Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Qupperneq 13
úar. Ótíðin þá var reyndar svo
ferleg og frátafir miklar svo við
voru 18 daga að ná fimm dögum á
sjó,“ segir Alfons sem vinnur á
dekkjaverkstæði þegar ekki gef-
ur.
Allir bátar settir á flot
En nú eru allsráðandi strandveið-
arnar sem hófust í maíbyrjun. Allir
smábátar sem tiltækir eru hafa
verið settir á flot og allir sem vett-
lingi valda róa út á mið. Fjöldi
strandveiðibáta er gerður út frá
Ólafur Bjarnason SH er þekktur bátur í Ólafsvíkurflot-
anum og hefur reynst eigendum og áhöfn vel í áranna rás.
af Gufuskálum og Öndverðarnesi.
Þangað er raunar ekki nema um
klukkutími frá bryggju og þá er
komið á fína fiskislóð.
„Menn setja nótina út á sand-
botninn skammt undan hraun-
brúninni. Betra gerist það varla,“
segir Alfons sem í vetur tók
nokkrar túra á Sveinbirni Jak-
obssyni SH; velþekktum bát í
Ólafsvíkurflotanum þar sem Egill
Þráinsson skipstjóri stendur í
brúnni.
„Ég fór á sjóinn í þetta í febr-
Ólafsvík sem fiska á svæði A, sem
nær frá Snæfellsnesi og norður um
Vestfirði.
„Þessi veiði hefur hleypt alveg
nýju lífi í útgerðina hér. Þetta
minnir svolítið á þá sælutíma í
gamla daga þegar hér voru
kannski gerðir út 100 bátar á ver-
tíðinni. Og þá voru hér myndefni á
hverju strái og svo er raunar enn,
bara ef maður hefur augun opin og
leyfir hugmyndafluginu að njóta
sín,“ segir Alfons Finnsson Mogga-
maður í Ólafsvík að síðustu.
Glaður er góður bátur og hefur komið með mikinn afla til
hafnar í vetur - svo gjaldeyririnn fossar inn í landið.
Landburður af fiski og köin full. Þegar líður á daginn er oft
mikið umleikis á bryggjunni þegar aflinn er settur á bíla.
Híft úr lestinni. Það er alltaf gaman þegar vel veiðist og því
hafa sjómenn á Snæfellsnesi haft ástæðu til að brosa breitt. Fyrsta úthlutun úr hjá Gunnarsstofnun. Styrkþegar og fulltrúar þeirra. Helgi
Gíslason, af Skógargerðisætt, formaður sjóðsstjórnar, er lengst til vinstri.
Ljósmynd/SBG
Nú í vikunni var í fyrsta sinn út-
hlutað úr Menningarsjóði Gunn-
arsstofnunar að Skriðuklaustri í
Fljótsdal. Þetta var gert á fæðing-
ardegi Gunnars Gunnarssonar rit-
höfundar en starf stofnunarinnar er
tileinkað starfi hins mikilvirka höf-
undar.
Sjóðnum er ætlað að styðja rithöf-
unda, listamenn, fræðimenn og
námsfólk til verka er samræmast
hlutverki Gunnarsstofnunar auk
þess að renna stoðum undir starf-
semi stofnunarinnar.
Sælir eru einfaldir
Níu umsóknir bárust til sjóðs-
stjórnar og fjögur verkefni fengu at-
fylgi. Þrjú verkefni fengu 200 þús.
kr. styrk: Hallveig K. Eiríksdóttir
og Þorvaldur S. Helgason til að
vinna leiksýningu eftir skáldsögu
Gunnars Sælir eru einfaldir; Jón
Hjartarson til að skrifa leikverk upp
úr þremur smásögum Gunnars; Osk-
ar Vistdal til að þýða Svartfugl á
norsku. Hæsta styrkinn, 400 þús.
kr., hlaut Sigurgeir Orri Sig-
urgeirsson til að skrifa handrit að
heimildarmynd um ævi og starf
Gunnars.
FLJÓTSDALUR
Kvikmynd, þýðing
og leikgerðir
Húsið á Skriðuklaustri er óvenjulegt
og setur afar sterkan svip á sveitina.
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Ísbúð hefur verið opnuð á Húsavík í
fyrsta skipti. „Ég hef gengið með
þennan draum í nokkur ár og við
ákváðum að drífa loksins í þessu,“
segir Erna Björnsdóttir.
Eigendur eru systkinin Börkur,
Jónas og Guðrún Þórhildur Emils-
börn, ásamt mökum. Erna er kona
Barkar. Hún er lyfjafræðingur í
Lyfju á Húsavík, hefur sinnt því
starfi í nokkur ár, en er nú jafnframt
farin að skipta sér aftur af fjöl-
skyldufyrirtækinu Sölku, eins og
hún orðar það. Fyrirtækið rekur
samnefndan veitingastað og hvala-
skoðunarfyrirtæki.
„Við erum á þriðja ári með hvala-
skoðun en höfum rekið Sölku síðan
2000. Við höfum verið viðloðandi
ferðamannabransann í 20 ár; pabbi
var með hótelið á sínum tíma, við
vorum þar, og byrjuðum með veit-
ingastaðinn Gamla Bauk.“
Ísbúðinni hefur verið vel tekið.
„Fyrstu þrjá dagana var röð út úr
dyrum og gott að gera síðan.“
Salka hefur rekið kaffihús í miðbæ
Húsavíkur í tvö ár og ísbúðin er í
sama húsnæði. „Við ákváðum að
taka eitt skref í viðbót með því. Hér
seljum við líka miða í hvalaskoð-
unarbátinn okkar, Fanneyju.“
HÚSAVÍK
Svilkonurnar Helena Ósk Ævarsdóttir og Erna Björnsdóttir, til hægri.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Apótekarinn selur ís
Sveitarstjórn í Skagafirði ætlar að láta kanna launa-
kjör Skagfirðinga með tilliti til launakjara á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta gerist í kjölfar könnunar þar
sem leitað var skýringa á fólksfækkun á svæðinu.
Skagafjörður
Samþykkt var í Árborg í sl. viku að aðeins konur sitji
reglulegan bæjarstjórnarfund í júní. Er það gert til að
minnast 100 ára kosningaréttar kvenna. Arna Ír Gunn-
arsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, átti tillöguna.
Árborg
Gæði og þægindi síðan 1926
Við tökum svefninn alvarlega.
Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni,
góðu handverki, stöðugum prófunum
og vandlega völdum efnum.
Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn
á meira en 85 ára rannsóknum og þróun.
duxiana.com
DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950
D
U
X®
,D
U
XI
AN
A®
an
d
Pa
sc
al
®
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
ow
ne
d
by
D
U
X
D
es
ig
n
AB
20
12
.