Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015 „Harpa er vel byggt hús,“ er yfir- skrift svars fasteignasviðs Hörpu við grein Örnólfs Hall arkitekts, „Af fjölda galla í Hörpu“, sem birtist 14. maí s.l. Morgunblaðið óskaði eftir viðbrögðum við gagnrýni Örnólfs. Hér er birtur útdráttur úr svarinu. Hvað varðar ryðmyndanir segir fasteignasviðið að ekki sé hægt að útiloka að raki geti þést á einstaka stað og valdið ryðpunktum „en málningarkerfið, þrefalt vatnsvarn- arkerfi, slitnar kuldabrýr, stýrðar umhverfisstæður stálsins innanhúss og þar með talin loftræsing í gegn- um glerhjúpinn koma hins vegar í veg fyrir að þetta verði vandmál eins og reynslan hefur sýnt þau fjögur ár sem eru liðin frá opnun Hörpu.“ Verktaki skipti um fyrri „stuðla- vegg“ á sinn kostnað. „Harpa varð ekki fyrir beinum kostnaði af völd- um þessa en afleiddur kostnaður vegna óþæginda við opnun hússins hefur ekki verið metinn,“ segir í svarinu. Varðandi gagnrýni á málmsuðu, málmsmíði og samtengingar segir fasteignasviðið að eflaust megi finna einhverjar suður sem ekki standist fullkomlega fegurðarkröfur en það sé lítið hlutfall af þeim tugum þús- unda suðna sem eru í burðarhjúpi glervirkisins. Verktaki kostaði fúguviðgerð Almennt séu silikonfúgur ágæt- lega frá gengnar. Skera hafi þurft upp frágang fúgu á miðri norðurhlið á 1. hæð og endurnýja silikonfúgu milli glerja vegna þess að lokað hafði verið fyrir frárennslisleið í drenkerfi glugganna. „Það var á ábyrgð og kostnað verktaka að bæta úr þessu.“ Sjónsteypa í Hörpu er almennt sögð hafa heppnast vel. Þó séu dæmi um steypur sem tókust síður. Í nokkrum tilfellum mat verkfræði- stofan Efla að tilefni væri til end- ursteypu og var það gert. Efla tók út flísalögnina og var ekki gerð athugasemd við hana. Arkitektar hússins völdu gólfefni á 2.-5. hæð. Þá tók aðgengisfulltrúi Blindrafélagsins út aðgengi í Hörpu með tilliti til aðgengis sjóndapurra. Fyrirkomulag aðalstigans (neyð- arstigans) var tekið upp í samræðum við byggingarfulltrúa og samþykkt. Eld í Eldborgarsal á smíðatíma má í báðum tilfellum rekja til óvarlegrar vinnu með logsuðutæki. „Tekið var á því vandamáli í samvinnu verktaka, eftirlits og Vinnueftirlits.“ Hæð handriða í Eldborgarsal er almennt 800 mm skv. samþykkt byggingarfulltrúa. Undantekning eru handrið við 2.-4. sætaröð sem eru 730 mm og er það gert svo ekki komi til truflunar á sjónlínu gesta á þessum svölum. Bent er á að handrið á fremstu svölum Þjóðleikhúss séu 700 mm há og 740 mm á fremstu svölum Salarins. „Nokkrum rúðum var skipt út vegna galla sem uppgötvuðust á framkvæmda- og ábyrgðartíma á kostnað verktaka. Skipt hefur verið um eina rúðu í austurhúsi vegna móðu og bar framleiðandi kostnað af nýrri rúðu en Harpa kostaði upp- setningu.“ Bómukranabílar hafa verið við Hörpu af ýmsum ástæðum, t.d. til að hífa byggingarefni vegna vinnu verktaka að úrbótum í sam- ræmi við ábyrgð hans á verkinu. Samkvæmt samningi milli bygg- ingarfulltrúa, verkkaupa, Austur- hafnar og ÍAV var framkvæmdaeft- irlit við Hörpu falið Eflu og ÍAV (glerhjúpurinn). Samtals 3.000 út- tektir Eflu voru skráðar í Erindreka byggingarfulltrúa. gudni@mbl.is „Harpa er vel byggt hús“  Svar Hörpu við gagnrýni arkitekts Morgunblaðið/Eggert Harpa Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Reykjavíkurhöfn, er glæsilegt. Skannaðu kóðann til að lesa svar Hörpu í heild. Samtal á afmælisári50 Föstudagur 22. maí kl. 8.30-10.45 Silfurberg í Hörpu Tími til aðgerða Landsvirkjun býður til opins fundar um hnattrænar loftslags- breytingar og hvernig fyrirtæki geta unnið gegn áhrifum þeirra. Í tilefni af 50 ára afmæli stendur Landsvirkjun fyrir samtali við þjóðina með opnum fundum. Allir velkomnir! Framtíðaráhrif loftslagsbreytinga Áherslur stjórnvalda í loftslagsmálum Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra Hvernig vinnur Landsvirkjun gegn loftslagsbreytingum? Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Ísland Halldór Björnsson, veður- og haffræðingur hjá Veðurstofu Íslands Ábyrgð, samstaða og samstarf um lausn vandans Halldór Þorgeirsson, forstöðum. stefnumörkunar hjá skrifstofu Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar Pallborðsumræður Þátttakendur eru Halldór Björnsson, Halldór Þorgeirsson, Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan, Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Fundarstjóri er Magnús Halldórsson, blaðamaður á Kjarnanum. Skráning á fundinn og bein útsending á landsvirkjun.is mundir. Á dögunum var tekið á móti gestum og gangandi með kostum og kynjum, þar sem margskonar veitingar voru í boði. Félagarnir Einar Kristinsson og Jón Óskarsson, sem nú er látinn, byrjuðu með litla saumastofu á Hellu fyrir 55 árum og unnu jafn- framt hjá Kaupfélaginu Þór. Þeg- ar starfsemi þeirra varð umfangs- meiri þá hættu þeir hjá kaupfélaginu, stækkuðu sauma- stofuna og stofnuðu verslunina Mosfell samhliða henni.    Starfsemin jókst og stækkaði og smám saman byggðu þeir upp gisti- og hótelstarfsemi, bæði inni í þéttbýlinu og einnig smáhýsa- svæði fyrir gistingu og tjaldsvæði í útjaðri kauptúnsins, sunnan við brúna yfir Ytri-Rangá. Eftir að Jón Óskarsson féll frá var gistist- arfsemin seld öðrum aðilum, sú starfsemi er nú rekin undir nöfn- unum Hótel Hella annars vegar og Árhús hins vegar. Einar Kristins- son rekur verslunina Mosfell enn í dag á afmælisárinu. Sveitarfélög víða um land hafa ráðist í undirbúning og fram- kvæmdir til þess að ljósleiðara- væða hinar dreifðu byggðir um landið. Góð nettenging er forsenda þess að ýmiskonar starfsemi geti dafnað og þrifist. Þá má nefna að almennir ferðamenn gera þá kröfu í síauknum mæli að hafa gott net- samband á viðkomustöðum sínum, að ekki sé minnst á þá sem halda vinnufundi og ráðstefnur. Líka má nefna að allskonar starfsemi er með vistun á netinu, t.d. fyrir bók- hald, bókunarkerfi og margt fleira.    Rangárþing ytra og nefndir á vegum þess eru nú farin að huga að þessum málum og er það vel. Samgöngu- og fjar- skiptanefnd sveitarfélagsins hefur látið gera frumhönnun og kostnaðarmat á lagningu ljós- leiðara um Rangárþing ytra. Gert er ráð fyrir því að 233 heimili og aðrir fái tengingu og næg flutningsgeta verði í kerf- inu til að unnt verði að bjóða sumarhúsaeigendum og fyrir- tækjum aðild. Kostnaðarmatið gerir ráð fyrir 367 milljónum króna fyrir utan virðisauka- skatt. Þetta eru mun lægri fjár- hæðir en áður var talið. Von- andi kemur ríkisvaldið þó til hjálpar í þessu verkefni eins og reyndar hefur verið gefið í skyn af núverandi stjórnvöldum. Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Afmæli Einar Kristinsson og Hjördís Guðnadóttir í versluninni Mosfelli. Hefur rekið verslunina Mosfell á Hellu í 50 ár ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hella Loksins er komið að því að Landsnet ætlar að leggja raf- magnslínur í jarðstreng gegnum kauptúnið á Hellu. Þetta hefur verið baráttumál margra í gegnum árin, en strengir hafa verið í loft- línum frá spennistöð vestan Hellu, gegnum kauptúnið og austur í Hvolsvöll. Þessar loftlínur hafa löngum þvælst fyrir þegar verið er í margs konar framkvæmdum, fyr- ir utan sjónmengunina. Nú hefur Landsnet sótt um framkvæmda- leyfi hjá sveitarfélögunum til að leggja þessa línu í jörð meðfram hringveginum. Verkið þarf ekki að fara í umhverfismat. Áætlað er að framkvæmdin verði boðin út í vor og verklok verði síðla í haust. Reiknað er með að gömlu línurnar verði fjarlægðar á árinu 2016.    Verslunin Mosfell á Hellu fagnar 50 ára afmæli um þessar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.