Morgunblaðið - 16.05.2015, Side 14

Morgunblaðið - 16.05.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Til sölu er tískuverslunin Tuzzi í Kringlunni. Verslunin hefur verið rekin um fimm ára skeið og er þekkt fyrir vandaðan kvenfatnað. Verslunin er með trygg og góð viðskiptasambönd. Tuzzi hefur skapað sér ákveðna sérstöðu og á tryggan hóp viðskiptavina. Verslunin er í 100 m2 leiguhúsnæði með langan leigusamning. Reksturinn hefur gengið vel og skilað ágætum hagnaði. Áhugasamir hafi samband við jens@kontakt.is H a u ku r 0 5 .1 5 Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Vitnaleiðslum í stóra markaðsmis- notkunarmáli Kaupþings er nú lokið, en með yfirheyrslum yfir ákærðu hafa þær tekið fjórar vikur, eða 17 daga í dómsal. Næst á dagskrá er svo munnlegur málflutningur saksókn- ara og verjenda, en áætlað er að hann muni taka alla næstu viku. Eftir að síðasta vitnið kom fyrir dóminn í gærmorgun var dagskrá næstu viku stillt upp. Ljóst er að dag- skrá hvers dags verður frá kl. 9 til 16. Saksóknari mun hefja leikinn og sagðist hann þurfa heilan dag fyrir sinn flutning. Á þriðjudaginn fyrir hádegi er svo áætlað að verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar, fv. for- stjóra bankans, flytji sitt mál og eftir hádegi verjandi Sigurðar Einarsson- ar, stjórnarformanns bankans. Á miðvikudaginn mun verjandi Ingólfs Helgasonar, fv. forstjóra bankans á Íslandi, flytja mál hans, en eftir hádegi þann sama dag er komið að verjanda Birnis Sæs Björnssonar. Birnir er einn þriggja í deild eigin við- skipta bankans sem eru ákærðir í málinu, en dómari hafði áður beint þeim fyrirmælum til verjanda hans, Péturs Kristins Guðmarssonar, og Einars Pálma Sigmundssonar að hafa samráð um málflutning sinn þar sem hann væri nokkuð samtvinnaður. Slíkt myndi koma í veg fyrir tvítekn- ingu þeirra. Verjandi Birnis sagðist gera ráð fyrir 2-3 klukkustundum á miðviku- daginn og verjandi Einars 4 klukku- stundum fyrir hádegi á fimmtudag- inn. Eftir hádegi þann sama dag yrði verjandi Péturs svo 2-3 klukkustund- ir. Þegar þetta varð ljóst spurði dóm- arinn hvort þeir hefðu ekkert haft neitt samráð, þar sem þetta væri rúmlega einn og hálfur dagur í dóm- sal. Svaraði verjandi Péturs því til að þeir hefðu einmitt náð þessu niður í þennan tíma með samráði. Málið væri það stórt og umfangsmikið að þetta væri lágmark. „Almennilegur verjandi“ Var dómarinn orðinn nokkuð stressaður yfir lengd málflutningsins og spurði þá verjanda Magnúsar Guðmundssonar, fv. forstjóra bank- ans í Lúxemborg, hvað hún áætlaði langan tíma. Sagðist hún þurfa í mesta lagi eina og hálfa klukkustund. Heyrðist þá í dómaranum: „Loksins kemur almennilegur verjandi.“ Var nokkuð létt yfir mönnum í dómsal á þessum tíma og bætti verj- andi Sigurðar þá við að hann mót- mælti þessu tali dómara, hann hefði sjálfur líka aðeins séð fram á eina og hálfa klukkustund. Dómari skoðaði þá blaðið sitt og sagði ástæðu þessa ruglings hjá sér vera að verjandinn hefði sagt 90 mínútur í stað einnar og hálfrar klukkustundar. „Ég játa,“ heyrðist þá í verjandanum. Í framhaldi af málflutningi verj- anda Magnúsar taka svo við verjend- ur Bjarka Diego og Bjarkar Þórar- insdóttur, en þau voru framkvæmda- stjórar útlánasviðs og í lánanefnd bankans. Að lokum er svo gert ráð fyrir seinni ræðu saksóknara þar sem hann meðal annars leggur fram kröfu um refsingu ákærðu. Dómarinn bar við minnisleysi Arngrímur Ísberg héraðsdómari lenti í sömu aðstæðum og mörg vitni gera sem koma fyrir dóminn. Varð hann að viðurkenna minnisleysi sitt þegar rætt var um uppröðun tíma fyrir málflutning verjenda. Gerði hann grín að þessu öllu saman og uppskar mikinn hlátur viðstaddra í salnum. Ljóst er að nýta þarf allan tíma sem í boði er, en Arngrímur gekk út frá því að setið yrði frá kl. 9 til 16 hvern dag. Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einarssonar, spurði dómarann hvort þetta væru ekki helst til langir dagar fyrir svo krefjandi mál og langan mál- flutning. Benti hann dómara á að ný- lega hefði hann varið mál þar sem Arngrímur hefði sjálfur lagt mikið upp úr því að aðeins væri setið frá kl. 9 til 15 hvern dag. Arngrím setti hljóðan við þetta, en sagðist svo skilja framburð vitna bet- ur eftir þessa athugasemd. „Ég man ekkert eftir þessu,“ sagði hann. Eins og fyrr segir uppskar svar hans mik- inn hlátur viðstaddra og skapaði tals- vert léttara andrúmsloft en verið hef- ur undanfarnar vikur. Létt í dómsal í þungu máli  Vitnaleiðslum í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings lokið  Munnlegur mál- flutningur saksóknara og verjenda næst á dagskrá  Dómarinn uppskar hlátur Morgunblaðið/Styrmir Kári Bið Steingrímur Kárason og Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar Einars- sonar, sjást hér ræða sín á milli í einu réttarhléi í héraðsdómi. Icelandair Group hlaut Útflutnings- verðlaun forseta Íslands 2015. Ólaf- ur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær en Björgólfur Jóhannsson, for- stjóri Icelandair Group, veitti þeim viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins. Icelandair Group hlýtur verð- launin fyrir þann einstaka árangur sem fyrirtækið hefur náð í að laða til landsins erlenda gesti og greiða för landsmanna til annarra landa með þróun viðskiptahugmyndar sem hefur breytt upplifun á land- fræðilegri stöðu landsins. Í frétta- tilkynningu frá Íslandsstofu segir að sú viðskiptahugmynd Icelandair Group að nýta legu Íslands sem styrkleika í alþjóðaflugi og stofna til tengiflugs um Keflavíkurflugvöll hafi ekki verið sjálfgefin enda fylgdi henni rekstrarleg áhætta. Þessi hugmynd hefur gengið upp og er leiðakerfi Ice- landair nú talið undirstaða vel- gengni fyrirtæk- isins og ein for- senda þess vaxtar sem hefur verið í ferðaþjónustunni hér á landi. Icelandair Group er nú eitt stærsta fyrirtæki á Íslandi en hjá því starfa tæplega 4.000 manns þegar mest lætur. Dótturfyrirtæki þess eru Ís- lendingum góðkunn en vöxtur fé- lagsins stafar einkum af auknum fjölda ferðamanna sem Icelandair flýgur með yfir sumartímann. Leggur félagið eftir sem áður megináherslu á að fjölga ferða- mönnum á Íslandi yfir vetrartím- ann. Telja forsvarsmenn Icelandair Group fulla ástæðu til að vera bjartsýnir um áframhaldandi vöxt og viðgang á komandi árum. Hafa þeir uppi áætlanir um að taka í notkun nýrri, stærri og langdræg- ari flugvélar sem munu gera félag- inu kleift að fjölga áfangastöðum enn frekar. Minni flugvélar munu einnig bætast við flotann og fjöl- breytni hans aukast enn frekar. Arnaldur Indriðason rithöfundur hlaut sérstaka heiðursviðurkenn- ingu við sama tilefni. Viðurkenn- ingin er veitt einstaklingi sem þykir með starfi sínu hafa borið hróður Íslands víða um heim og þannig stuðlað að jákvæðu umtali um land okkar og þjóð. benedikta@mbl.is Verðlaun Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, tekur við Útflurningsverðlaunum forseta Íslands. Áhættan borgaði sig  Icelandair Group hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Arnaldur Indriðason fær heiðursviðurkenningu Arnaldur Indriðason Búið er að opna Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði og Öxi og Breiða- dalsheiði eftir sérstaklega erfiðan vetur. Í frétt Vegagerðarinnar segir að þessi vetur hafi verið erfiður í vetrarþjónustunni þar sem víða hef- ur verið mun meiri snjór en undan- farin ár. Var það ekki eingöngu snjórinn sem gerði veturinn erfiðan heldur voru veður óvenju hörð og leiðinleg stóran hluta vetrar, sér- staklega á sunnan- og vestanverðu landinu. Hefur Hellisheiðinni ekki verið lokað jafnoft í langan tíma auk þess sem vegna sérstaks veðurfars þurfti einnig nokkrum sinnum að loka Reykjanesbrautinni í vetur. Dynjandisheiðin var opnuð fyrr í vikunni en það er heldur seinna en undanfarin ár. Vegna mikils snjós tók næstum hálfan mánuð að opna Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði, sem er óvenju langur tími. Öxi fyrir austan var opnuð á þriðjudag og áð- ur var Breiðadalsheiði opnuð. Morgunblaðið/Ómar Snjór Opnað hefur verið á heiðum eftir sérstaklega erfiðan vetur. Búið að opna heiðarnar  Sérstaklega erf- iður vetur að baki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.