Morgunblaðið - 08.05.2015, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Föstudaginn 15. maí verður haldin
„Mikilvæg dansteiti“ eða „An Imp-
ortant Dance Party“ á skemmti-
staðnum Húrra í miðborginni. Þar
koma fram tvíeykin Kiasmos og
Hugar og einnig breska hljóm-
sveitin worriedaboutsatan.
Kiasmos samanstendur af Ólafi
Arnalds og hinum færeyska Janus
Rasmussen sem hafa spilað saman
frá því í fyrra. Bergur Þórisson og
Pétur Jónsson eru hins vegar Hug-
ar en þeir hafa spilað saman frá
árinu 2012.
Húsið verður opnað kl. 21 en við-
burðurinn hefst klukkutíma síðar.
Miðaverð er 1.500 krónur.
Kiasmos Ólafur Arnalds og Janus Rasm-
ussen koma fram á Húrra nk. föstudag.
Mikilvæg dansteiti
haldin á Húrra
Íslenskar sam-
tímabókmenntir
voru kynntar út-
gefendum og
þýðendum í Osló
og Helsinki í vik-
unni. Var dag-
skráin liður í
markvissu átaki
Miðstöðvar ís-
lenskra bók-
mennta til að
auka útbreiðslu bókmenntanna á
Norðurlöndunum.
Í Osló bauð Gunnar I. Pálsson
sendiherra til fundar og móttöku
og þangað kom lykilfólk í norsku
útgáfu- og bókmenntalífi. Maríanna
Clara Lúthersdóttir, bókmennta-
fræðingur og leikkona, flutti erindi
um helstu strauma og stefnur í ís-
lenskum samtímabókmenntum og
Ófeigur Sigurðsson, handhafi Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna í
ár, sagði frá verkum sínum. Jafn-
framt kynnti Þorgerður Agla
Magnúsdóttir starfsemi Miðstöðvar
íslenskra bókmennta.
Daginn eftir bauð Kristín A.
Árnadóttir, sendiherra Íslands í
Helsinki, til fundar um efnið í
sendiherrabústaðnum þar í borg.
Bókmenntir kynntar
í Osló og Helsinki
Ófeigur
Sigurðsson
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Danski djassgítarleikarinn og -tón-
skáldið Jakob Bro heldur tvenna
tónleika í menningarhúsinu Mengi í
kvöld með Lee Konitz, Bill Frisell
og Thomas Morgan og eru tónleik-
arnir þeir fyrstu á ferð þeirra um
Norðurlöndin, Balladeering Tour.
Næstu viðkomustaðir eru Danmörk,
Færeyjar, Noregur, Grænland og
svo aftur Danmörk. Kvartettinn
mun leika tónlist af þremur plötum
Bro sem saman mynda þríleik, Bal-
ladeering, Time og December Song
sem Bro hlaut fyrir tilnefningu til
Tónlistarverðlauna Norðurlanda-
ráðs í fyrra og mikið lof djassrýna.
Bro hefur hlotið Dönsku tónlist-
arverðlaunin fimm sinnum og hlaut
árin 2009 og 2013 verðlaun djass-
ritsins JazzSpecial fyrir bestu
dönsku djassplötuna, Balladeering
og December Song, svo fáein afrek
séu upp talin. Lee Konitz saxófón-
leikari er orðinn 87 ára, á langan
feril að baki sem djasstónlistar-
maður og hefur leikið með mörgum
stórstjörnum, m.a. Miles Davis. Bill
Frisell gítarleikari sló í gegn á ní-
unda áratugnum með tónlistar-
mönnum á borð við Paul Motian og
Jan Garbarek og hefur fyllt tón-
leikasali víða um heim og leikið á
fjölmörgum hljómplötum. Bassa-
leikarinn Thomas Morgan er af
yngri kynslóð djasstónlistarmanna
líkt og Bro og hefur leikið með
djasstónlistarmönnum á borð við
John Abercrombie og Craig Taborn.
Tónleikaferðin verður kvikmynd-
uð af danska kvikmyndagerðar-
manninum Jørgen Leth en hann
þykir með fremstu mönnum í sínu
heimalandi þegar kemur að til-
raunakenndri heimildamyndagerð.
Bro segist ekki vita hver útkoman
verði hjá Leth en veit þó að það
verður hæg kvikmynd þar sem tón-
listin fær að njóta sín enda Leth
mikill djassgeggjari.
Frisell ein af æskuhetjunum
Bro hóf að leika djass sem tán-
ingur, lærði fyrst á trompet í nokk-
ur ár áður en hann sneri sér að gítar
og segir hann föður sinn án efa hafa
haft áhrif á það að hann kaus djass-
inn umfram aðrar tónlistarstefnur.
Faðir hans var í djasssveit og auk
þess tónlistarkennari og hafði mikið
dálæti á gömlum kempum á borð við
Louis Armstrong og Count Basie.
Bro átti sér margar gítarhetjur sem
ungur maður og af djassgítarhetjum
nefnir hann m.a. Bill Frisell sem
hann var svo heppinn að fá að spila
með á fullorðinsárum og leikur með
í kvöld.
Bro hefur gefið út tíu plötur en
segist hafa fundið rétta hljóminn,
það sem hann sóttist eftir sem
djasstónskáld, á Balladeering sem
kom út árið 2009. „Þá small allt
saman og það var virkilega góð lífs-
reynsla. Tónsmíðarnar hjá mér voru
mjög einfaldar og buðu upp á mik-
inn spuna. Munurinn á Balladeering
og fyrri plötunum mínum var sá að
Lee Konitz lék laglínurnar ekki eftir
nótum heldur hlustaði og lék svo af
fingrum fram, frá upphafi til enda,“
segir Bro. Honum hafi þótt platan
það góð að hann hafi ekki treyst sér
í að gera aðra fyrr en þremur árum
eftir að hún kom út. Það var platan
Time. „Eftir hana ákvað ég að búa
til þá þriðju og ljúka þar með þrí-
leik,“ segir Bro. Tónlistarheimurinn
sé sá sami á plötunum þremur og
bindi þær saman.
„Ég samdi lögin heima í Dan-
mörku en líka á ferðalögum mínum
um Ísland og Færeyjar og fannst
það góð hugmynd að koma hingað
með tónlistarmönnunum sem léku
með mér á plötunum og halda tón-
leika,“ segir Bro. Honum hafi auk
þess þótt spennandi að ferðast um
þessi lönd með félögum sínum og þá
sérstaklega að leika á Grænlandi.
Lærdómsríkt kynslóðabil
– Það er heilmikið kynslóðabil í
hljómsveitinni, Konitz fæddur árið
1927 og þú 1978. Finnur þú fyrir því
þegar þið leikið saman?
„Ég finn greinilega fyrir þessu
kynslóðabili og upplifi það á ýmsan
hátt. Þetta er dálítið erfið spurning
en ég er alltaf að velta því fyrir mér
hvað geri tónlist áhugaverða fyrir
mér. Þetta snýst ekki bara um að
vera fær hljóðfæraleikari, það þarf
margt að koma saman til þess að
tónlist hreyfi við manni og hafi ein-
hverja þýðingu fyrir manni,“ svarar
Bro. Hann hafi verið svo lánsamur
að leika með mörgum djassistum af
eldri kynslóðinni og mörgu í tónlist
þeirra eigi hann erfitt með að átta
sig á. „En ég skynja hana á ákveð-
inn hátt og ég held að það sé mjög
mikilvægt fyrir unga tónlistarmenn
að upplifa þennan kynslóðamun.
Það eru ákveðnar hindranir sem er
ekki alltaf auðvelt að komast yfir en
kveikja ákveðinn neista sem getur
orðið að góðri tónlist. Það er ekkert
leyndarmál að Lee hefur gaman af
því að leika gamla standarda, kýs
helst að gera það en ég vil halda mig
við mitt efni þó að hann vilji fara í
aðrar áttir,“ segir Bro kíminn.
Snýst ekki um stóra staði
– Nú er Mengi lítill tónleika-
staður, rúmar um 70 gesti. Hvers
vegna völduð þið svo lítinn stað?
Bro hlær og segir Skúla Sverr-
isson, bassaleikara og listrænan
stjórnanda Mengis, hafa hvatt hann
til að halda tónleikana í Mengi.
Skúli sé einn af hans
uppáhaldstónlistarmönnum og tón-
leikastaðurinn góður, bjóði upp á
mikla nánd við gesti og notalega
stemningu. „Þessi ferð snýst ekki
um stóra tónleikastaði,“ segir Bro.
„Þetta snýst meira um reynsluna og
ég hlakka mikið til tónleikanna í
Mengi sem ég held að verði afar
skemmtilegir.“
Rétt er að geta þess að uppselt er
á báða tónleikana.
„Snýst ekki bara um að vera fær“
Jakob Bro, Lee Konitz, Bill Frisell og Thomas Morgan halda tvenna tónleika í Mengi í kvöld
Upphaf tónleikaferðar sem verður kvikmynduð af hinum tilraunaglaða Jørgen Leth
Morgunblaðið/Eggert
Ferðalag „Ég samdi lögin heima í Danmörku en líka á ferðalögum mínum um Ísland og Færeyjar og fannst það góð
hugmynd að koma hingað með tónlistarmönnunum sem léku með mér á plötunum og halda tónleika,“ segir Bro.
ÍSLENSKT TAL
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus