Morgunblaðið - 16.05.2015, Side 21

Morgunblaðið - 16.05.2015, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þorgeir & Ellert hf. og Skaginn hf. á Akranesi hafa óskað eftir viðræðum við Faxaflóahafnir sf. um end- urbætur á Akraneshöfn, ekki síst uppbyggingu við Lambhúsasund þar sem fyrirtækin eru til húsa. Lagt er til að byggja alls 425 metra viðlegu- kanta. Auk þess verði gerður nýr sjó- varnargarður við Lambhúsasund. Ætla má að kostnaður við þetta nemi um 2,5 milljörðum króna. Samhliða þessum framkvæmdum hyggst Þorgeir & Ellert hf. stækka skipalyftu á sinn kostnað þannig að hún ráði við allt að 80 metra löng og 20 metra breið skip. Það gæti kostað á annan milljarð króna. Ingólfur Árnason, framkvæmda- stjóri Þorgeirs & Ellerts hf. og Skag- ans hf., bendir á að slík uppbygging við Lambhúsasund kosti í heild um 3,5 milljarða króna. Það sé einungis um þriðjungur af því sem áætlað sé að kosti að byggja upp skipaverkstöð á Grundartanga, þ.e. slipp- og málm- iðnaðarklasa. Áætlað er að fjárfest- ing Faxaflóahafna vegna slíkrar upp- byggingar á Grundartanga verði um 7,5 milljarðar og að aðstaða rekstr- araðila þar muni kosta um 2,5 millj- arða. Bréf Þorgeirs & Ellerts hf. um uppbyggingu hafnarsvæðis í Lamb- húsasundi var lagt fram á stjórn- arfundi Faxaflóahafna 8. maí sl. Hafnarstjóra var falið að leggja fram frekari upplýsingar og ákveðið var að óska eftir umsögn Akraneskaup- staðar um erindið. Ingólfur bendir á í bréfinu að und- anfarin misseri hafi málmiðnaður tengdur sjávarútvegi og öðrum mat- vælaiðnaði eflst mjög á Akranesi. Skaginn hf., Þorgeir & Ellert hf. og Grenjar ehf. hafi undanfarin misseri fjárfest í húsnæði og búnaði fyrir vel á annan milljarð til að mæta aukinni framleiðsluþörf. Við Lambhúsasund sé nú einn stærsti málmiðnaðarklasi á Íslandi með tæplega 11.000 fer- metra húsnæði auk skipalyftu og hafnarmannvirkja. Mun ódýrari kostur Ingólfur sagði að í ljósi hugmynda Faxaflóahafna um uppbyggingu skipaverkstöðvar á Grundartanga þætti þeim eðlilegra að skoðuð yrði enn frekari uppbygging í Lamb- húsasundi, eins og sýnd er á með- fylgjandi teikningu. „Við höfum byggt upp öflugt iðn- aðarsvæði þar sem bæði Þorgeir & Ellert og Skaginn eru. Við sjáum mikla framtíð í nýrri tækni okkar í of- urkælingu á fiski og sjálfvirkum lestakerfum og teljum að við fáum æ fleiri skip í breytingu, ekki bara ís- lensk skip. Við trúum því að þessi tækni muni ryðja sér til rúms út um allt. Þá verður alveg kjörið að hafa þessa aðstöðu,“ sagði Ingólfur. Hann rifjaði upp þegar nýr vinnslubúnaður og ofurkælikerfi var sett í togarann Málmey SK í vetur. Togarinn lá við bryggju á Akranesi en aðstaðan þar var ekki nógu góð, að sögn Ingólfs. Svo mikill sláttur var á skipinu að það var til vandræða. Ráða verði bót á þessu. Rætt hefur verið um að stækka Akraneshöfn og bæta aðstöðuna m.a. vegna nýrra skipa HB Granda. Ing- ólfur sagði að við það minnkaði pláss- ið fyrir önnur skip í höfninni. Þetta gerist um leið og Þorgeir & Ellert og Skaginn telji að komur skipa vegna breytinga og uppsetningar nýs bún- aðar muni færast í vöxt. Fyrirliggj- andi er að setja krabbalínu í fær- eyska skipið Friðborg, sjálfvirk lestakerfi í þrjá nýja ísfisktogara HB Granda og fleiri verkefni eru í bígerð. „Við erum að þróa svo margt skipatengt núna, íslausa kælikerfið, sjálfvirku lestakerfin og vinnslulín- una fyrir krabbaveiðar. Svo erum við að skoða nýjar lausnir fyrir uppsjáv- arskip og bolfiskveiðiskip. Það er vonlaust fyrir okkur að hafa ekki að- stöðu fyrir skipin,“ sagði Ingólfur. Akranes ódýrara en Grundartangi  Þorgeir & Ellert hf. og Skaginn hf. leggja til að Faxaflóahafnir sf. bæti aðstöðu í Akraneshöfn fremur en að byggja skipaverkstöð á Grundartanga  Mörg verkefni tengd hátækni í farvatninu Lambhúsasund Heimild: Þorgeir & Ellert hf. Hugmynd að hafnarsvæði í Lambhúsasundi a Færeyska skipið Frið- borg er vænt- anlegt til Akraness um miðjan ágúst nk. og verður sett um borð í það ný vinnslulína fyrir krabba. Samningurinn er upp á 250 milljónir króna. Búnaðurinn er smíðaður hjá Skaganum, 3X Technology og fleiri innlendum framleiðendum. Verkefnið er upp á um 250 milljónir kr. og er áætlað að það taki 6-7 vikur. Ef fullnægjandi aðstaða hefði verið til staðar á Akranesi hefði verkefnið orðið stærra og sá hluti þess sem unninn verður í Færeyjum hefði líklega komið hingað. Heildarkostnaður breyt- inga á skipinu hér á landi hefði því orðið um tvöfalt meiri eða um 500 milljónir króna. Búast má við mörgum skip- um til Akraness víða að til breytinga og endurbóta. Aðstaðan hamlar vexti NÝJASTA TÆKNI Í SKIPIN Ingólfur Árnason Hrein akstursgleði BMW X5 www.bmw.is BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is BMW X5 25d xDrive. Verð frá 10.790.000 kr.: Steptronic 8 þrepa sjálfskipting – 18” álfelgur lykillaus gangsetning – rafdrifinn afturhleri – rafdrifin framsæti með minni fyrir ökumann – nálgunarvarar bakkmyndavél – handfrjáls Bluetooth símabúnaður – 6,5” litaskjár Þriðja kynslóðin af BMW X5 er sú glæsilegasta hingað til. Nýr X5 25d xDrive er með 218 hestafla dísilvél og 8 gíra sjálfskiptingu og eyðir einungis 5,8 l/100 km í blönduðum akstri. Aktu framförum – kynntu þér nýjan BMW X5. NÝR BMW X5 25D DÍSIL XDRIVE. AKTU ALVÖRU JEPPA Á HVAÐA VEGI SEM ER. M ið a ð v ið u p p g e fn a r v ið m ið u n a rt ö lu r fr a m le ið a n d a u m e ld s n e y ti s n o tk u n íb lö n d u ð u m a k s tr i. OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.