Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015 ÁAlþingi hafa nú staðið deilur um það hvorttaka eigi tiltekna virkjunarkosti og setja þáí svokallaðan nýtingarflokk Rammaáætl- unar. Þingmenn hafa deilt um lögformleg ferli í þessu sambandi en minna um einstaka virkjanir. Þetta er fullkomlega eðlilegt því fara ber að lögum. Virkjanirnar sem um er að ræða eru Urriðafoss, Hvamms- og Holtavirkjun í Þjórsá, Hagavatn við Langjökul og Skrokkalda á ofanverðu vatnasvæði Þjórsár. Og Skrokkalda var það sem leiðarahöfundur Morgunblaðsins gerði nýlega að umfjöllunarefni á eftirminnilegan hátt. Spurt var hve margir þingmanna þekktu til þess- ara virkjunarkosta og tiltók hann sérstaklega Skrokköldu. Ekki hef ég verið sérlega kunnugur þessum virkj- unarkosti en leiðarinn og umræðan í þinginu varð mér tilefni til að leita upplýsinga um Skrokköldu. Fyrir aldarfjórðungi fékk Hjörleifur Guttorms- son samþykkta þingsályktunartillögu sem síðar átti eftir að verða eins konar grunnur að vinnu og lögum sem við nú kennum við Rammann. Lögin um vernd- ar- og orkunýtingaráætlun, eins og hið formlega heiti er, voru samþykkt í tíð síðustu ríkisstjórnar og eru án efa ein mikilvægasta lagasetning þings- ögunnar. Með lögunum var reynt að færa hin miklu átök sem jafnan hafa fylgt ákvörðunum um virkj- anir inn í yfirvegaðan skynsemisfarveg. Samkvæmt lögunum eru einstakir kostir metnir af sérfræð- ingum sem horfa til þeirra þátta sem deilt hefur verið um og í kjölfarið setja þeir fram tillögur sam- kvæmt ígrunduðu mati. Í kjölfarið tekur Alþingi síðan ákvarðanir. Það er grundvallaratriði. Þótt úr matsferli og innri málamiðlunum sér- fræðinga komi tillaga um að ráðast megi í Hvammsvirkjun, svo dæmi sé tekið, er ekki þar með sagt að ég eða aðrir þingmenn myndu vilja samþykkja þann kost. Það sem hefur hins vegar áunnist er að umræðan og eftir atvikum deilur manna í millum eiga nú að hafa mikilvægar rann- sóknir að styðjast við. Þetta ferli fríar okkur ekki frá ábyrgð á því að kynna okkur málin hvert og eitt, og þá óháð því hvort við sitjum innan veggja Alþingis eða utan, því umræðan í þjóðfélaginu þarf að vera víðtæk. Landið er okkar allra og þar með ábyrgðin á því hvernig með það er farið. Og þótt sérfræðingar kanni hina hlutlægu þætti þá eru þeir ekki alltaf óumdeildir. Þar að auki vega hinir huglægu þættir þungt – ef ekki þyngst. Finnst okkur til dæmis í lagi að fórna hinum til- komumikla Urriðafossi? Hvaða þýðingu hefði Skrokkölduvirkjun og raflínur frá henni fyrir víð- erni og verndarsvæði á hálendinu? Grundvallar- atriði er að þekkja hvað um er að tefla. Á ef til vill að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um Skrokköldu? Kosturinn við þjóðaratkvæða- greiðslu er sá að þá sjáum við okkur knúin til að fara sjálf á stúfana. Ef til vill væri ráð að kynna Skrokköldu fyrir þjóðinni með þeim hætti. Skrokkalda * Finnst okkur til dæmis í lagi að fórna hinumtilkomumikla Urriðafossi? ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Vikan byrjaði með skemmti- legu tísti Braga Valdimars @BragiValdimar um söngva- keppnina sætu. „Í Eurovisionvik- unni fögnum við því þegar Jesús reis upp úr skápnum og breytti tár- um verkalýðsins í glimmer,“ en hann var einn þeirra fjölmörgu sem notuðu #12stig til að merkja færslur sínar. Allra vinsælasta færslan sem var svona merkt var eftir Ara Eld- járn @arieldj- arn: „Svíþjóð svindlaði! Það voru miklu fleiri en 6 manns á sviðinu!“ Hann vísar þar til Måns Zelmerlöw og sakleysislega teiknimyndahers hans. María Lilja Þrastardóttir @marialiljath skrifaði hins veg- ar „Stop, Wait, Go home :( “. Margir voru skiljanlega svekktir yfir því að María Ólafsdóttir skyldi ekki hafa komist í úrslitin fyrir Íslands hönd og þá brutust gagnrýnisraddirnar út. BBC Eurovision á Twitter og Facebook sagði atriði Íslands vera algjört Eurodisney og fékk góð við- brögð við þeirri athugasemd. Helga Rut Guðmundsdóttir, móðir Elínar Sifjar sem tók þátt í undankeppninni hér heima með góðum árangri, skrifaði um Euro- vision á Facebook: „Mér fannst ekki allir skilja hvað ég var að meina þegar ég sagðist ekki hafa áhuga á að horfa á 16 ára dóttur mína stíga sem fulltrúi Íslands inn í þann sirkus sem Eurovision- keppnin er. En eftir gærdaginn, þarf nokkuð frekari vitnanna við? Þetta er hreinlega of mikið álag fyrir ung- ar manneskjur. Sama hversu hæfi- leikaríkar þær eru. Og ekki vantar dómhörkuna úr öllum hornum þegar heppnin er ekki með í för.“ Sigríður Ey- rún Friðriks- dóttir söng- kona skrifaði í athugasemd á Facebook: „Ein ljót athugasemd æpir á mann eins og milljón þegar eitthvað er sagt á netmiðlum um mann.“ AF NETINU Framleiðandi í Hollywood sagði leikkonunni Maggie Gyl- lenhaal að hún, 37 ára að aldri, væri of gömul til að leika ást- konu 55 ára leikara í kvikmynd. Gyllenhaal sagði í viðtali við The Wrap að það hefði verið mikið áfall að heyra þetta en síðan hefði henni þótt þetta hlægilegt. „Það eru margir hlut- ir sem eru virkilega svekkjandi við að vera leikkona í Holly- wood, sem koma mér stöðugt á óvart,“ sagði hún. „Mér leið illa, síðan varð ég reið og svo fór ég að hlæja,“ sagði hún um viðbrögðin við því að hún væri of gömul. Það að fá yngri leikkonur til að leika á móti miklu eldri mönnum hefur tíðkast lengi í Hollywood. Til dæmis var Kim Novak helmingi yngri en hinn fimmtugi James Stewart í Vertigo. Nýtt dæmi er úr mynd Woodys Allen frá 2014, Ma- gic in the Moonlight, en 28 ára aldursmunur er á Emmu Stone og Colin Firth sem leika aðalhlutverkin. Undantekning í Spectre Undantekningarnar eru til en nýju Bond-myndinni Spectre, hefur verið hrósað fyrir að fara aðra leið, en þar leikur hin fimmtuga Monica Bellucci á móti Daniel Craig, sem er 47 ára. Reyndar eru hinar Bond-stúlkurnar, Léa Seydoux and Stephanie Sigman, tæplega þrítugar. Á Cannes-kvikmyndahátíðinni kom í ljós að við gerð spennumyndarinnar Sicario var mikill þrýstingur frá fram- leiðendunum að breyta kyninu á aðalhlutverkinu, FBI- fulltrúa, sem Emily Blunt leikur. Handritshöfundarnir náðu að standast pressuna en segja að þrýstingurinn hafi verið mikill. Tölfræðin segir að konur voru aðeins í 12% aðalhlutverka í 100 stærstu myndunum í Bandaríkjunum árið 2014. Til við- bótar hafa aðeins 22% starfsfólks kvikmynda við 2.000 stærstu myndir síðustu 20 ára verið konur. Gyllenhaal lét ekki uppi í viðtalinu um hvaða mynd eða leikara var að ræða. Hún segist þó vona að smám saman sé Hollywood að verða betri vinnustaður fyrir konur. „Margar leikkonur eru að gera stórkostlega hluti núna, að leika al- vöru, flóknar konur. Ég örvænti ekki og vonast eftir því að spennandi hlutir gerist.“ Maggie Gyllenhaal er 37 ára en er gömul á Hollywood-mælikvarða. AFP Gyllenhaal of gömul til að leika á móti 55 ára karlmanni Vettvangur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.