Hrafnistu í Reykjavík, til
dæmis með endurbótum á matsal.
„Við opnuðum meðal annars umtal-
aðasta bar í Reykjavík, Skálafell,“
segir Sigurður.
brynjadogg@mbl.is
Helmingi fleiri
íbúðarvinningar
Nýtt happdrættisár DAS Sex
íbúðarvinningar Áskrifendur yngri
Hrafnista DAS hefur innréttað og
bætt heimilið síðustu árin.
Samherji hefur fest kaup á 20 ára
gömlu uppsjávarskipi frá Leirvík á
Hjaltlandseyjum og tekur við skip-
inu í dag. Það hét áður Antares, en
fær nú nafnið Margret EA. Veiðar-
færi fylgdu með skipinu sem fer
fljótlega á kolmunnaveiðar. Skip-
stjóri fyrst um sinn verður Sturla
Þórðarson frá Neskaupstað.
Samkvæmt upplýsingum Krist-
jáns Vilhelmssonar, framkvæmda-
stjóra útgerðarsviðs Samherja,
verður skipið einkum notað til veiða
á loðnu og kolmunna. Skipið var
smíðað í Noregi fyrir 20 árum, en
það var lengt árið 2009 og er 73
metra langt og 13 metrar á breidd.
Það tekur 2.300 tonn í RSW-kæli-
tanka.
Suður af Færeyjum
Íslensku uppsjávarskipin hafa
undanfarið verið að veiðum í fær-
eyskri lögsögu suður af Færeyjum.
Frá áramótum er búið að veiða
rúmlega 70 þúsund tonn eða um
þriðjung aflaheimilda. Þrjú skip
hafa landað yfir níu þúsund tonnum í
ár, Beitir NK, Jón Kjartansson SU
og Hoffell SU. Mjög slæm tíð hefur
verið á miðunum alla vertíðina.
aij@mbl.is
Á kolmunnaveiðar Antares frá Leirvík fær nú nafnið Margret EA.
Samherji kaupir 20
ára uppsjávarskip
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino