Morgunblaðið - 08.05.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
TOYOTA AURIS SOL HYBRID
09/2011, ekinn 46 Þ.km, sjálfskiptur.
Einn eigandi! Verð 2.980.000.
Raðnr.253478
FIAT JOINT 1 HÚSBÍLL
03/2007, ekinn aðeins 19 Þ.km, dísel, 5 gíra.
Verð 5.590.000. Skoðar skipti!
Raðnr.310829
NISSAN QASHQAI+2 SE
06/2011, ekinn 77 Þ.km, bensín, sjálfskiptur,
7manna.Verð 3.980.000.
Raðnr.253442
LAND ROVER RANGE ROVER SPORT SE
09/2007, ekinn 129 Þ.km, DIESEL, sjálfskiptur,
samlitur o.fl. Tilboðsverð 4.990.000.
Raðnr.311224
LAND ROVER RANGE ROVER SPORT SE
12/2007, ekinn 102 Þ.km, DIESEL, sjálfskiptur,
20“ álfelgur o.fl. Einn eigandi, umboðsbíll!
Verð 6.390.000. Raðnr.252008
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í nýju bindandi áliti ríkisskattstjóra
kemst embættið að þeirri niðurstöðu
að þær skuldir umfram eignir þrota-
bús, sem ekki fást greiddar við upp-
gjör við gjaldþrotaskipti, skuli telj-
ast skattskyldar. Þannig lítur
embættið svo á að óhjákvæmileg eft-
irgjöf skulda kröfuhafa á hendur
þrotabúi teljist tekjur búsins. Af því
leiðir að þrotabú þurfa að standa skil
á 36% tekjuskatti af eftirgjöfinni.
Ríkisskattstjóri kemst að þessari
niðurstöðu eftir að slitastjórn SPB
hf. (áður Icebank) óskaði eftir bind-
andi áliti frá ríkisskattstjóra um efn-
ið þar sem stofnunin hafði áður lýst í
óbindandi áliti sömu afstöðu en slita-
stjórnin var ósammála. Slitastjórnin
telur, með öðrum orðum, að skuldir
umfram eignir sem ekki fást greidd-
ar við uppgjör á búi við gjaldþrota-
skipti teljist ekki til skattskyldra
tekna sem eftirgjöf skulda.
Þá kemur einnig fram í álitinu að
litið sé á skattkröfu af þessum toga
sem svokallaða búskröfu en slíkar
kröfur hafa forgang á aðrar kröfur
og færa réttindi annarra kröfuhafa
óhjákvæmilega aftar í röðina þegar
kemur að útdeilingu þeirra fjármuna
sem heimtast úr viðkomandi búi.
Í áliti ríkisskattstjóra kemur fram
að þrotabúum sé þó „heimilt að nýta
sér yfirfæranlegt uppsafnað tap til
frádráttar skattskyldum tekjum
vegna eftirgjafar skulda […] verði
þau tekin til gjaldþrotaskipta“.
Samningur eða gjaldþrot?
Niðurstaða ríkisskattstjóra kann
að leiða til þess að samþykkt nauða-
samnings sé vænlegri leið en gjald-
þrotaleiðin þegar litið er til þeirrar
ólíku skattbyrði sem leiðirnar tvær
fela í sér. Þannig leiðir eftirgjöf
skulda á grundvelli nauðasamnings
til þess að 20% tekjuskattur greiðist
af viðkomandi eftirgjöf en í tilfelli
þrotabúanna greiðist 36% tekju-
skattur. Hann er því 80% hærri í
þeim tilvikum þar sem gjaldþrota-
leiðin er farin en þar sem nauða-
samningar nást.
Gríðarlegar skatttekjur
Í lok síðasta árs birti Viðskipta-
Mogginn grein eftir Guðbjörgu Þor-
steinsdóttur, lögfræðing og verk-
efnastjóra á skatta- og lögfræðisviði
Deloitte, og fjallaði þar um þá stöðu
sem upp gæti komið ef sú túlkun rík-
isskattstjóra, sem nú liggur fyrir í
bindandi áliti, stenst. Í greininni seg-
ir hún að í ákveðnum tilvikum gæti
gjaldþrotaleiðin orðið til þess að all-
ar eigur búanna myndu renna til rík-
isins í formi skattgreiðslna og þá á
kostnað annarra kröfuhafa. Undir
lok greinarinnar segir Guðbjörg:
„Með vísan til þessa virðist ríkissjóð-
ur hafa fundið aðferð til að tæma
þrotabú. Þannig gæti hann herjað á
eignamikil þrotabú, t.d. hinna föllnu
viðskiptabanka, og tæmt þau þannig
að aðrir kröfuhafar sætu eftir með
sárt ennið. Kannski þarf því ekki að
leggja sérstakan útgönguskatt eins
og rætt hefur verið um […].“
Gjaldþrotaleið mun leiða til
gríðarlegrar skattheimtu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gjaldþrot Skatturinn telur að skattleggja eigi eftirgjöf skulda við gjaldþrot
Bindandi álit að þrotabú fjármálafyrirtækja greiði 36% skatt af eftirgjöf skulda
Ólík skattþrep lögaðila
» Tekjuskattur í almennu
þrepi nemur 20% og undir
hann falla m.a. hlutafélög og
einkahlutafélög.
» Tekjuskattur í efra þrepi
nemur 36% og í því þrepi eru
m.a. dánarbú, sameignarfélög
og þrotabú.
sem er einkum ætlaður til grein-
ingar á flogaveiki.
Fyrirtækin Valka og Meniga
fengu einnig viðurkenningar.
Meniga er hugbúnaðarfyrirtæki
sem sérhæfir sig í lausnum fyrir
næstu kynslóð netbanka og náði
þeim áfanga að velta meira en ein-
um milljarði króna á síðasta ári.
Valka er hátæknifyrirtæki sem sér-
hæfir sig í hönnun á tækjum og
hugbúnaði fyrir fiskvinnslur og
náði þeim árangri að gera röntgen-
stýrða beinaskurðarlínu sem er sú
fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Þetta er í 9. skiptið sem Vaxtar-
sprotinn er afhentur. Marorka fékk
vaxtarsprotann 2007, Mentor 2008
og 2009, Nox Medical 2010,
Handpoint 2011, Valka 2012, Me-
niga 2013 og Datamarket 2014.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, afhenti
fulltrúum fyrirtækjanna við-
urkenningarnar sem eru á vegum
Samtaka sprotafyrirtækja innan
Samtaka iðnaðarins, Rann-
sóknamiðstöðvar Íslands og HR.
Fyrirtækið Kvikna hlaut í gær
Vaxtarsprotann 2015 sem er viður-
kenning til sprotafyrirtækja fyrir
góðan vöxt. Kvikna sem var stofnað
árið 2008 sérhæfir sig í gerð hug-
búnaðar sem ur er olíuiðnaði og
hugbúnaði fyrir lækningatæki. Út-
flutningur fyrirtækisins nemur yfir
90% af veltu og eru helstu við-
skiptavinir í Noregi og Bandaríkj-
unum. Sölutekjur félagsins voru
209 milljónir króna á síðasta ári og
jukust um 69% frá árinu á undan.
Hjá Kvikna starfa 15 manns en
stofnendur eru Garðar Þorvarðs-
son, Heiðar Einarsson, Guðmundur
Hauksson, Hjalti Atlason og Stefán
Pétursson. Kvikna hefur undan-
farið unnið að þróun búnaðar fyrir
upptöku og úrvinnslu á heilalínuriti
Kvikna vinnur Vaxtarsprotann í ár
69% aukning sölutekna fyrirtækisins
Verðlaun Handhafar Vaxtarsprotans ásamt iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
● Íslandsbanki hefur samið við MP
banka um að annast viðskiptavakt
með útgefnum sértryggðum skulda-
bréfum Íslandsbanka. Viðskiptavaktin
gildir frá og með deginum í dag. Í
samningnum felst að setja fram dag-
lega kaup- og sölutilboð í bréfin áður en
markaður er opnaður, að lágmarki 20
milljónir króna að nafnverði. Eigi við-
skiptavakt MP banka viðskipti á einum
degi fyrir 60 milljónir króna að nafnvirði
er honum heimilt að hætta framsetn-
ingu tilboða fram á næsta viðskiptadag.
MP með viðskiptavakt
fyrir Íslandsbanka
● Tryggingamiðstöðin (TM) hefur lokið
sölu á víkjandi skuldabréfum að fjár-
hæð 2.000 milljónir króna. Útgáfan er
liður í nýjum áherslum í fjárhags-
skipan félagsins eins og tilkynnt var til
Kauphallar í apríl en bréfin bera 5,25%
fasta verðtryggða vexti og eru til 30 ára
með uppgreiðsluheimild og þrepa-
hækkun í vöxtum upp í 6,25% eftir 10
ár. Arctica Finance var umsjónaraðili
útgáfunnar.
TM hefur lokið sölu á
víkjandi skuldabréfum
!!"
##
!##
#
!"
"!
!#
#" $
"#%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!##
"
!%
%#"
#"#
"$!!
!%
#"$
" "
""
!#%%
#%
!#$
%
#!"
"!
!"#
#!
"!
$"%!$
● Icelandair flutti
um 190 þúsund
farþega í milli-
landaflugi í apríl
síðastliðnum og
voru þeir 8% fleiri
en á sama tíma í
fyrra. Fram-
boðsaukning á milli
ára var 3% og
sætanýting var
82% samanborið
við 79% á sama tíma í fyrra og hefur
aldrei verið meiri í apríl. Farþegar hjá
Icelandair Group í innanlandsflugi og
Grænlandsflugi voru 22 þúsund í apríl
og fækkaði um 1% á milli ára.
Aldrei meiri sætanýting
hjá Icelandair í apríl
Farþegar 190 þús-
und flugu í apríl.
STUTTAR FRÉTTIR ...