Morgunblaðið - 08.05.2015, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
✝ Egill Stein-grímsson fædd-
ist á Akureyri 18.
september 1963.
Hann lést á Land-
spítalanum í
Reykjavík 26. apríl
2015.
Foreldrar hans
voru hjónin Stein-
grímur Krist-
jánsson, bóndi á
Litluströnd í Mý-
vatnssveit, f. 27. nóvember 1917,
d. 30. júní 1993, og Þóra Ás-
geirsdóttir, f. 19. janúar 1925 í
Hrappstaðaseli í Bárðardal.
Bræður hans eru Birgir, f. 23.
maí 1959, Finnur, f. 28. desem-
ber 1960, og Kristján, f. 22. apríl
1962. Egill ólst upp á Litlu-
sölumennsku, akstur og vinnu-
vélastjórn til ársins 2007 þegar
hann stofnaði ásamt fleirum fyr-
irtækið Rekverk ehf. og starfaði
við það síðan. Egill æfði frjálsar
íþróttir á unglingsárum með
góðum árangri en seinna beind-
ist áhuginn meira að mót-
orhjólum og bílum og var hann
félagi í Bifhjólasamtökunum
Sniglunum á fyrstu árum félags-
ins. Egill var virkur í ýmsum fé-
lögum eins og JC Akureyri þar
sem hann kenndi ræðumennsku
og tók þátt í keppnum með góð-
um árangri. Hann var félagi í
Skotfélagi Akureyrar og tók
þátt í keppnum um allt land og
vann til margra verðlauna í
ýmsum skotgreinum, hann var
einnig í Hestamannafélaginu
Létti á Akureyri, ferðaklúbbn-
um 4x4 og félagi í Oddfellow-
reglunni.
Útför hans fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 8. maí
2015, kl. 13.30.
strönd í Mývatns-
sveit og bjó þar
fram til tvítugsald-
urs og flutti þá til
Akureyrar. Þar
kynntist hann eft-
irlifandi eiginkonu
sinni, Unni Hreið-
arsdóttur frá
Vopnafirði, f. 1.
nóvember 1967, og
eignuðust þau eina
dóttur, Hönnu Sól-
eyju, f. 7. janúar 1999.
Egill var tvo vetur á Lauga-
skóla að loknum barnaskóla og
vann í Mývatnssveit til tvítugs
en var þá á sjó í nokkur ár, fyrst
frá Grindavík en lengst af frá
Dalvík. Eftir það vann hann ým-
is störf í landi meðal annars við
Ég kynntist Agli á skotmóti á
Akureyri 2008. Við náðum strax
saman og urðum mestu mátar
upp frá því. Enda áttum við
sameiginlegt áhugamál, ná-
kvæmnisskotfimi, og skopskyn
okkar var á svipuðum nótum
svo við gátum grínað endalaust.
Þeir bræður, Egill og Finnur,
voru manna duglegastir að
koma á skotmót Skotfélags
Austurlands þegar reglulegt
mótahald hófst þar aftur 2010
og alltaf mátti gera því skóna að
glens og grín fylgdi grallaraspó-
anum Agli sem varð til þess að
andrúmsloft mótanna einkennd-
ist af gleði og gáska. Samt var
hann harður keppnismaður og
var oft í baráttunni um topp-
sætin og hampaði gullinu í þó-
nokkur skipti á mótum hjá okk-
ur og varð SKAUST-meistarinn
í nákvæmnis-riffilflokki 2013.
Hann var duglegur að taka
þátt í mótum úti um allt land og
taldi ekki eftir sér að skreppa
landshornanna milli til að
keppa. Enda var hann vel liðinn
innan skotgeirans og hann virt-
ist geta látið sér lynda við alla.
Hann kom sér upp góðum bún-
aði og var metnaðarfullur í því
að ná sem bestum árangri.
Iðulega komu þeir bræður
heim í Tókastaði í kringum mót
og var jafnan glatt á hjalla.
Ósjaldan var farið út á einka-
skotborðið og teknar nokkrar
léttar æfingar.
Eftir að Egill greindist með
það mein sem dró hann til
dauða vorum við enn duglegri
að vera í símasambandi og hafði
hann á orði að betra væri að
bogna en bresta og hafði hann
alltaf meiri áhyggjur af náung-
anum en sjálfum sér.
Einu vonbrigðin sem ég upp-
lifði í sambandi við kynni mín af
Agli eru að hafa ekki kynnst
honum fyrr og fá ekki lengri
tíma með honum.
Ég býst að hann sé að x-a
skotskífurnar þarna hinum
megin.
Við hjónin sendum fjölskyldu
Egils sem og öllum vinum og
vandamönnum okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Hjalti Stefánsson og
Heiður Ósk Helgadóttir.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Þessi orð úr Hávamálum
komu upp í hugann þegar við
fréttum af andláti Egils, vinar
okkar. Hann hefur svo sann-
arlega getið sér góðan orðstír
innan vinahópsins. Alltaf var
hann hrókur alls fagnaðar og
ávísun á skemmtilegt kvöld þeg-
ar von var á Agli í matarklúbb-
inn. Sama hvert umræðuefnið
var þá gat Egill einhvern veg-
inn séð spaugilegu hliðina á öll-
um hlutum. Alvarlegar umræð-
ur drógust aldrei á langinn.
Þegar honum hafði dottið eitt-
hvað snjallt í hug kom á hann
sérstakur púkasvipur á meðan
hann meitlaði setninguna í hug-
anum. Síðan laumaði hann
henni út úr sér með bros á vör
og þar með voru allir komnir í
gott skap. Hann bjó yfir mikilli
frásagnargáfu og frásagnargleði
og átti auðvelt með að fanga at-
hygli jafnt ungra sem aldinna
hlustenda.
Skondin orð voru honum hug-
leikin og lagði hann þau á minn-
ið og brúkaði ef því var við kom-
ið. Eitt af þeim var orðið
spaðmolla og varð það heiti not-
að sem nafn á matarklúbbinn
okkar.
Egill hefur verið með okkur í
matarklúbbi síðastliðin 25 ár. Á
þeim tíma höfum við komist að
því að hann var ekkert sérstak-
lega mikið fyrir grænmeti, allra
síst papriku, eða annan nýmóð-
ins mat. Matarklúbbskvöld
stóðu ekki undir væntingum
nema að menn lægju í sófanum
með kjötsvima eða spaðmollu að
máltíð lokinni.
Við munum einnig minnast
hans fyrir hversu hlýr og barn-
góður hann var. Það var ekki
bara augasteinninn hans, hún
Hanna Sóley, sem naut þess. Öll
börn matarklúbbsmeðlima
hændust að honum og hann gaf
sér alltaf tíma til að gantast við
þau.
Allt sem hann tók sér fyrir
hendur gerði hann af fullri ein-
urð og tók hlutina alla leið hvort
sem það var skotfimi, jeppa-
della, mótorhjól, hestamennska
eða ræðumennska. Alltaf var
bráðnauðsynlegt að eignast
mestu og bestu græjurnar.
Aldrei hætti hann fyrr en
toppnum var náð. Hann vann
ótal skotfimimót og þegar hann
gekk í JC varð hann strax
ræðuskörungur hinn mesti og
tók vitanlega að sér formennsk-
una þegar þörf var á.
Elsku Unnur og Hanna Sól-
ey.
Hugur okkar allra er hjá
ykkur núna. Skarð Egils í fé-
lagahópnum verður ekki fyllt en
minningarnar um góðan dreng
fylgja okkur um ókomin ár.
… en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Félagar í Matarklúbbnum
Spaðmollunni,
Harpa og Valur, Anna
Guðný og Sigurður, Erla
Dögg og Arnaldur, Sigríð-
ur og Pétur, Selma og
Helgi, Hafdís og Jón, Dag-
mar Þóra, Anna Kristveig,
Ingibjörg, Claudia, Særún,
Guðmundur og öll börnin
okkar.
Látinn er kær vinur okkar og
félagi, Egill Steingrímsson, sem
við kveðjum í dag.
Hugurinn leitar aftur til þess
tíma er við kynntumst Agli fyrir
alvöru. Hann hafði þá verið
mágur/svili okkar í nokkurn
tíma.
Það var haustið 1997 sem við
eyddum tveim ógleymanlegum
vikum á seglskútu við strendur
Tyrklands. Í Agli eignuðumst
við glaðværan og skemmtilegan
félaga sem var óspar á sitt
skelmislega bros. Það var alltaf
gaman að hitta hann, hvort
heldur sem var heima við eða á
vegum úti að setja upp vegrið.
Samverustundirnar verða víst
ekki fleiri, en minningin lifir.
Unni, Hönnu og fjölskyldunni
allri sendum við samúðarkveðj-
ur og kveðjum Egil með kvæði
eftir Hákon Aðalsteinsson.
Mannlífsins bratta bára
ber okkur milli skerja.
Víðfeðmar okkur velur
vegleiðir stundu hverja.
Markandi mannsins tíma
meitlandi spor í grundir,
mótandi margar götur
misjafnar ævistundir.
Lokið er vöku langri
liðinn er þessi dagur.
Morgunsins röðulroði
rennur upp nýr og fagur.
Miskunnarandinn mikli
metur þitt veganesti.
Breiðir út ferskan faðminn
fagnandi nýjum gesti.
Nú er vík milli vina
vermir minningin hlýja.
Allra leiðir að lokum
liggja um vegi nýja.
Við förum til fljótsins breiða
fetum þar sama veginn.
Þangað sem bróðir bíður
á bakkanum hinum megin.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Margrét og Jökull.
Kveðja frá
Eyjafjarðardeild 4x4
Það er líklega sama sagan í
öllum félagsskap hvaða nafni
sem hann heitir að það þarf allt-
af að verða einhver nýliðun og
þá er það alltaf spennandi fyrir
þá sem fyrir eru að kynnast
nýjum félögum.
Það var einmitt þannig þegar
Egill fór fyrst að mæta hjá okk-
ur á fundi og koma í ferðir með
okkur að manni varð það ljóst
að með þessum manni yrði gam-
an að starfa, enda kom það á
daginn að Egill var enginn
venjulegur maður.
Egill var duglegur að koma á
fundi hjá okkur og kom í marg-
ar ferðir með okkur og hann lét
veikindi sín ekki stoppa sig og
aldrei heyrði maður hann
kvarta.
Nokkrum dögum fyrir andlát
sitt talaði Egill einmitt um að
hann ætlaði að koma með í
næstu vinnuferð okkar í skálann
í Réttatorfu. Það voru mikil for-
réttindi að fá að kynnast þess-
um hressa og káta félaga sem
svo sannarlega markaði spor sín
þennan skamma tíma sem hann
náði að starfa með okkur.
Við félagar í Eyjafjarðardeild
4x4 viljum þakka kærlega fyrir
þann tíma sem Egill var með
okkur, hans verður sárt saknað.
Við sendum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur til Unnar,
eiginkonu Egils, og Hönnu Sól-
eyjar, dóttur hans, ykkar missir
er mestur.
Fjölskyldu og vinum sendum
við einnig okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Að lokum eru hér tvö erindi
úr lagi því sem við syngjum oft
á góðri stund.
Sól slær silfri á voga,
sjáðu jökulinn loga.
Allt er bjart fyrir okkur tveim,
því ég er kominn heim.
Að ferðalokum finn ég þig
sem mér fagnar höndum tveim.
Ég er kominn heim,
já, ég er kominn heim.
(Jón Sigurðsson.)
Blessuð sé minning Egils
Steingrímssonar
F.h. félagsmanna Eyjafjarð-
ardeildar 4x4,
Jóhann Hauksson.
Egill
Steingrímsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku Egill, í dag kveðj-
um við þig með miklum
söknuði þar sem þú varst
kvaddur á brott frá okkur
allt of snemma eftir stutta
en erfiða baráttu við
krabbamein. Þú verður
ávallt í hjörtum okkar og
allar góðu minningarnar
munu ylja okkur um ókom-
in ár.
Þegar sorgar titra tárin,
tregamistur byrgir sýn.
Huggar, græðir hjartasárin,
hlý og fögur minning þín.
(F.S.)
Þín eiginkona og dóttir,
Unnur og Hanna Sóley.
Um daginn var
borinn til grafar
vinur minn Guð-
mundur Guð-
mundsson. Við vorum tengdir á
þann hátt að faðir Gumma og
stjúpi minn voru bræður. Feng-
um við báðir veiðidelluna frá
Magnúsi stjúpa mínum sem var
afburða veiðimaður. Hafði hann
mikið gaman af að kenna okkur
strákunum. Hann kenndi okkur
að fara með byssur og fylgjast
með veðri, þannig að sjaldan
brást rjúpan. Við byrjuðum
snemma að fara saman á gæs og
í þá daga þótti okkur ekkert til-
tökumál þó að ein og ein væri
skotin út um bílglugga, og svo
hlaupið út og náð í bráðina. Um-
ferðin um þjóðveg eitt var ekki
meiri en svo að við gátum leyft
okkur þetta. Guðmundur var
fljótt geysiöflugur, aflasæll skip-
stjóri og 1980 varð hann afla-
hæstur á vetrarvertíðinni í
Grindavík, þá skipstjóri á Verði.
Guðmundur byrjaði sína
skipstjóratíð hjá Hraðfrystihúsi
Þórkötlustaða með Þorbjörn II
og síðan Þórkötlu II. Síðan
gerðist það 1982 að ég er ráðinn
á Þórkötlu II og 8-10 mánuðum
seinna er Guðmundur ráðinn
forstjóri Hraðfrystihúss Þór-
kötlustaða og var okkar sam-
starf mjög gott. Ég má til að
Guðmundur
Guðmundsson
✝ GuðmundurGuðmundsson
fæddist 27. mars
1947. Hann lést 9.
apríl 2015.
Útför Guð-
mundar fór fram
17. apríl 2015.
segja frá einni
veiðiferð sem við
fórum í sem var
öðrum skemmti-
legri að mörgu
leyti. Við áttum tvo
daga í ónefndri lax-
veiðiá, í ljós kom að
áin var full af laxi,
blátær bergvatnsá
og hugsuðum við
nú gott til glóðar-
innar. Tvær stangir
leyfðar og vorum við Guðmund-
ur með aðra þeirra saman, en
þrír vörubílstjórar úr Reykjavík
með hina. Það er skemmst frá
því að segja að enginn fiskur
fékkst á stöng en 22 stykki
fengust í netræfil sem Guð-
mundur hafði verið með í bíln-
um. Við Guðmundur sættumst á
að fá 10 laxa og vörubílstjór-
arnir rest. Þegar við komum
heim og Guðmundur fór að sýna
Einari mági sínum aflann sagði
hann: Það eru netaför á þessum
löxum. Hvað tók hann? spyr
Einar, og var Guðmundur held-
ur hróðugur er hann sagði:
Hann tók háf. Gummi var einn
af mínum bestu vinum. Var
sorglegt að sjá hvað heilsu hans
hrakaði síðustu árin. Ég kýs að
geyma skemmtilegu minning-
arnar og þakka allar samveru-
stundir okkar. Far þú í Guðs
friði.
Hvíl þú í friði og megi sú hönd,
er heillastjörnunni stýrir,
gæta þín, vinur, á vegferð um lönd
við öll munum kanna um síðir.
(FKD)
Kveðja, þinn vinur,
Arnbjörn.
Okkar ástkæri,
JÓHANN ÓLAFSSON
bóndi og organisti,
Ytra-Hvarfi,
Svarfaðardal,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 29. apríl.
Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 9. maí kl. 10.30.
Jarðsett verður í Vallakirkjugarði.
.
Herdís Aðalheiður Geirsdóttir,
Tryggvi Jóhannsson, Helga Hermannsdóttir,
Hafdís Jóhannsdóttir, Jósef G. Kristjánsson,
Heiðrún Jóhannsdóttir, Skarphéðinn Leifsson,
Helgi Jóhannsson,
Daníel Jóhannsson, Kristín Hjálmarsdóttir,
Sólveig Eyfeld, Younes Ababou,
Ingunn Margrét Hallgrímsdóttir,
Einar Bjarki Hallgrímsson, Sigurrós Karlsdóttir
og barnabörn.
Hetjan okkar,
BENJAMÍN NÖKKVI BJÖRNSSON,
sem lést á Barnaspítala Hringsins 1. maí,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 12. maí kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna og Barnaspítala Hringsins.
.
Eygló Guðmundsdóttir, Anders Wollmén,
Björn Harðarson, Þórey Heiðdal Vilhjálmsdóttir,
Nikulás Ingi Björnsson,
Hrafnhildur Tekla Björnsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNÞÓR BENDER,
Lautasmára 20,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
mánudaginn 4. maí.
Útförin verður auglýst síðar.
.
Soffía Hrafnhildur Jónsdóttir,
Guðleif Bender, Guðmundur A. Gunnarsson,
Guðrún Dóra Gísladóttir, Páll Snæbjörnsson,
Jón Bender, Guðrún Ragnarsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SVEINN SVEINSSON
sjómaður,
Kirkjugötu 17,
Hofsósi,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
föstudaginn 1. maí.
Útför hans fer fram frá Hofsóskirkju laugardaginn 9. maí kl. 14.
.
Sigurbergur S. Sveinsson, Sigurbjörg Björgvinsd.,
Hulda Björk Sveinsdóttir, Smári Jónsson
og barnabörn.