Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 128. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Meðaldagvinnulaun frá 406 - 536 …
2. Yfirmaður kokksins sem sleikti …
3. Sveinn Andri selur glæsihúsið
4. Ástfangna parið geislaði á …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppistandshópurinn Mið-Ísland er
á ferð og flugi um landið með sýn-
ingu sína Lengi lifi Mið-Ísland sem yf-
ir 10 þúsund manns hafa séð í Þjóð-
leikhúskjallaranum frá áramótum. Í
kvöld skemmtir hópurinn í menning-
arhúsinu Hofi á Akureyri.
„Þetta er þriðja árið í röð sem við
erum í Hofi. Þar er alltaf frábær
stemning og við hlökkum mikið til,“
segir Ari Eldjárn, einn af meðlimum
Mið-Íslands. Að hans sögn stóð upp-
haflega til að halda eina sýningu kl.
20 en vegna mikillar aðsóknar var
annarri bætt við kl. 23. Næstu sýn-
ingar Mið-Íslands verða svo í Reykja-
nesbæ 13. maí og í Bolungarvík 15.
maí.
Mið-Ísland með tvær
sýningar í Hofi
Kammerhópurinn Stilla flytur verk-
ið Il Tromondo, eða Sólsetrið, eftir
Ottorino Respighi, í Laugarneskirkju í
dag kl. 12 og eru tónleikarnir hluti af
röðinni Á ljúfum nótum. Verkið er 15
mínútna langt, var samið árið 1914
fyrir strengjakvartett og söngrödd og
byggt á ljóði breska rithöfundarins
Percy B. Shelley sem fjallar um
ástina, lífið og dauðann.
Kammerhópinn skipa Lilja Eggerts-
dóttir sópran, Sigrún Harðardóttir
fiðluleikari, Margrét Soffía Ein-
arsdóttir fiðluleikari, Þórunn Harð-
ardóttir víóluleikari og Gréta Rún
Snorradóttir sellóleikari.
Il Tromondo flutt í
Laugarneskirkju
Á laugardag Norðlæg átt 3-8 m/s, en 5-10 m/s með austur-
ströndinni. Stöku él allra syðst, annars bjart veður um landið sunn-
an- og vestanvert og hiti 2 til 6 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 8-13 m/s. Þurrt og bjart veður á
Suður- og Vesturlandi, en él fyrir norðan og austan. Frost 0 til 6
stig, en hiti að 5 stigum á sunnanverðu landinu yfir daginn.
VEÐUR
Stjarnan jafnaði metin við
Gróttu í kapphlaupinu um
Íslandsmeistaratitilinn í
handknattleik kvenna í gær-
kvöldi þegar liðið vann á
heimavelli, 23:19, í annarri
viðureign liðanna. Stjörnu-
liðið var afgerandi betra að
þessu sinni og hafði m.a.
sex marka forskot í hálfleik,
15:9, ekki síst vegna stór-
leiks Florentinu Stanciu
markvarðar. Hún lék Gróttu-
liðið oft grátt. »2
Stjarnan jafnaði
metin við Gróttu
„Það er að byrja enn eitt tímabilið hjá
manni og það er bara virkilega
ánægjulegt,“ sagði Bjarni Jóhanns-
son, þjálfari KA, en margir spá liði
hans góðu gengi í 1. deildinni í knatt-
spyrnu en keppni hefst í henni í kvöld
með viðureign Gróttu og HK en fimm
leikir verða síðan á dagskrá á laugar-
daginn. Bjarni segir tilhlökkun ríkja
meðal leikmanna. »4
Enn eitt tímabilið hefst
og tilhlökkun ríkir
Fylkir og Breiðablik skildu jöfn, 1:1, í
lokaleik 1. umferðar Pepsi-deildar
karla í knattspyrnu í gærkvöld en
leiknum hafði verið frestað vegna
vallaraðstæðna í Árbæ. Leikurinn var
ekki sá besti en bæði lið ættu óhikað
að stefna á að vinna sér inn sæti í
Evrópukeppni að mati Sindra Sverr-
issonar sem fór á Fylkisvöll í gær og
fylgdist með. »2
Lið sem ættu óhikað að
stefna á Evrópukeppni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bítlakrás fyrir Grensás – With a
Little Help from My Friends! nefn-
ast tónleikar til styrktar Grensás-
deild. Þeir verða í Háskólabíói laug-
ardaginn 30. maí næstkomandi.
Birgir Ingimarsson, grafískur
hönnuður, er helsti hvatamaður tón-
leikanna. Hann kynnti hugmyndina
fyrir stjórn Hollvina Grensásdeildar,
sem tók honum fagnandi. Í kjölfarið
fékk hann fjölda listamanna til þess
að koma endurgjaldslaust fram á
skemmtuninni.
Skila til baka
Fyrir um þremur árum var Birgir
sjúklingur á Grensásdeild í nokkra
mánuði eftir heilablóðfall. Þar kynnt-
ist hann Eddu Heiðrúnu Backman,
sem hefur verið dugleg að afla fjár
fyrir deildina, og vildi, eins og hún,
leggja sitt af mörkum. „Þetta dásam-
lega og jákvæða starfsfólk sem vinn-
ur þarna kom mér hreinlega í gang
og út í atvinnulífið aftur,“ segir Birg-
ir. „Það var eins og að keyra bílinn út
af verkstæðinu og allt komið í lag.
Maður á ekki að kvarta yfir heilsufari
þegar maður kynnist svona hörkutóli
eins og hún er hún Edda og mig lang-
aði til þess að skila einhverju til
baka.“
Tónlistin hefur leikið stórt hlut-
verk í lífi Birgis og því blasti við að
halda styrktartónleika. „Ég er gamall
rokkari,“ rifjar hann upp, en hann
spilaði meðal annars með Gautum og
Miðaldamönnum á Siglufirði. Hann
hefur lengi verið áhugamaður um
tónlist Bítlanna og öll lögin, sem leik-
in verða á tónleikunum, eru eftir
John Lennon og Paul McCartney,
auk þess sem boðið verður upp á
sögusýningu.
Birgir kynntist fyrst Grensás-
deildinni fyrir mörgum árum, þegar
bróðir hans var þar í meðferð eftir
slys. „Starfsfólkið kom honum í gang
og hjálpaði honum mikið,“ rifjar
Birgir upp. „Þarna vinnur krafta-
verkafólk, allt svo jákvætt og
skemmtilegt, og enginn hugsar um
aðstöðuleysið.“
Húsnæði Grensásdeildar er barn
síns tíma. Birgir bendir til dæmis á að
iðjuþjálfunin sé í kjallara þar sem
ekki sé full lofthæð og húsnæðið sé
allt of lítið auk þess sem vanti tæki og
tól. „Eftir söfnunina sem Edda Heið-
rún stóð að í sjónvarpinu var byggt
glerhús yfir anddyrið en draumurinn
er að stækka rýmið fyrir iðjuþjálf-
unina og fleira,“ segir hann.
Miðasala er hafin á midi.is.
Deildin kom þeim í gang
Styrktartónleikarnir Bítlakrás fyrir
Grensásdeild verða í Háskólabíói
Ljósmynd/Hari
Skemmtikraftar Birgir Ingimarsson hefur fengið marga listamenn til liðs við sig og gefa þeir allir vinnu sína á styrktartónleikunum í Háskólabíói.
Meðal þeirra sem Birgir Ingi-
marsson hefur fengið til þess
að koma fram á tónleikunum
eru Björn Thoroddsen, Ari Jóns-
son, Eyþór Ingi Gunnlaugsson &
Lovísa Fjeldsted, Sönghópur úr
Domus vox, Á bak við eyrað,
Ólafía Hrönn, Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir,
Þuríður Sigurðar-
dóttir og Örn Gauti
Jóhannsson. Kynnar
verða Bogi Ágústsson
og Helgi Pét-
ursson.
Allir gefa
vinnu sína
LISTAMENN
Birgir
Ingimarsson