Morgunblaðið - 08.05.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Sími 511 8090 • www.yndisauki.is
Dukkah er frábært með brauði, salatinu,
grillaða grænmetinu, á kjúklinginn og fiskinn
og með nýgrilluðu lambakjöti
Dukkah frá Yndisauka
ómissandi í matargerðina
Dukkah er blanda af möndlum, hnetum, sesamfræjum og
sérvöldu kryddi. Blandan er upprunnin í Egyptalandi og
var upphaflega notuð með brauði sem fyrst er dýft í góða
ólífuolíu og svo í dukkah.
Dukkah fæst íHagkaupum,Melabúðinni, Fjarðarkaupum,
Mosfellsbakaríi, Kjöthöllinni,Nóatúni,Garðheimum,
Miðbúðinni og Bakaríinu viðBrúnnaAkureyri.
Árleg hvatningarverðlaun skóla- og
frístundaráðs Reykjavíkurborgar
voru afhent við hátíðlega athöfn í
Ráðhúsinu í vikunni. Alls fengu 12
verkefni í leikskólum, grunnskólum
og frístundamiðstöðvum borg-
arinnar verðlaun fyrir gróskumikið
starf sitt en alls bárust tæplega 40
tilnefningar.
Í flokki leikskóla fengu eftirfar-
andi verðlaun: Dalskóli, fyrir verk-
efnið Tökum flugið, Laufásborg, fyr-
ir verkefnið Skák í leikskólanum, og
Sæborg, fyrir verkefnið Listsköpun.
Hvatningarverðlaun fyrir grunn-
skólastarf fengu: Grandaskóli, fyrir
lestrarátak í samstarfi við Forlagið,
Hólabrekkuskóli, fyrir vinaliðaverk-
efni, og Laugarnesskóli fyrir verk-
efnið Umhverfið mitt, sem unnið var
í samstarfi við Listaháskóla Íslands
og Grasagarðinn í Laugardal.
Fyrir frístundastarf fengu eftir-
taldir verðlaun: Frístundaheimilið
Eldflaugin, fyrir verkefnið Ævin-
týraspilið, Félagsmiðstöðin 105 í Há-
teigsskóla, fyrir verkefnið Femín-
istafélag 105, og Frístundaheimilið
Gulahlíð, fyrir verkefnið Tóm-
stundaklúbbar.
Þá voru veitt hvatningarverðlaun
fyrir þverfagleg samstarfsverkefni
leikskóla, grunnskóla, frístundar-
starfs og félagsmiðstöðva. Verðlaun-
in fengu: Árbæjarskóli og félags-
miðstöðin Tían, fyrir verkefnið
Hönd í hönd, Gullborg, Grandaskóli
og Undraland, fyrir verkefnið Op-
inskátt gegn ofbeldi, og Þróttheimar
og Langholtsskóli, fyrir verkefnið
Lýðræðisleg vinnubrögð í nemenda-
ráði Þróttheima og Langholtsskóla.
Skúli Helgason afhenti verðlaunin
fyrir hönd borgarinnar.
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Hvatning Fulltrúar Laugarnesskóla í Reykjavík taka við hvatningar-
verðlaunum skóla- og frístundaráðs fyrir verkefnið Umhverfið mitt.
Tólf verkefni fengu
hvatningarverðlaun
Borgin fékk nær 40 tilnefningar
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fullvíst þykir að kröfuhafar föllnu
bankanna búi sig undir áróðursstríð
og hafi leitað ráðgjafar um hvernig
málstað þeirra verður best komið á
framfæri á alþjóðavettvangi.
Þetta er skoðun tveggja sérfræð-
inga sem óskuðu
nafnleyndar, ann-
ars í fjármálum
en hins í
almanna-
tengslum. Til-
efnið er samstarf
slitastjórnar
Glitnis við First
House, eina
helstu
almannatengsla-
stofu Noregs.
Samstarfið hófst 2013 og má nefna
að First House skipulagði það ár
kynningarfund fyrir kröfuhafa
Glitnis í London. First House hefur
ekki svarað beiðni um viðtal.
Fulltrúi slitastjórnar Kaupþings
vildi árétta að hún skipti ekki við
First House, líkt og sagði hér í
blaðinu í gær. Fram kom í Morgun-
blaðinu haustið 2013 að First House
veitti hópi erlendra kröfuhafa Glitn-
is og Kaupþings ráð í tengslum við
nauðsamninga þrotabúa.
Hafa skipulagt aðgerðaáætlun
Telur sérfræðingurinn í fjár-
málum að kröfuhafar hafi skipulagt
aðgerðaáætlun ef haftaferlið þróast
út í deilu við íslensk stjórnvöld sem
kemst í kastljós alþjóðlegra fjöl-
miðla. Horfði hann til Argentínu í
því efni og alþjóðlegrar umfjöllunar
um deilu landsins við vogunarsjóði.
Afnám hafta muni draga athygli að
fjárfestum sem eiga kröfurnar.
Almannatengillinn segir að starfs-
menn fyrirtækisins hafi góð sam-
bönd um allan heim og hafi mikla
færni til að stýra samskiptum ef
haftamálið verður að alþjóðlegri
„krísu“. Bjørn Richard Johansen,
einn stofnenda First House, hafi
verið fjölmiðlaráðgjafi íslenskra
stjórnvalda eftir hrunið og sé því í
góðri aðstöðu til að skapa trúverð-
ugleika hjá sínum umbjóðendum.
Ráðgjöf First House í Noregi hef-
ur verið umdeild og þá ekki síst að
fyrirtækið skuli hafa ráðið til sín
fyrrverandi stjórnmálamenn til að
gæta hagsmuna umbjóðenda sinna.
Fyrirtækið hefur sterkt tengsla-
net og má til dæmis nefna að tals-
maður þess, Per Høiby, er bróðir
krónprinsessunnar, Mette-Marit.
Ný þróun í norsku samfélagi
Harald Stanghelle, ristjóri stjórn-
málalegs efnis í Aftenposten, hefur
gagnrýnt framgöngu First House í
norsku samfélagi. Hann segist að-
spurður í samtali við Morgunblaðið
vera gagnrýninn á hið „hulda vald“
sem hafi orðið til í norsku samfélagi,
þar sem fari blanda af almanna-
tengslum og hagsmunagæslu. Þetta
sé ný þróun í Noregi sem First
House sé orðið táknmynd fyrir.
„First House er án nokkurs vafa
hulið vald í Noregi. Þeir eru mjög
snjallir og starfa á gráu svæði hags-
munagæslu, stjórnmála og almanna-
tengsla. Ég hef enga ástæðu til að
ætla að starfsemin sé ólögleg.
Við höfum hins vegar brugðið
birtu á eitt og annað í Aftenposten
um starfsemi First House. Dæmi er
bréf sem First House ritaði alþjóð-
legum samtökum í kolaiðnaði. Sagði
þar að innan árs yrði tekin ákvörðun
um hvort norski olíusjóðurinn myndi
selja hlutabréf sín í kolafyrir-
tækjum. Sagðist félagið reiðubúið að
reyna að hindra það.“ Stanghelle
segir First House hafa fengið til sín
fyrrverandi áhrifamenn í Verka-
mannaflokknum, þ.m.t. tvo af nán-
ustu samstarfsmönnum Jens Stol-
tenbergs, fv. forsætisráðherra
Noregs. „Þeir vita upp á hár hvernig
á að greina valdakerfið í stjórnmál-
unum,“ segir Stanghelle sem tekur
annað dæmi. Morten Wetland, fv.
fastafulltrúi Noregs hjá SÞ í New
York og nú starfsmaður hjá First
House, hafi ritað grein til að grafa
undan norsku nóbelsnefndinni, í
kjölfar þess að Kínverjinn Liu Xi-
aobo fékk friðarverðlaun Nóbels,
með því að ljóstra upp blendnum
viðbrögðum Obama forseta við að fá
verðlaunin. Greinin hafi verið skrif-
uð í þágu norskra fyrirtækja sem
vildu stuðla að bættum samskiptum
Kína og Noregs, eftir að Kínastjórn
refsaði Noregi vegna verðlaunanna.
Umdeilt félag ráðleggur kröfuhöfum
Ritstjóri stjórnmálalegs efnis hjá Aftenposten hefur gagnrýnt starfsemi First House í Noregi
Félagið blandi saman almannatengslum og hagsmunagæslu Kröfuhafar eru sagðir vígbúast
Morgunblaðið/Golli
Miðborg Óslóar Í Noregi er beitt ýmsum leiðum í hagsmunagæslu.
Fulltrúar kröfuhafa hafa á síðustu misserum sóst
eftir upplýsingum um ættartengsl Íslendinga hjá
ORG – Ættfræðiþjónustu. Oddur Helgason æviskrár-
ritari hefur vísað þessum aðilum til Persónuverndar.
„Við veitum ekki slíkar upplýsingar en vísum á
Persónuvernd sem getur þá metið hvort hún gefi
leyfi til þess,“ segir Oddur og bendir á að fimm ætt-
fræðigrunnar hafi verið settir saman á Íslandi. Í
fyrsta lagi grunnur erfðafræðinefndar fyrir Háskóla
Íslands og Landspítalann. Sá er lokaður almenningi.
Í öðru lagi Espólín-grunnur Friðriks Skúlasonar sem
Íslensk erfðagreining notaði í Íslendingabók. Þar er aðeins hægt að fá
upplýsingar um nánasta fólk fyrirspyrjenda. Í þriðja lagi grunnur sem
Hálfdán Helgason ættfræðingur seldi úr landi. Hann er ekki með nein-
um girðingum. Í fjórða lagi grunnur ORG ættfræðiþjónustu sem gæti
orðið eign þjóðarinnar en tekur með forfeður og afkomendur Íslendinga
erlendis og loks grunnur Þorsteins Jónssonar, Genealogia Islandorum.
Spyrja um ættartengsl
RANNSÓKNIR KRÖFUHAFA
Harald
Stanghelle
Oddur Helgason