Morgunblaðið - 08.05.2015, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Stéttarfélagið Framsýn á Húsavík
hefur samið við 23 fyrirtæki, um 30%
fyrirtækja á svæðinu, um nýja kjara-
samninga. Gengið var að kröfum
Framsýnar í þessum tilvikum um 300
þúsund króna lágmarkslaun, að sögn
Aðalsteins Baldurssonar, formanns
Framsýnar. „Um er að ræða 35 þús-
und króna launahækkun við undir-
skrift. Eins ábyrgjast fyrirtækin að
greiða 300 þúsund krónur í lágmarks-
laun í síðasta lagi árið 2017, en flest
fyrirtækin gera það strax,“ segir Að-
alsteinn.
Komu þegar verkfall hófst
Hann segir eitt fyrirtæki til við-
bótar hafa boðað komu sína á fund í
dag til að ganga frá sambærilegum
samningi. Aðalsteinn segir að níu
fyrirtæki hafi komið á fund með
Framsýn á fimmtudaginn í síðustu
viku eftir að verkfall hófst sem stóð í
hálfan dag. „Svo komu hin fyrirtækin
í verkfallinu núna,“ segir Aðalsteinn.
Að sögn hans voru því um 100 starfs-
menn af 500-600 manns sem eru í
Framsýn að störfum síðustu tvo
verkfallsdaga.
Tveggja sólarhringa verkfallsað-
gerðum Starfsgreinasambandsins
(SGS) lauk á miðnætti.
Nokkur dæmi eru um að fólk úr
öðrum stéttarfélögum hafi gengið í
störf verkafólks. Aðalsteinn segir að
4-5 tilvik hafi komið upp í gær þar
sem talið var að um verkfallsbrot
hefði verið að ræða. Í öllum tilvikum
nema einu var vel tekið í athugasemd-
ir eftirlitsmanna og starfsemi hætt. Í
einu tilvikinu neitaði viðkomandi fyr-
irtæki að biðjast afsökunar eða að
leggja niður störf þar sem yfirmaður
akstursfyrirtækis gekk í starf undir-
manns. Aðalsteinn segir að leitað hafi
verið til lögfræðings og líkur séu á að
viðkomandi fyrirtæki verði kært.
Nokkur verkfallsbrot hjá Afli
Hjördís Þ. Sigurþórsdóttir, formað-
ur Afls, starfsgreinasambands, segir
að nokkur tilvik hafi verið á „gráu
svæði“ og snýr það að ólíkri túlkun Afls
og Samtaka atvinnulífsins um það
hvort fólki úr öðrum stéttarfélögum
hafi verið leyfilegt að sinna störfunum.
„Við teljum óheimilt að félagsmenn
annarra félaga séu að vinna störf
verkafólks á okkar vegum,“ segir Hjör-
dís. Hún segir að m.a. hafi verið um að
ræða starfsfólk í ræstingum og akstri.
„Við höfum gert athugasemdir við
þetta þar sem við teljum þetta óheimilt.
Hins vegar greinir okkur á við SA sem
segja að þetta sé heimilt,“ segir Hjör-
dís. Hún segir að meint verkfallsbrot
hafi átt sér stað hjá Samskipum, Eim-
skip, ISS og Austfjarðaleið.
Flest fyrirtæki virt verkfallið
Vilhjálmur Birgisson hjá Verka-
lýðsfélagi Akraness segir að verkfalls-
aðgerðir hafi gengið vel. „Langflest
fyrirtæki virða þær leikreglur sem
eru í gangi,“ segir Vilhjálmur. Hann
segir að eitt fiskvinnslufyrirtæki hafi
verið með fólk að störfum. Helgast
það af því að starfsmenn eru ranglega
skráðir í stéttarfélag, að sögn Vil-
hjálms. „Við gerðum athugasemd við
þetta og það var vel tekið í hana,“ seg-
ir Vilhjálmur sem telur athyglisvert
hve verkfallsaðgerðir hafi í raun tek-
ist vel, sérstaklega þegar haft sé til
hliðsjónar að ungt fólk þekkir ekki
slíkt. „Það eru komnir svo margir ára-
tugir síðan íslenskt verkafólk stóð í
þessum sporum,“ segir Vilhjálmur.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins og verka-
lýðsfélagins Einingar-Iðju, sem í eru
2.400 manns, segir að menn hafi al-
mennt virt verkfallið. „Það hafa ekki
verið margir hnökrar í það heila. Í
flestum tilfellum hafa þeir verið leið-
réttir og lítið mál,“ segir Björn.
Gengið að kröfu um 300 þúsund króna lágmarkslaun Dæmi um að starfsfólk annarra stéttarfélaga
hafi gengið í störf þeirra sem voru í verkfalli Verkfallsaðgerðir gengu vel í langflestum tilvikum
Framsýn samdi við 23 fyrirtæki
Ljósmynd/Aðalsteinn Baldursson
Samningar Framsýn Húsavík og 23 fyrirtæki á svæðinu náðu samningum.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Samningar langflestra aðildar-
félaga BSRB voru lausir 30. apríl.
Stærstu aðildarfélögin okkar eru í
viðræðum við ríkið en eru á sama
stað og aðrir sem eiga í viðræðum við
ríkið, það gerist ekki neitt,“ segir El-
ín Björg Jónsdóttir, formaður
BSRB.
Aðalfundur BSRB fer fram í dag
þar sem búast má við að umræða um
stöðuna í kjarasamningsviðræðum
sem nú standa yfir verði áberandi
auk þess sem ræða á meðal annars
stöðu lífeyrismála á fundinum.
Skýrast mun í framhaldi af aðal-
fundinum í dag hvert framhaldið
verður í kjaraviðræðunum. Elín
Björg segir að aðildarfélögin muni
koma sameinuð til viðræðna við
stóru viðsemjendurna, þ.e.a.s. félög
fari saman í viðræður við ríkið, við
samninganefnd sveitarfélaganna og
við Reykjavíkurborg. ,,Þau eru að
þétta sig þannig saman og mæta
sameinuðu stóru viðsemjendunum
okkar. Reynslan
sýnir okkur að
það borgar sig að
gera það með
þessum hætti,“
segir Elín Björg.
Aðspurð segir
hún ekkert sem
bendi til annars
en að sambærileg
staða komi upp í
viðræðum BSRB-
félaganna við viðsemjendur þeirra
og er uppi hjá öðrum félögum og
samböndum á vinnumarkaðinum.
,,Það er ekkert í kortunum sem
bendir til þess að viðræður aðildar-
félaga BSRB verði á einhvern hátt
öðruvísi en hjá þeim sem birtu sínar
kröfur aðeins fyrr og eru þar af leið-
andi komnir aðeins lengra,“ segir
hún.
Þrjú stærstu aðildarfélög BSRB,
SFR, Sjúkraliðafélag Íslands og
Landssamband lögreglumanna, hafa
þegar lagt fram kröfugerðir félag-
anna við ríkið og hafa nokkrir fundir
þegar verið haldnir.
Sameinuð
til viðræðna
Elín Björg
Jónsdóttir
Samningar BSRB-félaga runnu út 30. apríl
Fara yfir stöðu kjaramála á aðalfundi í dag
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Enginn gangur er í flestum þeim kjaradeilum sem vísað
hefur verið til ríkissáttasemjara og sáralítið hefur verið
um fundarhöld í húsnæði sáttasemjara undanfarna daga.
Tæplega 40 óleystar kjaradeilur eru komnar á borð rík-
issáttasemjara fyrir nálægt hundrað þúsund launþega og
verkföll standa yfir en eftir sem áður er lítið tilefni talið
til að boða deilendur til viðræðna.
Alls eru 12 fundarsalir og tvö minni vinnuherbergi í
húsnæði ríkissáttasemjara og hafa þeir að mestu staðið
auðir undanfarna daga. Viðmælendur sem eru með langa
reynslu af kjarasamningagerð segja að þetta ástand sé
mjög óvenjulegt og alvarlegt. Við sambærilegar kring-
umstæður hafi yfirleitt verið í gangi tíu til 20 fundir hjá
sáttasemjara á hverjum degi en nú hafa aðeins verið
haldnir fimm formlegir fundir frá því um seinustu helgi.
Tveir fundir sl. mánudag, einn fundur á þriðjudag, einn á
miðvikudag og einn í gær en þá fór fram sáttafundur í
kjaradeilu starfsmanna í álverinu í Straumsvík. Boðað er
til annars fundar í þeirri deilu næsta miðvikudag.
BHM og ríkið komu seinast saman til árangurs-
lausra viðræðna sl. mánudag og er boðað til næsta fund-
ar á mánudaginn. Í dag eru samninganefndir Starfs-
greinasambandsins og SA boðaðar til fundar kl. 13:30 en
tveggja sólarhringa verkfalli 16 aðildarfélaga SGS lauk á
miðnætti í nótt. Er það eini fundurinn sem boðað er til
hjá sáttasemjara í dag.
Viðsemjendur í kjaradeilum hafa yfirleitt notfært
sér húsakynni sáttasemjara til viðræðna um sérmál eða
vinnuhópar verið að störfum þó deilum hafi ekki verið
vísað til sáttameðferðar en þessa dagana er líka óvenju-
lítið um slík fundarhöld.
Fundarsalir sátta-
semjara standa auðir
Fáir samningafundir þó tæp 40 mál séu óleyst á borðinu
Morgunblaðið/Eggert
Lítið notað Elísabet S. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri hjá ríkissáttasemjara, raðar stólum í einu af tólf fundarher-
bergjum embættisins. Lítið þokast í kjaradeilunum og standa flestir fundarsalirnir því auðir dögum saman.
Deilur á vinnumarkaði
Vilhjálmur segir að verkfallsaðgerðir hafi leitt til þess að atvinnurek-
endur hafi skoðað betur hvernig kröfur verkalýðsfélaganna muni hafa
áhrif á starfsemina.
„Ég held að það sem fólk og atvinnurekendur eru að átta sig á sé að sú
kröfugerð sem við erum með er krónutala sem jafnar sig út með 34.000
króna mánaðarlegri hækkun á ári. Þegar þeir heyra hins vegar um 50-
70% hækkunina sem Samtök atvinnulífsins tala um þá hugnast þeim það
ekki. Því viljum við tala í krónum en ekki í prósentum um okkar kröfur,“
segir Vilhjálmur.
Vilja tala í krónum
SEGIR ATVINNUREKENDUR ÁTTA SIG BETUR Á KRÖFUM
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Makríll og loðnuhrogn komast ekki
á markað í Rússlandi vegna verk-
falls dýralækna. Ástæðan er sú að
útskipun svokallaðra trampara eða
brettaskipa er óheimil þar sem ekki
liggur fyrir vottun frá Matvæla-
stofnun. „Það er hægt að skipa út ef
það fer í gámum, t.a.m. til Asíu og
annarra landa. En það er ekki hægt
að fara til Rússlands því þar er
farmurinn ekki sendur í gámum
heldur með trampara, þ.e. frysti-
skipum sem taka um 3.000 tonn í
einu,“ segir Friðrik Mar Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Loðnu-
vinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Að
sögn Friðriks hafa engir tramparar
farið til Rússlands í um þrjár vikur,
eða eftir að verkfall hófst. „Það
bráðvantar makríl og loðnuhrogn á
þennan markað. Auðvitað er það
mjög skaðlegt fyrir okkur og mark-
aðinn,“ segir Friðrik. Farmurinn er í
frystigeymslu og hann segir enga
hættu á því að vörurnar skemmist.
„Þessar vörur vantar á markaðinn
og þá sérstaklega loðnuhrognin. Við
framleiddum of lítið af loðnuhrogn-
um fyrir markaðinn í fyrra og þess
vegna vantar þetta núna,“ segir
Friðrik.
Makríll og loðnuhrogn
komast ekki á markað