Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 35
1974. Það þótti nú bara býsna gott
hjá félagi sem hafði verið stofnað ár-
ið áður.
Ég skipti svo yfir í Þrótt á ung-
lingsárum og lék með Þrótti til 1985.
Árið 1986 fór ég til Noregs og spilaði
með Viking Stavanger í eitt ár. Eftir
þá dvöl lá leiðin heim og ég skipti yf-
ir í Fram og lék með meistaraflokki
félagsins á árunum 1987-1993. Þetta
var frábær og skemmtilegur tími
enda gullaldartímabil Framara und-
ir stjórn Ásgeirs Elíassonar heitins.
Við urðum Íslandsmeistarar 1988 og
1990, bikarmeistarar 1987 og 1989,
Reykjavíkurmeistarar 1992 og 1993,
Íslandsmeistarar innanhúss 1987,
1988, 1990 og 1991 og meistarar
meistaranna 1987 og 1989.“
Pétur var valinn leikmaður meist-
araflokks Fram árið 1991. Hann lék
með öllum yngri landsliðunum og
lék 28 A-landsleiki. Loks þjálfaði
hann og lék með meistaraflokki
Leiknis á árunum 1994-96.
Starfsferill
Pétur var á námssamningi í húsa-
smíði hjá Byggingafélaginu Röst
1982-86. Hann hóf störf hjá Slökkvi-
liði Reykjavíkur vorið 1987 sem síð-
ar breyttist í Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins (SHS).
Pétur var slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamaður til 2000, hóf nám í
tölvunarfræði í Danmörku það ár og
útkskrifaðist sem kerfisfræðingur
árið 2002. Hann kom síðan aftur til
starfa hjá SHS og er nú deildar-
stjóri tölvudeildar SHS.
Árið 2005 fór Pétur til Kabúl og
var friðargæsluliði á flugvellinum í
Kabúl í þrjá mánuði.
Pétur er alvöru útivistarmaður.
Hann leikur golf, fer á skíði, stundar
hjólreiðar, sjósund, stangveiði og
skotveiði og yfirleitt flest það sem
menn iðka undir berum himni.
„Fjölskyldan á hús á Siglufirði
sem við reynum að dvelja í eins oft
og við höfum tíma til, sérstaklega yf-
ir vetrarmánuðina. Á Siglufirði er
eitt besta skíðasvæði landsins og
þangað fer því fjölskyldan á skíði
eins oft og við mögulega getum.“
Fjölskylda
Eiginkona Péturs er Rósa Vilborg
Jóhannsdóttir, f. 20.9. 1965, gjald-
keri hjá PricewaterhouseCoopers
(PwC). Foreldrar hennar eru Jó-
hann Vilbergsson, f. 20.3. 1935,
leigubílstjóri, og Sigríður Sigurð-
ardóttir, f. 2.10. 1938, húsfreyja. Þau
eru bæði frá Siglufirði.
„Ég kynntist konunni minni eitt
fallegt sumarkvöld í Hollywood sem
þá var vinsæll skemmtistaður í
Reykjavík. Við byrjuðum að rugla
saman reytum, giftum okkur árið
1988 og eigum tvo flotta stráka í dag
sem við ættleiddum frá Indlandi.“
Synir Péturs og Rósu Vilborgar
eru Atli Steinn Sougato, f. 1.3. 2004,
og Pétur Máni Arko, f. 3.7. 2009.
Systkini Péturs eru Róbert Arn-
þórsson, f. 25.11. 1969, umsjónar-
maður fasteigna hjá Félagsstofnun
stúdenta, búsettur í Reykjavík, og
Guðrún Sylvía Arnþórsdóttir, f. 27.4.
1977, en hún starfar í bókhaldsdeild
hjá Fjárvaki, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Péturs eru Arnþór
Stefánsson, f. 13.9. 1949, leigubíl-
stjóri, búsettur í Reykjavík, og
Bertha Biering, f. 9.6. 1947, skrif-
stofukona hjá skóla- og frí-
stundasviði Reykjavíkurborgar, bú-
sett í Reykjavík.
Úr frændgarði Péturs Wilhelms Bierings Arnþórssonar
Pétur Wilhelm Biering
Arnþórsson
Gíslína S. Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðmundur V. Sigurðsson
gullsmiður í Rvík
Sigríður E. Guðmundsdóttir
starfsm. á slysadeild í Rvík
Pétur Wilhelm Biering
kaupm. í Rvík
Bertha Biering
skrifstofum. í Rvík
Þorbjörg Sæmundsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Þorvaldur Guðmundsson
í Síld og fisk
Hendrik Biering kaupm. í Rvík
Anna M. Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Ragnar Þorkell Guðmundsson
skipstj. í Reykjavík
Kristjana Ragnarsdóttir
húsfr. í Rvík
Stefán Guðmundsson
leigubílstj. í Rvík
Arnþór Stefánsson
leigubílstj. í Rvík
Jóhanna Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðmundur Sveinbjörnsson
búsettur í Rvík
Moritz Wilhelm Biering
skósmiður í Rvík
Síldarveisla Pétur og tengdapabbi,
Jóhann Vilbergsson, á Siglufirði.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
• Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir
allar ströngustu kröfur VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
REGLULEGT VIÐHALD
HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ
forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Pétur Bergmann Árnasonfæddist á Bjargi við Bakka-fjörð 8.5. 1924. Foreldrar
hans voru Árni Friðriksson útvegs-
bóndi og k.h., Petrína Pétursdóttir
húsfreyja.
Systkini Péturs voru Eyþór
Bergmann sjómaður; Friðmar
Bachmann sjómaður; Sigurður
framkvæmdastjóri og Guðrún Mar-
grét húsfreyja.
Eiginkona Péturs var Sigríður
Guðmundsdóttir frá Kolsholtshelli í
Flóa, húsfreyja og skrifstofumaður,
en hún lést 1989.
Pétur og Sigríður eignuðust sex
syni; Árna Bergmann rafvirkja-
meistara; Kristin, fyrrv. alþm. og
framkvæmdastjóra; Bjartmar fram-
kvæmdastjóra; Baldur viðskipta-
fræðing MSA; Brynjar Bergmann
nuddara og Ómar sjávarútvegs-
fræðing. Sambýliskona Péturs var
Elly S. Höjgaard húsfreyja.
Pétur ólst upp á Höfn við Bakka-
fjörð, lærði húsgagnasmíði í
Reykjavík en stundaði einnig nám í
orgelleik og kórstjórn hjá Páli Kr.
Pálssyni og Sigurði Birkis.
Að námi loknu hélt Pétur aftur á
Bakkafjörð þar sem hann bjó alla
tíð ásamt fjölskyldu sinni.
Pétur keypti herflutningabíl með
fjórhjóladrifi og stundaði rekstur
vörubifreiðar, oft við afar erfiðar
aðstæður enda flestar ár óbrúaðar.
Hann var rafveitustjóri hjá Raf-
magnsveitum ríkisins á Bakkafirði
um langt árabil. Þá var hann
organisti og kórstjóri við Skeggja-
staðakirkju í tæp fjörutíu ár. Pétur
gegndi fjölda nefnda- og trún-
aðarstarfa enda með afbrigðum
fjölhæfur maður.
Tónlistin var Pétri afar hug-
leikin. Hann var lipur harmonikku-
leikari, lék oft fyrir dansi í sinni
beimabyggð og spilaði við ýmis
tækifæri frá unga aldri. Þá stund-
aði hann sjómennsku, húsasmíði,
húsgagnasmíði og var afbragðs út-
skurðarmaður og þóttu hlutir frá
honum afar vandaðir og prýða þeir
heimili afkomenda hans og ann-
arra.
Pétur lést 19.2. 2013.
Merkir Íslendingar
Pétur B.
Árnason
90 ára
Laufey Júlíusdóttir
85 ára
Finnbogi Jóhannsson
Gunnlaugur Kristjánsson
Heiður Gestsdóttir
Laufey Þorleifsdóttir
80 ára
Einar Jónsson
Ragnheiður Runólfsdóttir
75 ára
Cyril Edward W. Hoblyn
Guðrún Kristjánsdóttir
Jenný Bergljót
Sigmundsdóttir
Magnea Jóhannesdóttir
70 ára
Bryndís A. Ólafsdóttir
Guðlaug Oddgeirsdóttir
Heiðrún Helga Karlsdóttir
Ingolf J. Ágústsson
Sigmundur Birgir Júlíusson
60 ára
Ásgeir Sigurvinsson
Björn Aðalsteinsson
Eysteinn Þórir Yngvason
Grétar Kristjánsson
Hildur Gunnarsdóttir
Jóna Björg Pálsdóttir
Magnea Herborg Jónsdóttir
Rúnar Þröstur Magnússon
Sigurður Ágúst Rúnarsson
Stanislaw Adam Piekarski
Þórir Sigursteinsson
50 ára
Ásgeir Þór Ingason
Björn H. Sigurbjörnsson
Elín Ingibjörg Ingvadóttir
Elísabet Rafnsdóttir
Ingibjörg Herta
Magnúsdóttir
Magnús Ingi Erlingsson
Sigríður Jónsdóttir
Sigrún Sverrisdóttir
Sigurður Rúnar Ólafsson
Una Guðlaug Haraldsdóttir
Vilhelmína Thorarensen
Walter Moffka
Þórhallur S. Jónsson
40 ára
Arnar Sigurðsson
Eiríkur Arnar Magnússon
Engilbert Ágúst Óskarsson
Eva Dögg Júlíusdóttir
Gabriela S. A. Antonio
Medina
Grzegorz Wojciech
Kostuch
Gylfi Bergmann Heimisson
Helga Hafdís Gísladóttir
Jósef Eir Björnsson
Kjartan Halldórsson
Klara Ósk Hallgrímsdóttir
Rögnvaldur Stefán
Helgason
Svanhildur D. Hrólfsdóttir
Sylwia Olga Wozniel
Vignir Friðbjörnsson
30 ára
Daniel Chwaszczynski
Daníel Terrazas
Hafþór Ari Sævarsson
Hallgrímur A. Ingvarsson
Hanna Ulla Jaervinen
Helga Irma
Sigurbjörnsdóttir
Hildur Helgadóttir
Ingveldur Kristjánsdóttir
Íris Hrönn Magnúsdóttir
Karitas Rós Einarsdóttir
Kolbeinn Karlsson
Sólberg Bjarki
Valdimarsson
Una Guðlaug Sveinsdóttir
Valgerður Pétursdóttir
Þorgrímur Kolbeinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sunja ólst upp í
Vestmannaeyjum, býr á
Selfossi, lauk prófum í
matreiðslu í Noregi og er
að hefja nám í matar-
tækni. Sunja hefur unnið í
fatabúð, fisk- og humar-
vinnslu, við blaðaútburð
og í minkabúi.
Foreldrar: Guðríður
Steindórsdóttir, f. 1956,
nemi við Háskólann í
Reykjavík, og Gunnar
Kristinn Þorvaldsson, f.
1945, d. 2009, rafvirki.
Oddný Sunja
Gunnarsdóttir
40 ára Sigurbára er frá
Vestmannaeyjum, er
stúdent frá FÍV og hús-
móðir á Stokkseyri.
Maki: Guðni Hannesson,
f. 1970, dúkari.
Börn: Hannes, f. 1997,
Daníel, f. 1998, Guðjón, f.
2003, og Kristinn Georg,
f. 2011.
Foreldrar: Óskar Krist-
insson, f. 1944, sjómaður
og Guðfinna Georgsdóttir,
f. 1950, vinnur á elliheim-
ili í Vestmannaeyjum.
Sigurbára
Óskarsdóttir
30 ára Bjarni er frá
Grenivík, býr í Reykjavík
og er ráðgjafi hjá KPMG.
Maki: Hafdís Huld Björns-
dóttir, f. 1986, sérfræð-
ingur hjá VÍS.
Börn: Elísa Eyfjörð, f.
2012.
Foreldrar: Friðrik Þor-
steinsson, f. 1947, útgerð-
armaður og húsasmíða-
meistari, og Kristjana
Björg Hallgrímsdóttir, f.
1949, húsmóðir, bús. á
Grenivík.
Bjarni Eyfjörð
Friðriksson