Morgunblaðið - 16.05.2015, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015
Deilur á vinnumarkaði
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Starfsgreinasamband Íslands, SGS, hefur
frestað boðuðum verkfallsaðgerðum um 10
þúsund félagsmanna 19. og 20. maí nk. Ótíma-
bundnu verkfalli, sem átti að hefjast 26. maí,
hefur verið frestað til 6. júní, hafi ekki samist
fyrir þann tíma. Hins vegar verða tveggja
daga verkföll á landsbyggð-
inni 28. og 29. maí. Stéttar-
félag Vesturlands tilkynnti
það sama í gær, í raun 1-2
tímum fyrr en SGS, en fé-
lagið hefur hætt samfloti
með SGS við samninga-
borðið og hyggst ganga til
liðs við Flóabandalagið og
verslunarmenn. Ástæðan er
óánægja með að einstök fé-
lög SGS hafi verið að gera
kjarasamning við fyrirtæki
á landsbyggðinni.
Frestun ákveðin
sl. þriðjudag
Samninganefndir SGS og
SA eiga boðaðan fund hjá
ríkissáttasemjara nk.
mánudag. Björn Snæ-
björnsson, formaður SGS,
segir samninganefndina
hafa ákveðið það sl. þriðju-
dag að fresta aðgerðum til
að gefa SA tækifæri til að koma með betra til-
boð. Hann segir Stéttarfélag Vesturlands hafa
verið með í ráðum, þó að félagið hafi ákveðið að
draga sig út úr samfloti í viðræðum.
Takist ekki að semja á næstu vikum, og
komi til allsherjarverkfalls 6. júní, þá nær það
til um 80 þúsund launamanna innan SGS, VR,
Flóabandalagsins og Landssambands versl-
unarmanna. Björn segir að með því að færa að-
gerðir inn á sömu daga þá sé vissulega verið að
auka þrýting á viðsemjendur. „Það taka allir
sínar sjálfstæðu ákvarðanir í þessu. Þetta þýð-
ir ekki að við séum að slaka á okkar kröfum
eða gefa ákveðið svigrúm,“ segir hann.
Björn segir það ekki góðar fréttir að Vest-
lendingar hafi ákveðið að draga sig út úr sam-
flotinu með SGS.
„Það er slæmt að Vestlendingar taki þessa
ákvörðun en það hefur ekki verið óeining með-
al okkar. Það var að vísu ágreiningur um þessa
samninga en um önnur atriði hefur verið góð
sátt,“ segir Björn og telur kjarasamningana,
sem gerðir hafa verið við fyrirtæki utan SA,
ekki hafa skapað óeiningu innan raða Starfs-
greinasambandsins. Enn sé mikill hugur og
baráttuvilji í fólki, um að ná fram góðum kjara-
samningum. „Það er alls ekki svo að þverrandi
vilji sé fyrir því að beita verkfallsvopninu,“
segir Björn og telur aðgerðirnar til þessa hafa
heppnast vel.
„Fólk verður enn brjálaðra þarna 28. og 29.
maí, og síðan 6. júní, ef ekkert hefur komið frá
SA, það er alveg ljóst. Enginn bilbugur er á
okkar fólki. Ég sé nú stjórnvöld og SA stand-
ast það ef 80 þúsund manns verða komin í
verkfall þarna 6. júní. Menn verða þá að fara
að hugsa sig um. Vilja menn gera þetta í friði,
eða vilja menn hörkuátök?“ spyr Björn.
Undanhaldið byrjaði strax
Signý Jóhannesdóttir, formaður Stéttar-
félags Vesturlands, er ósátt við að aðildarfélög
innan SGS hafi verið að gera kjarasamninga
við fyrirtæki á sama tíma og verkfallsaðgerðir
standi yfir og viðræður við Samtök atvinnulífs-
ins. Þessi félög hafi verið að storka samstöðu
innan SGS og skilið þá hópa eftir sem lökust
hafa kjörin.
„Um leið og búið var að greiða atkvæði um
verkföll voru menn byrjaðir að stunda undan-
hald innan þessa hóps, sumir þeir sömu og
hafa látið hvað hæst um að standa saman og
berjast. Þetta þjónar ekki hagsmunum þeirra
sem lökust hafa kjörin,“ segir hún.
Signý segir það líka hafa skipt miklu máli,
varðandi þá ákvörðun að draga sig út úr sam-
flotinu, að innan félagsins starfi margir versl-
unarmenn sem nú séu að greiða atkvæði um
verkfall. Það geti jafnframt virkað betur að
vera í samfloti með stærri hópum.
„Við vorum heldur ekki sammála um þær
dagsetningar sem Starfsgreinasambandið var
með á verkföllunum, þær hentuðu okkur ekki.
Það var því ýmislegt sem réð því að við
ákváðum að gera þetta með öðrum hætti,“ seg-
ir Signý.
Hún á von á því að félagið gangi til liðs við
verslunarmenn í samflotinu með VR og Flóa-
bandalaginu. Vel hafi gengið að vinna með for-
ystumönnum verslunarmannafélaganna.
Vestlendingar
til liðs við
Flóafélögin
SGS frestar boðuðum verkfallsaðgerðum
80 þúsund manns í allsherjarverkfall 6. júní
Stéttarfélag Vesturlands hætt í samfloti SGS Morgunblaðið/KristinnHjá sáttasemjara Samningamenn í Flóafélögum og verslunarmannafélögum á fundi í gær.
Signý
Jóhannesdóttir
Björn
Snæbjörnsson
SFR - stéttarfélag í al-
mannaþjónustu hefur átt í
kjaraviðræðum við
Reykjavíkurborg, Sam-
band íslenskra sveitarfé-
laga og Samtök fyrirtækja
í velferðarþjónustu (SFV)
en samningar voru lausir
1. maí sl. Næsti samn-
ingafundur er boðaður um
miðja næstu viku.
Árni Stefán Jónsson,
formaður SFR, segir að þótt nokkrir samn-
ingafundir hafi verið haldnir þá sé lítið að
gerast. Verið sé að skoða sérstök mál en
ekki launaliðinn enn sem komið er. Aðallega
sé verið að skoða vaktavinnufyrirkomulag
en SFR er í samfloti með Sjúkraliðafélagi
Íslands og Landssambandi lögreglumanna.
Það samstarf hefur ekki áður átt sér stað en
Árni segir þetta hafa verið gert til að skapa
sterkari einingu og auka slagkraftinn í við-
ræðum. Þessar starfsstéttir eigi margt sam-
eiginlegt og ekki síst vaktavinnuna. Í þess-
um félögum eru alls um 5.500 manns
starfandi hjá ríkinu, þar af um 3.800 í SFR,
um 1.000 sjúkraliðar og 600 lögreglumenn.
„Við fengum afhent svipað plagg og BHM
sem var óburðugt en samt komin smá hugs-
un í það,“ segir Árni Stefán en að hans sögn
hefur ekki komið til tals að grípa til ein-
hverra verkfallsaðgerða. Hann segist ekki
sjá tilgang í því, miðað við stöðuna í dag.
bjb@mbl.is
SFR í samfloti með sjúkraliðum og löggum
Árni Stefán
Jónsson
Bankamenn bíða eftir svari frá SA
Bankamenn bíða eftir
svari frá sínum viðsemj-
endum eftir samninga-
fund í síðustu viku. Þar
lögðu Samtök starfs-
manna fjármálafyrir-
tækja, SSF, fram hug-
myndir um
kjarasamning til eins og
hálfs árs.
Næsti samningafund-
ur er um miðja næstu viku. Friðbert
Traustason, formaður SSF, segir að ef
ekkert svar komi frá samninganefnd Sam-
taka atvinnulífsins þá komi til greina að
vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara.
Það komi í ljós eftir næsta fund.
Kjarasamningur SSF rann út 1. mars sl.
Síðan þá hafa nokkrir samningafundir ver-
ið haldnir, en án niðurstöðu. „Við vorum í
biðstöðu framan af. Mér sýnist að allir séu
að bíða eftir öllum, enginn þorir að stíga
skrefið,“ segir Friðbert um stöðu kjara-
viðræðna almennt. „Mér sýnist atvinnurek-
endur alveg vera jafn hræddir og verka-
lýðshreyfingin. Menn eru ekki tilbúnir í
aðra útfærslu en þá sem yrði sem heildar-
niðurstaða á vinnumarkaði, hvort sem það
verður í sumar eða haust. Ríkið gekk á
undan með ákveðnu fordæmi og er síðan
að reyna að fela það í einhverjum bún-
ingi,“ segir Friðbert.
Félagsmenn ekki hálaunafólk
Hann segir það mikinn misskilning að
félagsmenn SSF séu hálaunafólk „á of-
urlaunum með feita bankabónusa“. Þannig
hafi það aldrei verið. Tryggja þurfi lag-
færingar á lægstu laununum þar eins og
annars staðar. Stór hluti félagsmanna sé
með 300-450 þúsund króna mánaðarlaun,
t.d. gjaldkerar og starfsfólk í þjónustu-
verum bankanna. Um 70% félagsmanna
séu með háskólamenntun. Bendir Friðbert
á að eingöngu í upplýsingatæknideildum
fjármálafyrirtækja starfi um 600 manns og
þar séu eftirsóttir hugbúnaðarsérfræð-
ingar sem geta sótt í betri laun annars
staðar.
„Við höfum verið að velta upp hug-
myndum um samning til styttri tíma. En
langbest væri fyrir alla að semja til
þriggja ára og koma á ró á vinnumark-
aðnum,“ segir Friðbert. bjb@mbl.is
Friðbert Traustason
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Það þokaðist ekki áfram á fundi okkar með
samninganefnd ríkisins. Það olli okkur von-
brigðum. Það var farið að hreyfast aðeins en
við erum áhyggjufull yfir stöðunni,“ segir Þór-
unn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.
Verkfall BHM hefur nú staðið yfir í sex vikur
og er næsti fundur ekki fyrr en á mánudag.
Það er of seint að mati Þórunnar. „Þetta mætti
vera að hreyfast hraðar – það verður að segjast
alveg eins og er.“
Verkfall BHM hefur haft mikil áhrif á sam-
félagið og varla sá einstaklingur sem hefur
ekki fundið fyrir því með einum eða öðrum
hætti.
Ástandið með öllu óþolandi
Í föstudagspistli sínum í gær segir Páll
Matthíasson, forstjóri Landspítalans, að verk-
fallið sé öryggisógn. „Meðferð undanþágu-
beiðna hefur hinsvegar verið með samræmdari
hætti síðustu daga og sjúklingar látnir njóta
vafans í þeim erfiðu aðstæðum sem uppi eru,“
segir Páll. Hann bendir einnig á að framundan
séu verkföll hjúkrunarfræðinga og stoðstétta
sem sinna ræstingu, flutningum og öðrum mik-
ilvægum störfum.
„Það má ekki verða. Ástandið er þegar orðið
afar þungbært fyrir sjúklinga og starfsfólk og
ef enn bætist í með verkföllum fyrrgreindra
stétta tekur steininn fullkomlega úr.“ Síðan
verkfall læknafélaganna hófst fyrir 29 vikum
haf verkföll staðið yfir á Landsspítalanum í 17
vikur. Páll segir að ástandið sé með öllu óþol-
andi.
Sú hugmynd kom upp innan samninganefnd-
ar BHM að herða aðgerðir en ákveðið var að
bíða með það. „Það er kurr í okkar fólki og hef-
ur komið til tals að herða aðgerðir en af því að
við erum öll af vilja gerð til að leysa þessa deilu
og ná samningum, eins og við höfum verið að
reyna frá fyrsta degi, þá var niðurstaðan að
gera það ekki heldur láta framkvæmd verk-
fallsins standa eins og hún er í trausti þess að
eitthvað þokist áfram á fundi sem hefur verið
boðaður á mánudag,“ segir Þórunn.
Léttara yfir Flóanum
Heldur léttara hljóð var í Kristjáni Gunn-
arssyni, formanni Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur, sem er eitt Flóafélaganna.
Hann sagði að fundurinn í gær hefði farið í
hring. „Við byrjuðum fundinn ferlega neikvætt
en svo var lagt fram nýtt plagg með breyttum
áherslum og framsetningu. Við sátum yfir því
og tölurnar eru nær því að vera að okkar skapi
og það verður áfram unnið með það. Það má
segja að þetta hafi verið jákvæðasti dagurinn
hingað til,“ segir Kristján en nýr fundur hefur
verið boðaður á sunnudag.
Dimmir á ný í deilu BHM og ríkisins
Fundur hjá samninganefndum BHM og ríkisins skilaði engu Jákvæður dagur hjá Flóafélögum
Kristján
Gunnarsson
Páll
Matthíasson
Þórunn Svein-
bjarnardóttir „Það var ákveðið á fundi starfsmanna
FHSS í Fjársýslunni og stjórnar FHSS að
stjórnin myndi boða til atkvæðagreiðslu á
mánudaginn um boðun ótímabundins verk-
falls þann 2. júní. Það liggur fyrir á mánu-
dag hvort af því verður,“ segir Ragnheiður
Bóasdóttir, formaður Félags háskólamennt-
aðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Eins og kunnugt er dæmdi félagsdómur í
síðustu viku verkfall FHSS ólögmætt, þar
sem tilkynning um það verkfall var ekki
send til fjármála- og efnahagsráðherra.
Verkefni Fjársýslunnar eru fjölbreytt og
snerta marga enda og segir Ragnheiður að
verkfall FHSS í Fjársýslunni bíti.
Liggur fyrir
á mánudag
STARFSMENN FJÁRSÝSLU RÍKISINS