Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Side 24
Svava hefur gert garðinn frægan ytra fyrir lík-
amsræktarkerfi sitt, Víkingaaðferðina.
Ljósmynd/Svala Ragnars
Svava Sigbertsdóttir, líkamsræktarþjálfari og
stofnandi The Viking Method æfingakerfisins,
var í Tyrklandi á dögunum við myndatökur
fyrir Hummel. Alþjóðlegi íþróttafatarisinn
flaug með hana þangað til þess að taka mynd-
ir af henni en Svava verður í forgrunni í
næstu auglýsingaherferð fyrirtækisins í Tyrk-
landi. Munu myndatökurnar hafa staðið yfir í
fjóra daga.
Teknar voru myndir af Svövu á Topkapi-
brúnni, fyrir framan Hagia Sophia-safnið í Ist-
anbúl, Bláu moskuna í sömu borg og á einka-
strönd fyrir utan borgina. Svava fór einnig í
viðtal hjá FHM Magazine, sem er mjög vin-
sælt tímarit í Tyrklandi.
VÍKINGAAÐFERÐIN
Svava í herferð
íþróttavörurisa
Myndir af Svövu munu prýða auglýsingaskilti
um allt Tyrkland .
Fötin frá Hummel eru sambland af klassískri
tísku og nýjum straumum.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
Heilsa og hreyfing
I
ðkendur og þjálfarar hjá Sparta heilsu-
rækt og Training for Warriors Reykja-
vík (TFW-Reykjavik) ætla föstudaginn
29. maí að hlaupa frá Nýbýlavegi 6, þar
sem Sparta heilsurækt er staðsett, til
Blönduóss og safna í leiðinni áheitum fyrir
Umhyggju, styrktarfélag langveikra barna.
Þeir Fannar Karvel
Steindórsson og Jóhann
Emil Elíasson halda utan
um skipulag hlaupsins. Þeir
eru jafnframt fram-
kvæmdastjóri og rekstr-
arstjóri Spörtu, auk þess að
þjálfa á stöðinni. Að sögn
Fannars er áætlað að
hlaupið taki á bilinu 26-30
klukkustundir, eftir því
hvernig hópnum gangi að hlaupa.
Hlaupararnir verða 25 talsins en þeir
munu skiptast á að hlaupa þannig að einn
til þrír hlauparar hlaupa í einu. „Hver
þeirra hleypur 3-5 kílómetra í einu áður en
skipt er um hlaupara. Þeir sem hvíla sig
geta þá lagt sig í rútunni sem ekur með
okkur,“ útskýrir Fannar. Auk hlauparanna
kemur einn bílstjóri með og tveir aðrir sem
verða hópnum innan handar og sjá um að
miðla upplýsingum á samfélagsmiðla.
Nokkuð passleg vegalengd
Leiðin sem hlaupin verður er um 244 kíló-
metrar að lengd. Aðspurður hvers vegna
Blönduós hafi orðið fyrir valinu sem áfanga-
staður segir Fannar: „Í fyrstu stóð til að
annar hópur frá Akureyri myndi hitta okkur
á miðri leið, rétt hjá Blönduósi en hann
varð að hætta við. Við ákváðum þá bara að
lengja leiðina og fara sjálf. Auk þess eru
margir í stöðinni okkar að norðan, þar á
meðal konan mín. Loks þótti okkur þetta
passleg vegalengd,“ segir hann og bætir við
að hópurinn muni fara krókaleiðir eftir
hlaupastígum út úr borginni en þegar í
Mosfellsbæ sé komið verði hlaupið eftir
þjóðveginum.
Fannar vonar innilega að veðrið verði
gott á leiðinni. „Ég hef þó vissar áhyggjur
af ferðinni yfir Holtavörðuheiði. Við verðum
þar seint að kvöldi eða jafnvel um miðja
nótt og það gæti orðið mjög kalt þar. Það
er þó það eina sem ég er hræddur við.“
Hann á svo von á því að einhverjir frá
Blönduósi sláist í för á lokakílómetrunum og
hlaupi með hópnum, enda stundi tiltekinn
hópur metabolic-æfingar, rétt eins og Spart-
verjar. Metabolic er hópþjálfun þar sem
notast er við teygjur, kraftbolta, ketilbjöllur,
kaðla, TRX bönd, eigin líkamsþyngd og
fleira. Hugsunin er sú að iðkendur geti
stýrt ákefðinni sjálfir.
Yrði ánægður með að safna milljón
Meðan á hlaupinu stendur mun hópurinn
safna áheitum til styrktar langveikum börn-
um. Allt sem safnast mun renna óskipt til
þessa málefnis.
„Ég yrði rosalega glaður ef okkur tækist
að safna milljón,“ svarar Fannar þegar hann
er spurður út í markmið með söfnuninni.
Hægt verður að fylgjast með hlaupahópn-
um á samfélagsmiðlunum Facebook, Twitter
og Instagram. Fannar segir að unnið sé að
því að setja upp beina útsendingu í gegnum
GPS þannig að fylgjast megi með fram-
göngu hópsins á korti. „Við verðum mjög
dugleg á samfélagsmiðlunum við að dæla út
myndum og myndböndum. Einhverjir hlaup-
arar verða með GoPro vél á sér þannig að
við ættum að geta tekið upp megnið af leið-
inni,“ segir hann.
ÁHEITASÖFNUN
Hægt er að heita á
hlauparana meðan á
hlaupinu stendur. Allt
sem safnast fer til
Umhyggju.
* Í fyrstu stóð til aðannar hópur frá Akureyri myndi hitta
okkur á miðri leið, rétt
hjá Blönduósi en hann
varð að hætta við. Við
ákváðum þá bara að
lengja leiðina og fara sjálf.
TUTTUGU OG FIMM SPARTVERJAR
OG STRÍÐSMENN SKIPTAST Á AÐ
HLAUPA Á LEIÐINNI FRÁ REYKJAVÍK
TIL BLÖNDUÓSS. HÓPURINN
LEGGUR AF STAÐ FÖSTUDAGINN
29. MAÍ NÆSTKOMANDI.
Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is
Fannar Karvel
Steindórsson
Hlaupa 244 kílómetra fyrir langveik börn
Þriðja og síðasta mótið í Þrekmótaröðinni fer fram laugardaginn 30. maí að Varmá í Mos-
fellsbæ. Keppnin á sér stað úti og greinarnar eru m.a. réttstöðulyfta, hlaup, sandpokaburður,
sleðahlaup og margt fleira. Keppt er í einstaklings-, para- og liðakeppni. Skráning og yfirlit yfir
keppnisgreinar má finna á heimsíðu Þrekmótaraðarinnar, www.threkmot.is
Útimót Þrekmótaraðarinnar
Hægt er að styrkja málstaðinn með því að
leggja inn á eftirfarandi reiking:
0307-13-110194
680510-1720