Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Page 20
Hátíðin í ár er helguð sérstakri bragðtegund, í tilefni af heimssýn- ingunni, Expo 2015, sem á sér stað í Mílanó. Sýningin stendur frá 1. maí til 31. október. Þá sækir Gelato Festival borgina heim dagana 28. maí til 7. júní og 3.-13. september. Ferðamenn geta því slegið tvær flugur í einu höggi og heimsótt bæði Gelato Festival og Expo 2015 í Mílanó í sumar. Mezzalira og Giorgio, skipuleggjendur hátíðarinnar, búa til heimssýn- ingarísinn. Grunnur íssins er vatn og ávextir og því hentar hann vel fyrir fólk með mjólkuróþol. Ísinn verður í litum vörumerkis heimssýning- arinnar sem eru gulur, bleikur, ljósblár, fjólublár, grænn og rauður. Þá er Mílanó annáluð fyrir að vera háborg tískunnar. Þar er hægt að versla í frægustu tískuhúsum Evrópu. HEIMSSÝNING OG TÍSKA Í MÍLANÓ U nnendur ítalsks íss, eða gelato eins og hann heitir á frummálinu, geta borðað fylli sína af honum á mismunandi stöðum Evrópu í allt sumar. Árleg íshátið, Gelato Festival, á sér stað í Bretlandi, Hollandi Þýskalandi, á Spáni og Ítalíu á tímabilinu 30. apríl til 4. október en hún er nú haldin í sjötta skipti. Flestir viðkomustaðir hátíð- arinnar verða á Ítalíu, í heimalandi gelato, en það eru borgirnar Flórens, Róm, Torino, Mílanío, Katanía, Bari, Riccione og Viareggio. Á Gelato Festival kennir ýmissa grasa. Gestir geta fylgst með ísgerðar- mönnum að störfum búa til hágæðaís úr hráefnum beint úr héraði en lykil- orð hátíðarinnar í ár eru gæði, ferskleiki, upprunaleiki, rekjanleiki og beint frá býli. Ísinn í vinnustofunum ber keim af matarhefðum hvers og eins svæðis á Ítalíu, þannig að sérkenni matvara frá hverju svæði eru dregin fram. Sumar skrítnustu bragðtegundirnar í ár eru kirsuberjatómatar, hrogn og ólífuolía. Annar hluti af hátíðinni er keppni í ísgerð. Þeir sem kaupa sér sérstakt gelato-kort geta kosið það bragð sem þeim líkar best. Þeir sem kjósa ávinna sér rétt til að smakka eina tegund í viðbót. Hægt er að kaupa gelato-kortið á heimasíðu hátíðarinnar, http://www.gelatofestival.it/, fyrir aðeins 5 evrur, til kl. 22.30 daginn áður en hátíðin byrjar á hverjum viðkomustað. Einnig er hægt að kaupa kort á staðnum en það mun vera dýrara. Eitt ískort veitir manni rétt til að smakka fimm tegundir íss sem taka þátt í ísgerðarkeppninni. Hver skammtur er 50 grömm. Dæmi um bragðtegundir á hátíðinni eru: nutella ís, Amor Pernigotti (vanilla með súkkulaði, súkkulaðisósu, heslihnetur og kex), Buoantalenti (sérréttur Badiani ísbúðarinnar í Flórens), bragð Expo-sýningarinnar (mangó sorbet með kíví og jarðarberjum). Þá fá handhafar gelato-kortanna ótakmarkaðan að- gang að námskeiðum í Slow Cooking með stórum nöfn- um í ítalskri matargerð. Þeir læra þar að búa til ge- lato, uppgötva leyndardóma hágæða framleiðslu og læra að þekkja nýjustu landamæri gelato og mest ögrandi samsetningarnar. GELATO HÁTÍÐ Eltu ísinn um alla Evrópu ÍSHÁTÍÐIN THE GELATO FESTIVAL STENDUR YFIR Í NÆR 100 DAGA Í SUMAR OG Á SÉR STAÐ Í FIMMTÁN BORGUM, Í FIMM LÖNDUM. Brynja Björg Halldórsdóttir, brynja@mbl.is 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015 Ferðalög og flakk Íshátíðin kemur við í Cataníu á Sikiley dagana 30. júlí til 2. ágúst. Helsta kennileiti borgarinnar er Fílabrunnurinn, Fontana dell’Elefante, sem finna má í miðborginni. Vert er að sjá Benedettini-klaustrið sem er næststærsta benediktínaklaustur í Evr- ópu og stríðsminjasafnið Museo Sto- rico dello Sbarco. Sikiley er þekkt fyrir góða fiskrétti og sæta eftirrétti á borð við cannoli rúllur. Margir mæla með við- komu á fiskmarkaði borgarinnar en þar í nágrenninu má finna nær allt sem notað er í ítalskri matargerð; grænmeti, ávexti, brauð, olíuolíur, kjöt, osta og krydd. KLAUSTUR, FISKUR OG KJÖT Ljósmynd/Paolo Piscolla Cannoli eru fyllt- ar með rjóma og ricotta. Ferðalangar í Amsterdam geta dagana 9.-12. júlí gætt sér á ljúffengum gelato ís í staðinn fyrir hráa síld og ost- bita. Heimsókn til borgarinnar býður upp á siglingar um skipaskurði, heimsóknir í fjölmargar vindmyllur, van Gogh-safnið, Önnu Frank- safnið, ostasmökkun og margt fleira. Amsterdam er hjólaborg Evrópu og því er ekki vitlaust að leigja sér hjól, hjóla um borgina og skoða sig um. SKIPASKURÐIR, VINDMYLLUR OG HJÓLREIÐAR Fyrir utan Rijks- museum-safnið. Tré Lífsins, 35 metrahátt listaverk, á heimssýningunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.