Morgunblaðið - 16.05.2015, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 16.05.2015, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015 Ég var að koma til landsins og ætla að leggja aftur land undirfót í Skagafjörðinn,“ segir Pálína Jónsdóttir sem rekur þarBlómaeldhús Pálínu í Lónkoti á sumrin. „Ég tek á móti gest- um sem vilja komast í sveitasæluna og það er sér- staklega ánægjulegt hvað margir Íslendingar koma til okkar. Ég er með sex her- bergja hótel og veitingahús og er svo heppin að vera á einum fallegasta stað lands- ins rétt fyrir norðan Hofsós beint á móts við Málmey. Við opnum 1. júní og erum með opið í þrjá mánuði.“ Í vetur hóf Pálína þriggja ára meistaranám í leik- stjórn í leikhúsdeild Col- umbia-háskólans í New York. „Þetta nám er á efsta stigi bæði hvað varðar námsgæði og kröfur sem til manns eru gerðar. Ég er mjög ánægð enda gæti ég ekki verið á betri stað til að æfa mig að leikstýra úrvals- verkum leikbókmenntanna undir handleiðslu meistara minna Anne Bogart og Bri- an Kulick. Ég er að meðal- tali að sýna tvö leikstjórn- arverkefni á viku sem ég set upp með starfandi leikurum í borginni svo þetta er búið að vera mjög gefandi. Í sumar þarf ég síðan að undirbúa mig fyrir næsta vetur með því að lesa verk Brechts og velja mér verk eftir hann sem ég mun setja upp auk þess að undirbúa fyrir- lestur um fagurfræðileg áhrif hans áður en skólinn byrjar. Ég mun einnig lesa verk Tsjekovs en ég mun setja upp verk eftir hann í vetur líka. Svo stefni ég á að sjá meira af landinu áður en ég fer aftur út en ég reyni alltaf að fara tvær ferðir um eigið land á sumrin. Námið er verulega þungt og því ekki mikill tími aflögu hjá mér fyr- ir aðrar lífslanganir og ég fer vart út af háskólasvæðinu nema þá helst á sýningar sem ég vil ekki fyrir nokkurn mun missa af. Ég veit ekki hvernig afmælisdagurinn verður en það er einhver sposkur svip- ur á kærastanum svo hver veit hvað gerist.“ Kærastinn er Eiríkur Guðmundsson rithöfundur og dóttir Pálínu er Ugla Hauksdóttir en hún er einnig í námi í New York. Komin heim Nemi í New York á veturna og rekur hótel í Skagafirði á sumrin. Frá New York til Skagafjarðar Pálína Jónsdóttir er 47 ára í dag Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir H alldór fæddist í Reykjavík 16.5. 1985 en ólst upp í Melkoti við Gljúfrastein: „Við bjuggum í Melkoti, Sigga, móðursystir mín, í Jónstóft og afi og amma á Gljúfrasteini. Þetta var húsaþyrping stórfjölskyldunnar. Afa fór að förlast upp úr 1990 en Auður amma var herforinginn á svæðinu. Það er hreint ótrúlegt hverju sú kona kom í verk og hafði umsjón með um ævina. Það var í raun miklu meira en eins manns verk að vera aðstoðarmanneskja afa og jafnframt húsfreyja á Gljúfra- steini sem stundum var á við meðal sendiráð í veisluhaldi, veitingum og gestamóttöku. Amma var auk þess frábær hannyrðakona og hún var minn klettur og andlegur leiðtogi.“ Halldór var í Varmárskóla, Gagn- fræðaskóla Mosfellsbæjar, stundaði nám við MH og lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut. Hann lauk síðan einni önn í bókmenntafræði við HÍ en hætti þá námi. Halldór var dyravörður á Hverfis- barnum, fræðari í Jafningjafræðslu, starfsmaður í Bónus video og starfs- maður í félagsmiðstöð. Hann var blaðamaður á DV frá útskrift í menntaskóla, blaðamaður við Fréttablaðið og blaðamaður á Séð og heyrt í sex klukkustundir þar sem hann sá eitthvað en heyrði ekk- ert sem hafandi er eftir. Síðan var Halldór útvarpsmaður á X-inu 977 og vann við dagskrárgerð á Rás 2. Halldór hóf nám á Sviðshöfunda- braut í Listaháskólanum árið 2008 Halldór Laxness Halldórsson – grínisti og leiklistarfræðingur 30 ára Á ferðalagi Halldór og Magnea með Kára og Guðnýju við Nigarafossa á landamærum Bandaríkjunum og Kanada. Leynir á sér við tré- smíðar í gömlum stíl Á Madame Tussauds Halldór og foreldrar hans við vaxmynd Pavarottis. Reykjavík Andrea Embla Grbic fæddist 16. maí 2014 kl. 13.59. Hún vó 3.720 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Stefanía Björk Blumenstein Jóhannesdóttir og Denis Grbic. Nýir borgarar Reykjavík Mikael Aron fædd- ist 16. maí 2014. Hann vó 3.306 g og var 49 cm langur. Foreldrar hans eru Rebekka Ósk Gunnarsdóttir og Davíð Freyr Sveinsson. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 FLINGA 80 CM KR. 9.800 FLINGA 160 CM KR. 16.700 GINA STÓLL KR. 19.700 BETINA EIKARSKENKUR 170X43X72 KR. 142.900 NÝTT - CALVIN TUNGUSÓFI 269X153 CM KR. 227.400 FRÁBÆRT ÚRVAL AF PÚĐUM VERĐ FRÁ KR. 4.900 MONICA BORĐSTOFUBORĐ STÆKKANLEGT 90X180/270 KR. 157.800 MINIMAL VEGGKLUKKUR KR. 9.9.80 BORĐ 2 SAMAN KR. 28.400

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.